Nýtt blogg!!!

13. september 2008 klukkan 16:46

Er að færa mig yfir á blogspot.com

Ætla allavega að prófa það.

Slóð: http://agustag.blogspot.com/

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Þórhildur Nótt

05. ágúst 2008 klukkan 23:57
Í júní síðastliðnum greindist Þórhildur Nótt Mýrdal, dóttir Steinunnar Bjargar Gunnarsdóttur og Jóns Gunnars Mýrdal með sjúkdóm er kallast Spinal Muscular Atrophy eða SMA (vista) til eru 4 flokkar af þessum sjúkdóm og er Þórhildur með flokk 1 sem er jafnframt sá hættulegasti.
   Hún þarf á bæði lyfjagjöf og sérfræðiþjónustu að halda svo ekki sé minnst á tækjabúnað.  Þetta kostar allt peninga og mikla umönnun beggja foreldra sem munu væntanlega þurfa að vera töluvert frá vinnu.
  Viljum við því biðja alla sem eru aflögufærir að styrkja hana og fjölskyldu hennar með frjálsum fjárframlögum.
  Söfnunarreikningur Þórhildar er:  1118-05-250052 kt: 120856-7589
  Munum svo að margt smátt gerir eitt stórt.

Viljið þið vera svo væn að copy/paste þennan texta yfir á ykkar bloggsíðu svo að þetta berist sem flestum.

Frekari upplýsingar um sjúkdóminn:  http://www.fsma.ci.is/

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Búin að bóka!

27. maí 2008 klukkan 19:18

Jæja við erum loksins búin að bóka flugmiðana heim.
Binni og strákarnir koma 23. júní og ég kem 24 júlí og við förum öll saman heim 12. ágúst.
Ég náði að teygja mitt frí í 3 vikur, hélt ég næði bara 2 vikum!
Strákarnir hlakka mikið til og við búin að skrifa daginn inná dagatalið Brosandi.
Strákarnir eru stundum að rifja upp skemmtilegar minningar frá Íslandi og þá finnur maður alveg fyrir heimþránni í þeim, þó þeir séu alls ekki grátandi yfir þessu.
Um daginn var ég að skera í pylsu fyrir þá og gerði alveg eins og afi þeirra, setti remolaði og tómatsósu í pylsuna og þá koma frá Jóhann Inga:" Ég sakna svo ömmu og afa".

Ooo... það verður svo gaman í sumar Svalur.

Ég verð síðan EIN heima í heilan mánuð... hvað í ósköpunum á ég eiginlega að gera af mér??
Þetta verður örugglega smá sport fyrsta og svo kannski annan daginn en svo verður þetta örugglega orðið lonly.

Á síðasta fimmtudag ákvað ég að fara fyrr heim úr vinnunni og ég og Ásbjörn fórum í leikskólann hans Jóhann Inga því þar var vinnudagur.
Foreldrar komu saman og hjálpuðust að við að sansa garðinn, skiptum um spýtur sem liggja meðfram öllum trjárunnum, sópað, eitthvað mokað upp og kofi rifinn niður. Allir fengu ís til að kæla sig niður og svo voru pylsur fyrir alla, djús fyrir krakkana og öllari fyrir þá eldri. Mér finnst þetta frekar fyndið, að drekka bjór í leikskóla, en svona er þetta víst hér í Dk.

Við fórum svo í tvöfalt barnaafmæli á laugardaginn í Katrinelund. Veðrið var æðislegt og mér tókst að brenna... en fékk samt engan lit .. like always Óákveðinn.

Svo fór ég heim og þreif ALLT... fjúff þvílíkur léttir Brosandi.

Um kvöldið var mér síðan boðið í mat og Eurovisionpartý til Hjördísar og Ingvars.
Binni ákvað að vera heima og nota helgina í lærdóm. En hann og strákarnir kíktu samt yfir til Sighvats og Eddu fengu þar dýrindis grillaða pizzu Ullandi.
Við Hjördís kíktum svo aðeins útá lífið og viti menn ég var komin heim fyrir kl. 7 Glottandi, ég var meira að segja komin kl. 3 það var voða rólegt í bænum og við kíktum bara á einn stað en það var samt mjög gaman hjá okkur.

