Þvílík blíða...
01. apríl 2007 klukkan 17:58
Það er búið að vera æðislegt veður um helgina, ekta peysuveður.
En samt eru margir danir ennþá í úlpum og sumir með trefla -ruglað lið!!! Það vantar ekki köngulærnar í blíðunni og það eru hlussu býflugur á sveimi og eitt kvöldið heyrði ég meira að segja í #%$#!#...mýflugum (moskitoz). En þetta hlýtur bara að þýða það að vorið er komið
.
Okkur Jóhanni Inga hefur nú ekkert leiðst. Á laugardagsmorgun kl.10 vorum við mætt á bókasafnið í páskaföndur. Alexander og Magga komu með okkur. Þetta var nú frekar flókið föndur fyrir þá þannig að við Magga sáum um þetta og þeir teiknuðu á egg og voru svo bara að leika sér og spila. Eftir föndrið fórum við útí búð og keyptum fötu og skóflu og fórum í sandkassann að leika og um kvöldið fórum við á uppáhaldið hans Jóhanns: Mc´donalds. Í dag fórum við á smá búðarráp og um miðjan dag fórum við í Katrinalund (pik nik staðinn okkar) með Alexander, Móniku Rós og foreldrum þeirra og grilluðum þar pylsur og krakkarnir léku sér á fullu. Við Jóhann Ingi fórum hjólandi, hann er orðinn svo rosalega duglegur að hjóla og miklu fljótari en hann var fyrir ekki svo löngu síðan. Svo hefur bara verið bað og dúllerí fram að háttatíma
.
Á aðfaranótt laugardags fékk Jóhann Ingi martröð. Hann kipptist við og vældi og slóg til höndum. Mér var alveg hætt að lítast á þetta og reyndi að tala við hann, en það eina sem ég skildi var að hann benti að glugganum og sagði að einhver vondur væri þar
. Svo hélt hann áfram að láta svona illa og ég var bara orðin hálf hrædd og byrjaði að krossa allt í kringum mig (höhömmm...) og svo ákvað ég að reyna að vekja hann aftur og tókst það og gat talað við hann. Þá hafði hann dreymt að það væri stór maríuhæna að skríða upp hálsinn hans. Það var sem sagt málið og ég þurfti að marg endurtaka að maríuhænur væru bara litlar og þær kæmust ekki inn til okkar því við ættum heima svo hátt uppi, en það var ekkert alveg að virka því hann vissi að þær gætu flogið! En mér tókst að róa hann á endanum og hann sagðist ekkert vera hræddur við maríuhænur. Það sannaðist líka í dag þegar hann tók eina upp og leyfði henni að hlaupa um í höndunum á sér og kramdi hana annað slagið ef hún fór í vitlausa átt
. Konurnar á leikskólanum eru mjög duglegar að sýna þeim allskonar skordýr og flugur. En Jóhanni er mjög illa við köngulær og býflugur/geitunga, Ásbjörn er samt eitthvað rólegri yfir þessu.
Ég ætlaði nú að nýta mér kvöldið í að læra eitthvað, það var ekkert alltof auðvelt meðan grísinn var vakandi. Hann var kannski duglegur að leika sér og ég hafði ekki heyrt í honum nokkra stund og ákvað að nota tækifærið á meðan og læra, en þegar ég var rétt sest og stólinn ekki einu sinni orðinn volgur þá heyrðist: MAMMA.....
Þannig að núna ætla ég að drífa þetta af, illu er best af lokið
.
Bless í bili....
En samt eru margir danir ennþá í úlpum og sumir með trefla -ruglað lið!!! Það vantar ekki köngulærnar í blíðunni og það eru hlussu býflugur á sveimi og eitt kvöldið heyrði ég meira að segja í #%$#!#...mýflugum (moskitoz). En þetta hlýtur bara að þýða það að vorið er komið
Okkur Jóhanni Inga hefur nú ekkert leiðst. Á laugardagsmorgun kl.10 vorum við mætt á bókasafnið í páskaföndur. Alexander og Magga komu með okkur. Þetta var nú frekar flókið föndur fyrir þá þannig að við Magga sáum um þetta og þeir teiknuðu á egg og voru svo bara að leika sér og spila. Eftir föndrið fórum við útí búð og keyptum fötu og skóflu og fórum í sandkassann að leika og um kvöldið fórum við á uppáhaldið hans Jóhanns: Mc´donalds. Í dag fórum við á smá búðarráp og um miðjan dag fórum við í Katrinalund (pik nik staðinn okkar) með Alexander, Móniku Rós og foreldrum þeirra og grilluðum þar pylsur og krakkarnir léku sér á fullu. Við Jóhann Ingi fórum hjólandi, hann er orðinn svo rosalega duglegur að hjóla og miklu fljótari en hann var fyrir ekki svo löngu síðan. Svo hefur bara verið bað og dúllerí fram að háttatíma
Á aðfaranótt laugardags fékk Jóhann Ingi martröð. Hann kipptist við og vældi og slóg til höndum. Mér var alveg hætt að lítast á þetta og reyndi að tala við hann, en það eina sem ég skildi var að hann benti að glugganum og sagði að einhver vondur væri þar
Ég ætlaði nú að nýta mér kvöldið í að læra eitthvað, það var ekkert alltof auðvelt meðan grísinn var vakandi. Hann var kannski duglegur að leika sér og ég hafði ekki heyrt í honum nokkra stund og ákvað að nota tækifærið á meðan og læra, en þegar ég var rétt sest og stólinn ekki einu sinni orðinn volgur þá heyrðist: MAMMA.....
Þannig að núna ætla ég að drífa þetta af, illu er best af lokið
Bless í bili....
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Þetta hefur verið fínasta helgi hjá ykkur, það er alltaf gaman þegar vorið kemur og hægt er að leggja úlpunum í bili.
Þú hefðir átt að vera með okkur í gær, hér var rosa fjör og vantaði bara þig!. Þú verður að fá fréttir hjá Binna frá kvöldinu.
KNús og kremjur, Bogga
Ég er svo abbó út í þig varðandi veðrið væri sko alveg til í sól og blíðu...nú er bara að vona að sú gula láti sjá sig....en það er byrjað að hlýna á fróni..
Hafið það sem allra best ......kossar og knús