Tvö í kotinu.
30. mars 2007 klukkan 19:15
Já nú erum við Jóhann Ingi bara tvö heima. Ósköp tómlegt hjá okkur. Hann er rosalega duglegur að fara í leikskólann og bara mjög sáttur en spyr samt reglulega um Ásbjörn og pabba sinn. Í dag fékk hann að fara heim með Tristan vini sínum eftir leikskóla því ég hefði ekki náð að sækja hann fyrir lokun og hann var mjög glaður með það. Hann heilsaði mér ekki einu sinni þegar ég kom að sækja hann, heldur sagði hann: ég vil ekki fara heim!!! En við stoppuðum smá stund og ég fékk mér kaffisopa. Svo var hann alveg búinn á því og sofnaði fyrir kl. 20. Vona bara að hann vakni ekki um kl. 7 í fyrramálið
.
Það er svo hrikalega lítið að frétta að ég er bara galtóm. Síðustu dagar hafa bara gengið útá skóla, borða og sofa.
Ég þykist ætla vera dugleg að læra um helgina, það er skriflegt og verklegt próf eftir 2 vikur
, ég er strax komin með kvíða fyrir því. Og eftir prófin byrjum við að vinna á snyrtistofunni, með kúnnana. Það verður eitthvað skondið!! Því við þurfum að tala við kúnnana og ráðleggja þeim o.þ.h. Ó my god!!!
En ég ætla að hætta að reyna að teygja þetta bull í mér. Skrifa meira á sunnudag ef við finnum okkur eitthvað skemmtilegt að gera um helgina
.
Knús og kremjur....
Það er svo hrikalega lítið að frétta að ég er bara galtóm. Síðustu dagar hafa bara gengið útá skóla, borða og sofa.
Ég þykist ætla vera dugleg að læra um helgina, það er skriflegt og verklegt próf eftir 2 vikur
En ég ætla að hætta að reyna að teygja þetta bull í mér. Skrifa meira á sunnudag ef við finnum okkur eitthvað skemmtilegt að gera um helgina
Knús og kremjur....
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Þegar mér dettur eitthvað sniðugt í hug..og fer í tölvuna til að skrifa niður þá man ekki hvað ég ætlaði að skrifa....bú hú :-(
Eigið góða helgi ....kveðja
Ég bíð spennt eftir sunnudeginum og ferskum fréttum ;)
Knús og kremjur,
Bogga og co