Á sunnudaginn hjóluðu ég og strákarnir í heimsókn til Hörpu, Hrannars og Elsu. Það var voða fjör, þau léku sér inni og úti og voða gaman.

Það eru miklar speguleringar hjá Ásbirni þessa dagana um skógarlús!
Þegar indíánavikan var í skólanum hjá honum voru þau úti skógi alla daga og þegar hann kom heim eftir skóla var hann tékkaður í bak og fyrir af skógarlús.
Skógarlús sest á líkamann, helst á staði eins og bak við eyru, bak við hnéskelina, nára o.þ.h. hef ég heyrt og þar stingur hún sér inn og sígur blóð og belgist út eftir því hvað hún nær miklu blóði. Og maður verður að passa að taka hana varlega út með sérstakri töng svo hún kremjist ekki eða brotni ekki með halann inní húðinni því þá getur komið smit sem leiðir til lömunar. En allavega... þá ákvað ég að "hræða"/ eða bara segja Ásbirnir rétt frá þessu svo hann færi ekki að kroppa í þetta ef hann fengi svona. Sagði honum að leita til einhvers fullorðins ef hann fyndi eitthvað. Og nú eru hann og vinir hans þvílíkt að velta sér uppúr þessu - sem er bara gott, að ég held!
Ég veit ekki hvernig þessi vera lítur út og hef bara heyrt um hana, en allur er varinn góður Brosandi.

Jæja best að hætta núna. Ég er búin að vera svo lengi að skrifa þetta og vona því að færslan þurrkist ekki út!

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Slæmur ávani.

20. maí 2008 klukkan 18:49

Ég var að lesa blaðagrein um daginn þar sem lesandi skrifaði til ráðgjafa.

Hún var að biðja um ráð varðandi kærasta síns. Eftir að þau fóru að búa saman komst hún að því að hann gengi með bleiu Hissa. Hann sagði ástæðuna fyrir bleiu notkuninni vera að hann fékk svo litla umönnun í æsku og þetta veitti honum öryggiskennd. Hún bannaði honum að ganga með bleiu þegar hún sá til og er búin að líta framhjá þessu í einhvern tíma því hún elskaði hann svo mikið. Svo fór hún að hugsa til framtíðar... t.d. þegar þau myndu eignast börn. Hvernig fyrirmynd yrði pabbinn börnunum  þegar hann notar sjálfur bleiur.

Greinin endaði þannig að henni var ráðlagt að fara frá honum ef hann myndi ekki hætta á bleiu.

 

En pæliði í því, að hitta kannski rosa flottan gæja Svalur og komast svo að því að hann gengi með bleiu, BWAHAHAHAHA...... Brosandi

 

Það hafa svo sem allir einhverja slæma ávana.

Ég á allavega nokkra. Og sá versti eins og er, er að ég get ekki haldið mér vakandi í strætó!!!

Þetta er orðið eiginlega alveg ferlegt því ég sef fastar og fastar með hverri ferð. Venjulega vakna ég við hvert stopp og reisi mig við meðan fólkið gengur inn og svo er ég alltaf vöknuð áður en keyrt er inní AAbenraa. En í gærmorgun vaknaði ég rétt hjá rútustöðinni og strætó fullur af nýju fólki. Svo sef ég sitjandi með hangandi haus og þegar ég vakna er slefið við það að leka út Skömmustulegur – NÆS.

Á heimleiðinni í dag þurfti ég virkilega að hafa fyrir því að halda mér vakandi og það tókst.

 

Annars er bara allt fínt að frétta...

Það hefur kólnað svolítið í veðri.

Strákarnir eru bara hressir.

Það er indíána vika í skólanum hjá Ásbirni og hann fer í skóginn á hverjum degi í indíánabúning og málaður í framan, þar er farið í allskonar leiki og voða gaman.

