Gasgríma óskast!!!

09. apríl 2007 klukkan 21:35
Úff... hvað ég og reyndar við öll hér á heimilinu erum búin að éta yfir okkur af súkkulaði og gúmmulaði. Greyið maginn minn, mátti nú ekki alveg við þessu.
En hvað um það. Við erum samt búin að hafa það voðalega huggulegt yfir páskana. Veðrið hefði nú alveg mátt vera betra, það er búið að vera milli 10° og 15° en vindur og hálf rigningarlegt, vantaði alveg sólina. Við létum veðrið samt ekkert stoppa okkur. Á fimmtudaginn fórum við að gefa öndunum brauð en aldrei þessu vant þá voru þær bara ekkert svangar Óákveðinn, þannig að strákarnir voru farnir að narta í fuglabrauðið. (Ég væri nú alveg til í að vera eins og endurnar!!! Þ.e.a.s. að borða ekki þegar ég er södd.) Þegar við vorum orðin þreytt á að kasta brauðmolum í hausinn á "vanþakklátum" öndunum fórum við í kastalann hér í bæ (Sönderborg slot). Þar er safn sem nær aftur til 15 aldar, mjög athyglisvert. Þar var líka í gangi eitthvað fyrir krakka. Þau gátu málað listaverk og þar var listasýning eftir börn. Live tónlist og alles Glottandi.
Á föstudaginn um hádegisbilið datt okkur í hug að drífa okkur í Lególand. Þannig að það var drifið í að smyrja nesti A LA dansk (við erum orðin svo dönsk, með nesti!!) Og svo var brunað af stað. Lególand svíkur engan þannig að það þarf varla að lýsa þeirri ferð Hlæjandi. Nema að við hefðum mátt vera klukkutíma fyrr á ferðinni og veðrið hefði mátt vera betra. Á heimleiðinni fórum við síðan á MC´donalds, mjög hátíðlegt Glottandi. Á laugardaginn fórum við í páskabingó hjá Íslendingafélaginu. Það voru alls konar páskaegg í verðlaun, m.a. Nóa Síríus egg. En við unnum ekkert. Það kom mér svo sem ekkert á óvart því ég vinn ALDREI í neinu, nema þá kannski í Ólsen, ólsen eða þess háttar spilum!!! En maður spilar til að vera með, ekki satt?? (ein að reyna vera jákvæð Hlæjandi). Eftir Bingóið kom Tristan, vinur strákanna í heimsókn. Hann var svo sætur að hann gaf Jóhanni Ingi gamla hlaupahjólið sitt. Þvílík himna sending, ég segi nú ekki annað. Jóhann er búinn að vera á fullu á hlaupahjólinu, gjörsamlega í skýjunum og hann ætlaði sér meira að segja að sofa með það fyrstu nóttina Saklaus, en greyið á svo leiðinlega foreldra....
Strákarnir eru búnir að vera meira en minna úti að leika alla páskana á hlaupahjólum og Ásbjörn er líka búinn að vera að æfa sig á línuskautunum. Hann byrjaði að æfa sig á þeim fyrir þrem dögum síðan og er orðinn svoo.. duglegur.
Á páskadag vorum við eiginlega frekar löt. Ég bakaði reyndar tvær kökur og svo fórum við í smá hjólatúr og komum við á róló.
Í dag fórum við í heimsókn til Tristans, strákarnir náttúrulega úti að skauta og á hlaupahjólum (J.I. alltaf trítlandi á eftir þeim á hlaupahjólinu). Þar fengum við kaffi og þessar fínu rjómatertur umm...
Og á morgun ætlum við Valgerður að taka bæjarrölt og kíkja í búðir.
Og... á miðvikudaginn fer Valgerður svo aftur heim til Íslands Fýldur. Mér kvíður nú bara fyrir því, ég á eftir að sakna hennar svo mikið. Það er svo fínt að hafa hana hérna.

En jæja þá í þetta sinn. Ég ætla rétt að vona að þessi færsla klikki ekki, eins og sú síðasta. Djö.... var ég fúl.

Knús og kremjur.....
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Dísa skrifar ...
Þetta hljómar bara svakalega vel ...væri sko alveg til í að hafa svona helgi....hérna megin var bara legið í leti og étið súkkulaði.....ekki farið neitt.
En vonandi fer maður að hreyfa sig meira þegar unginn kemur. :-)
10. apríl 2007 klukkan 12:59
sibba skrifar ...
 
hæhæ það er alltaf svo gaman hjá ykkur . Rosa fjör alltaf að lesa bloggið en við biðjum að heilsa krakkarnir eru núna á fullu úti að leika sér í snjófölinni :-=)
10. apríl 2007 klukkan 14:00
hæhæ!!!
Miðkið er gott að vita að þið höfðuð það svona gott!!!
Annars hafði ég það ekki sem verst sjálf yfir páskanna sko.. Ég og Jökull fórum nú í mat til Boggu og Tóta á páskadag ;) Það var rosa gaman!!
Svo var reynt að éta páskaeggið, en listin var nú ekki mikil á öllu þessu súkkulaði, þannig reynt var að narta svona aðeins í það !!
En já annars var valgerður að koma hingað heim, með ferðatöskuna sína í eftirdragi.. hún ætlaði nú varla að geta lyft henni yfir þröskuldinn hérna!!
hehe enda ekkert smá sem krakkinn verslaði ;) Og hleðslutælið passaði í símann.. Takk kærlega fyrir það ;) En já það er best að halda áfram með
að skrifa ritgerðina um Martein Lúther !!! húff ;)
Bið alveg innilega að heilsa öllum ;) kiss kiss Elísabet Frænka ;)
11. apríl 2007 klukkan 20:24
Dísa skrifar ...
Hæ hæ
Á ekki að fara skrifa einhverjar fréttir hér????.......koma svooo.....!!!!
Skiljanlega er mikið að gera hjá þér...skóladama....en það má samt ekki gleyma okkur hérna sem bíðum eftir fréttum snökt snökt :-(
Kveðja
16. apríl 2007 klukkan 15:01
Ágústa skrifar ...
 
Ég er búin að vera að læra undir próf sem er á morgun (þriðjudag), þannig að ég lofa að blogga á morgun ;o) Hef ekki samvisku í að hanga of mikið í tölvunni þegar ég á að "þykjast" vera að læra!!!

Knús...
16. apríl 2007 klukkan 17:09

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan