Skítafýla í brælunni!!!
17. apríl 2007 klukkan 19:29
Það er sem sagt eintthvert áburða tímabil hjá bændum þessar VIKURNAR. Jeminn eini, þvílík stibba. Ég keyri 2 klst. á dag (í og úr skóla) og ég er ekkert viðkvæm fyrir fýlu en þessi....
Ég ætlaði nú ekki bara að tala um skítafýlu en ákvað samt að leyfa ykkur að reyna að upplifa daglega aksturinn með mér
Það var geggjað veður um helgina, en ég fór eiginlega ekkert út. Ég ætla sko ekkert að vera fá einhverja helv... brúnku á mig, má ekki við því... NOT...
En Binni og strákarnir voru mjög aktívir. Á laugardags morgun fóru þeir í sund með Tristani og pabba hans. Svo komu þeir heim og fengu sér SS pylsur og fóru svo heim til einnar konu sem vinnur á leikskólanum hjá strákunum og fengu að skoða íslensku hestana hennar. Þetta var ansi góður rúntur hjá þeim og allir voru hæst ánægðir með daginn. Svo gisti Tristan hjá okkur, þannig að þeir léku sér allan daginn, bæði inni og úti. Og næsta dag drifu þeir sig beint út að leika og hjálpuðu svo Binna við að bóna og þrífa bílinn (ekki veitti af!!! höhömm..). Svo fóru þeir útá bryggju í ísbúðina þar og keyptu sér ís og á meðan æfði ég mig í plokkun og litun og litun á augnhárum, ég held það hafi bara heppnast ágætlega!!!
Í dag fór ég í próf. Bæði bóklegt og verklegt. Við Jóna lærðum svo mikið að það var ekki orðið pláss fyrir meira í hausnum á mér. Ég var farin að rugla öllu saman. En þetta tókst samt. Við náðum allar í bekknum en fengum samt enga einkun, það var reyndar ekki einu sinni setið yfir okkur meðan við vorum í verklega prófinu, bara kíkt inn öðru hvoru!!! Ég hef bara aldrei kynnst öðru eins prófi. Á morgun byrjum við að vinna á snyrtistofunni í skólanum, ó my god, það á eftir að vera eitthvað skrautlegt.
Svo gleymi ég einu!!
Á síðasta föstudag bauð Dagmar mér í heimsókn. Hún og Sólveig ætluðu að fá sér smá hvítvín. Ég skellt mér auðvitað -neita ekki hvítvíni!!! Sólveig var allt kvöldið að dekra við okkur og tók okkur í franskt pedicure (m.ö.o.tók táneglurnar í gegn og setti gel framan á neglurnar og lakkaði) og nuddaði og alles. Ég hef aldrei á ævinni verið með svona flottar tásur og er alltaf að monta mig, berfætt í sandölum
Já svona var nú það... fyllerí, skítafýla og lærdómur, mjög spennandi, ekki satt!!!!
Verð að fara að hætta þessu bulli... vinna á morgun
Bless í bili...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Ég fer alla vega brosandi í háttinn í kvöld :-D
Knús og kremjur,
Bogga
en fyllerý, lærdómur og fjör þetta hljómar mjög spennandi
Væri alveg til í svona surprice djamm.....en verð víst en að bíða ...það er bara ekkert að gerast hjá mér :-(
En takk fyrir frábært blogg....hló hressilega af lýsingunum.....SNILLD
Knús og kossar :-)
frábært að það gengur vel í skólanum:) ég flyt sennilega ekki fyrr en í lok júlí.. þannig að ég kem pottþétt í heimsókn áður en ég flyt:)
kveðja Arnar Daði