 

Fullt af nýjum myndum í myndaalbúmi.


 
      
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Kannski kominn tími á smá blogg!

18. maí 2008 klukkan 11:10
Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur að undanförnu.

Á síðasta laugardag komu Jóna Björk og fjölskylda í heimsókn og gistu eina nótt. Það var mjög gaman og krakkarnir náðu svo vel saman. Þegar þau fóru aftur var strax farið að rukka um næstu heimsókn Brosandi.
Takk fyrir heimsóknina Hlæjandi.

Á sunnudeginum skellti ég mér í Go Kart með Ísl. félaginu. Hehemmm....
Ég held það sé nóg að lýsa því hvernig mér gekk með því að segja:
Ef þetta hefði verið traktorakeppni þá hefði ég KANNSKI komist í úrslit Skömmustulegur... en þetta var samt mjög gaman... nei, nei ég er ekkert tapsár... gengur bara betur næst Svalur.
Á sunnudagskvöldið komu Lísa systir hans Binna og fjölskylda í heimsókn. Við vorum að reyna að rifja upp hvenær við hittumst síðast og það eru örugglega komin ca. 3 ár, en þau búa í Noregi.
Á mánudeginum fórum við öll saman í Legoland og Elsa og Svanur líka. Það er nú alltaf gaman að koma þangað Brosandi. Það er komið sjóræningjaland þar líka og við fórum útá bát og sigldum einhverja leið og áhorfendur gátu sprautað á okkur vatni og við á þá, EN áhorfendur sprautuðu niðurávið en við uppávið og það var gjörsamlega ekki þurr þráður á okkur eftir þessa siglingu, en við vorum fljót að þorna í blíðunni Brosandi.

Ég er búin að vera mikið í vinnunni síðustu viku. Var á námskeiði fram á kvöld og svo er svolítið happ og glapp að ná strætó Óákveðinn.
En það er orðið aðeins meira að gera hjá mér. Ég finn nú ekki dagamun, heldur kannski vikumun á því að það sé að aukast hjá mér... þolinmæði takk Brosandi.
Ég fékk síðan mail á síðasta fimmtudag og var boðin vinna á snyrtistofu hér í Sönderborg. Það voru bara 10-15 tímar í viku og svo myndi það aukast með haustinu.
Ég bauðst reyndar til að vinna hjá henni einn dag í viku og svo kannski annan hvern laugardag meðan það væri svona lítið að gera hjá mér en svo sá ég eftir því því ég tók eftir að það er að bókast meira og meira inn hjá mér. En ég hef ekki fengið svar frá henni aftur, vona eiginlega að hún taki því ekki.

Á föstudaginn kom Einar hingað færandi hendi. Hann var á skytteríi og gaf okkur Bambakjöt. Ummm...
Í kvöld verður bambapottréttur í matinn, spennandi að sjá hvernig það smakkast Brosandi.
Það er ekki nóg með að bambi sé lítill og sætur, heldur bragðast hann líka vel!
Við Binni vorum einmitt að ræða það að við getum nú ekki sagt strákunum að við séum að borða bamba! Segjum frekar að þetta sé lamb! Það hljómar eðlilegra. Þeir spá alveg í hvernig kjöt við erum að borða hverju sinni. Jóhann Ingi var einu sinni að telja upp uppáhalds matinn sinn og m.a. nefndi hann: dauð hæna sem búið er að brenna! (hann hefur örugglega meint sem búið er að elda! Hann er nú ekki vanur að fá brenndan kjúkling! Glottandi ).

Veðrið er búið að vera yndislegt hjá okkur og strákarnir sjást varla inni. Það eru fullt af krökkum hér í nágrenninu til að leika við og svo erum við komin með litla sundlaug í garðinn og trampólín... og svo eru þeir voða duglegir að drullumalla Ullandi.

Ásbjörn fór með vinkonu sinni í Katrinelund síðustu helgi og kom heim með Salemöndru í flösku. Honum fannst þetta voða sport en vissi ekkert hverju hún nærist á og bað mig að kaupa bók svo við gætum lesið okkur til um það! Greyið Salamandran var enn lifandi á fimmtudaginn og þá tókum við Ásbjörn rúnt í Katrinelund og skiluðum henni til "vina" sinna. Ég fékk bara meira og meira illt í hjartað með hverjum deginum að vita af greyið dýrinu og drepast úr hungri og leiðindum í plastflösku Gráta. Ásbjörn varð síðan bara líka sáttur við að sleppa henni Brosandi.

Þessi helgi er bara algjör letihelgi. Ég hef verið á leiðinni að sauma gardínur í svefnherbergið í 2 vikur!! En bara kem mér ekki í það. Það er nóg að hugsa 7 metrar af efni... æææ... geri það á morgun Skömmustulegur. Svo er bara alltof gott veður til að sitja inni og sauma.
Ég klippti trén í garðinum í gær og við Jóhann Ingi kíktum í göngutúr og svo lá ég í allt gærkvöld að glápa á sjónvarpið og nennti ekki að hreyfa mig Óákveðinn.

Jæja... kannski óþarfi að eyða deginum í dag í tölvunni!!!
 Farin út í góða veðrið Svalur
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Je dúdda mía...

09. maí 2008 klukkan 16:28
Það er svo hrikalega heitt úti að það er ekki verandi þar!
Binni keypti sundlaug handa strákunum í dag þannig að nú eru þeir úti að busla... og laugin að verða að drullupolli eða endar örugglega þannig Óákveðinn.

Jóhann Ingi er búinn að vera veikur mest alla vikuna, fékk astma og svo var hann heitur og slappur. En það var frekar asnalegt að banna honum að fara út, því það var miklu hlýrra þar heldur en hér inni. En hann var sem sagt bæði úti og inni í veikindunum Brosandi.

Ég keyrði til Árhús á þriðjudag og miðvikudag. Hræðilega leiðinlegt að keyra svona langt... alein í steik. En námskeiðið var fínt, ég ætti að geta bjargað mér með ansigtsbehandlinger núna.
Svo kom blaðamaður í gær og tók viðtal við mig og tók myndir... ég hata myndatökur og ég bara hreinlega festist ekki á filmu. En það verður spennandi að sjá greinina.
Það er búið að bóka smá inn hjá mér og svo eru samningsviðræður í gangi um að auglýsa í vikublaðinu í bænum.

Binni fór í hjólatúr áðan í nýju bleyjubuxunum sínum... haha... strákarnir gáfu honum þær í afmælisgjöf og þeim finnast þær svo fyndnar. Þetta eru hjólabuxur með púða í klofinu, alveg eins og sjúkrahús-beyja í stærð Hlæjandi. En hann er orðinn voða duglegur að fara út að hjóla.

Ég hef nú ekkert merkilegt að segja!!!
Það væri örugglega ekkert vitlaust að setjast aðeins út, áður en allt verður vitlaust í buslinu hjá krökkunum og kannski brenna smávegis eða vonandi fá smá lit!

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Frú Prússulína...

01. maí 2008 klukkan 12:07

Ég fékk fyrsta kúnnann minn í gær!
Og það er nú ekki frásögu færandi nema vegna þess að:

Þessi kona var að fá gervineglur og ég var að horfa á. Hún spurði mig síðan hvað litun og plokkun kostar... bíddu aðeins... hljóp í verðlistann og athuga!!!
Eftir neglur spurði hún hvort ég gæti litað hana og já no problemmó og fékk hana líka til að fá lit á augnhárin og í stað þess að hlaupa aftur fram og athuga hvað það kostar þá giskaði ég á verð. Augabrýrnar máttu ALLS ekki vera of dökkar þannig að ég þurrkaði litinn mjög fljótt af en endaði síðan á lita þær aftur því þær máttu vera aðeins dekkri.
Ég var alveg hrikalega skjálfhent, bara eitthvað stressuð með fyrsta kúnnann minn Skömmustulegur en liturinn fór samt á sinn stað!

Þegar konan var farin kíkti ég í verðlistann og sá að ég hafði rukkað greyið konuna of mikið Skömmustulegur og svo kom eigandinn æðandi til mín og spurði hvernig hafi gengið??? Og ástæðan var sú að þessi kona kemur reglulega til þeirra og þetta er týpa sem finnur að ÖLLU og er víst rosalega spes. Og svo hló hún bara að þessu... fysti kúnninn minn var Frú Prússulína og þakkaði fyrir að ég hafði ekki hugmynd um hvernig hún væri.
Hún kvartaði allavega ekkert yfir þessu, fannst brúnirnar pínu of dökkar en ég held hefði ekkert getað farið meiri milliveg. Svo er bara spurning hvort hún komi aftur???
Annars líkar mér bara mjög vel þarna. Eigandinn er æðisleg og það litla sem ég hef hitt af naglafræðingnum lofar góðu, hún er mjög fín.
Framundan er fullt af námskeiðum. Í næstu viku fer ég tvo daga til Árhús á námskeið hjá Murad og svo eru tvö námskeið í viðbót í mánuðinum, ég býst við að annað þeirra verði líka í Árhús.
Ég talaði við naglafræðinginn um nafn á "fyrirtækinu", hún er nafn á blómi á sínu fyrirtæki og sagðist ætla að breyta því og nota sitt nafn, því það er betri auglýsing, þannig að ég var að spá í að skíra mitt bara Agusta´s hudpleje. Mér finnst þetta reyndar mjög leiðinlegt nafn en... so what og það er líka erfitt að finna nafn sem er ekki til!

Í dag er frídagur og bara voða næs... sofið langt fram eftir. Óli vinur hans Ásbjörns gisti hjá okkur.
Við fengum síðan sms áðan um Jóhann Ingi var kominn í heimsókn til Brynjars sem er nágranni okkar. Minns var ekkert að láta okkur vita, tölti bara yfir á tásunum Svalur.
Svo er Ásbjörn búinn að eignast vinkonu sem býr í næsta stigagangi við okkur og er íslensk. Þau leika mjög vel saman og ég spurði Ásbjörn um daginn hvort honum þætti ekki gaman að leika við hana. Hann játti því og sagði síðan: Ef þú vogar þér að segja að hún sé kærastan mín... þá flyt ég að heiman. Hahaha...
En ég sagði nú bara að strákar og stelpur gætu alveg verið vinir án þess að vera kærustupar Glottandi.

Á morgun er grillveisla í Katrinelund og á laugardaginn koma Jóna og Haffi í heimsókn.
Strákarnir telja niður, þeir hlakka svo til að hitta Gabríel Brosandi.

Bless í bili...

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Rigning!!!

25. apríl 2008 klukkan 16:08
Það er eiginlega óhætt að segja að það hafi rignt yfir mig atvinnutilboðum Hlæjandi. Ég var eiginlega komin með í magann á tímabili því ég var að bíða eftir svari á einum stað og á meðan biðu þrjú önnur tilboð!

En nú ert allt komið í ró... eða þannig!
Ég fékk svar í dag um vinnuna sem ég vonaðist eftir og byrja þar á mánudaginn. Þetta er á snyrtistofu í Aabenraa sem heitir Ck kosmetisk klinik, þar leigji ég stól og aðstöðu þannig að nú er ég að vinna í því að stofna fyrirtæki, sækja um kennitölu og finna nafn o.þ.h.
Þarna eru líka hjúkrunarkona og naglafræðingur og við vinnum allar saman, þannig séð að ef önnur af okkur getur hjálpað kúnnanum betur þá bendum við á þá manneskju.
Og ég hlakka bara mikið til að byrja og er viss um að þetta verður góður skóli og mér er líka velkomið að fylgjast með því sem hinar eru að gera og gæti lært mikið af því. Framundan hjá mér eru námskeið í hinu og þessu og ég ætla að vera dugleg að kynna mér nýjungar sem ég get boðið kúnnum uppá Glottandi. Og annað sem er gott við þetta er að ég ræð mér og mínum vinnutíma algjörlega sjálf en nú er bara aðal atriðið að fá inn kúnna.

Helgin hjá okkur er orðin full bókuð! Binni fer á tónleika í kvöld og svo á karladaginn á morgun og svo eru tvö barnaafmæli um helgina, og svo á mánudaginn á Binni afmæli. Þannig að það verður mikið fjör hjá okkur Brosandi.

Það er nú eiginlega lítið annað að frétta af okkur!

Skrifa bara meira seinna.

Góða helgi Svalur.

Eða eitt enn...
Ef þið lumið á góðu nafni fyrir "snyrtistofuna mína" þá meigið þið alveg láta mig vita, samt eitthvað nafn sem útlendingar geta borið fram Glottandi.
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Home sweet home!

20. apríl 2008 klukkan 19:48

Fríið var alveg yndislegt. Þetta var svona eins og lítið þorp og þar var allt til alls, verslun, bakarí, slátrari, leiksvæði o.fl. og auðvitað sund. Íbúðin var líka mjög fín Brosandi. Við eyddum ca. 3 klst. í sundi á dag!! Þetta var mjög flottur baðgarður og nokkrar rennibrautir þar. Ég byrjaði á að skella mér í eina sem ég hélt að væri ekkert svo slæm... en ó my god! Það var ekki fræðilegur möguleiki að hægja á sér á leiðinni og undir það síðasta var ég farin að halda inní mér andanum, en það voru bara nokkrar sekúndur (eða sekúndubrot!), ég ætlaði ekki að þora í næstu... ég er orðin svo mikill kjúklingur með aldrinum Óákveðinn, en lét mig hafa það og þurfti eiginlega að ýta mér áfram þar og strákarnir fóru líka í þá rennibraut marg oft. Jóhann Ingi fór einu sinni einn í þá rennibraut en fór svo hægt að það tóku tveir frammúr honum á leiðinni!!! Svo var margt annað skemmtilegt þarna. Það var bara ein íbúð á milli okkar og Möggu Lukku og co. og voða næs hjá strákunum að geta hlaupið á milli íbúða og leikið og svo var líka voða gott á kvöldin, þá vorum við öll saman í annarri íbúðinni og krakkarnir fóru bara að sofa og svo bárum við þau bara á milli.
Við vorum komin heim um kl.15 í dag, þetta er ekki nema 2 klst. keyrsla héðan. En það er alltaf gott að koma heim í raunveruleikannBrosandi.
Og eitt enn! Við smökkuðum ógeðslegasta hamborgara EVER þarna! Þetta var eins og Mc Donalds brauð með kjöti (farsi), steiktum lauk, súrum gúrkum með lekandi safa, káli, tómatsósu og remolaði Öskrandi, þvílíkur vibbi!

Það er búin að vera þvílíkt gott veður hér í dag og var víst þannig alla helgina. Við sátum hér úti alveg að stikna. Strákarnir komust í Tarzan fílinginn sem fylgir sumrunum, þ.e.a.s. þeir voru bara á naríunum úti. Og það er víst spáð áframhaldandi blíðu Svalur.

Ég var agalega bjartsýn fyrir kvöldmat! Var að hugsa um að fara út að skokka...hahahaha... ég veit... fyndið!!!!!
Eftir mat var ég að springa svo ég endaði í góðum hjólatúr, með viðkomu hjá Dagmar. Ég hjólaði örugglega í klst. en varð að drífa mig heim því það var farið að dimma og ég gleymi næstum alltaf að taka með ljós á hjólið Óákveðinn

En mig dreymir ennþá um að koma mér í gott form og ÆTLA að gera það. Ég ætla að labba yfir Leggjabrjót í sumar og þá er örugglega gott að vera í góðu formi Glottandi og svo er náttúrulega möst að fara upp Glym og Akrafjallið má ekki verða útundan. Það verður greinilega nóg að gera hjá mér í sumar Brosandi.

Á morgun fer ég til Aabenraa að sækja um vinnur. Ég ætla að labba á snyrtistofur þar í bæ, gaman, gaman.

Ef ég fer ekki að fá vinnu þá held ég að það endi með að ég fari til Íslands að vinna! Það er bara svo flókið... Óákveðinn
En það er óskandi að ég fari að komast í vinnu.
Ég er líka búin að vera að sækja um á sambýlum og elliheimilum en það virðast aðallega vera ráðið þar inn faglært fólk!

Jæja.....

Bið að heilsa í bili...
                                Over and out!!!!!!

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Fíkn!

15. apríl 2008 klukkan 19:14
Af hverju í ósköpunum verður maður fíkill?
Hvað ætli valdi því?
Ég er haldin fleiri en einni fíkn og ein af þeim er Bubbles Öskrandi. Ég sem hélt ég væri löngu búin að afeitrast en.... annað kom á daginn. Ég gæti gleymt mér tímunum saman, kalin á puttum og tám (það er svo hrikalegur gólfkuldi og bara ískalt á illa einangruðum svölunum sem tölvan stendur á) ef ég þyrfti ekki að hugsa um aðra en sjálfa mig líka. Ég er meira að segja ekkert skárri en strákarnir: "bíddu aðeins, ég er alveg að koma" !!!! Svo er ég búin að ákveða að taka síðasta leikinn, nei, nei bara einn í viðbót eftir hann og ef sá leikur gengur illa... þá bara einn í viðbót. Frekar pirrandi Óákveðinn. Svo er ég haldin annarri fíkn: reykingum! Það eru allir að hætta að reykja í kringum mig EN mig langar bara ekkert að hætta. Ég skil bara ekkert í mér Ullandi.

Íslandsferðin var yndisleg... bara að hún hafi ekki liðið svona hratt Óákveðinn. Það vantaði alveg einn dag í viðbót (og helst fleiri).
Þetta var rosa span og ég náði ekki að hitta alla sem mig langaði að hitta. Ég skaust á milli húsa og sagði hæ einn daginn, fór svo á hestbak annan daginn og djammaði fram á næsta dag og svo skaust ég aftur á milli húsa og sagði bæ.
En ég vona að við komumst til Íslands í júní.

Ég sagði strákunum bara að ég væri að fara í ferðalag og þeir spurðu ekkert meira útí það en þeir eru búnir að fatta að ég var á Íslandi, ég kom með svo mikið nammi heim og svo fengu þeir gjafir frá ættingjum þannig að þeir kveiktu alveg á perunni Glottandi. Þeir hlakka til sumarsins og spurja oft hvenær það kemur, því þá eru þeir að fara til Íslands.

Þetta er frekar skrýtið. Ég er aldrei með heimþrá en þegar ég er búin að vera á Íslandi og fer aftur til Dk. þá fæ ég heimþrá!

En allavega þá var alveg yndislegt að hitta alla þó það hafi verið stutt Brosandi.

Í dag þurfti ég að mæta kl. 8,30 á kommúnuna og búa til atvinnuumsókn til kl. 14,30. Og þannig á það að vera næstu 2 vikur, þ.e.a.s. ef ég fæ ekki vinnu fyrir þann tíma. Og svo held ég að ég eigi að sækja um 3 vinnur á dag í gegnum netið! Brjálað stuð eða þannig.

Í síðustu viku fór ég á löggufundinn. Ég er enn með aldur eða til 31 árs í síðasta lagi en námið tekur 3 ár og helmingurinn af þeim tíma er skóli í Kaupmannahöfn, þannig að ég get bara gleymt þessu Óákveðinn.

Ekki á morgun, heldur hinn er Deutschland Hlæjandi. Ég á enn eftir að kaupa mér sundföt og er enn ekki farin að grennast þannig að ég verð bara að kaupa stóran sundbol Óákveðinn. Haha... en það kostaði nú ekkert að láta sig dreyma um minni stærð Glottandi.

Jæja, best að fara að hlýja puttana fyrir næsta Bubbles leik og sækja ullarsokka Glottandi.

Bless í bili...

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan