Skallapopparar!!!
22. apríl 2007 klukkan 20:13
jiii... ég var að snoða strákana áðan!!! Þetta er í fyrsta skiptið sem þeir fá að vera snoðaðir og þeir eru bara svoo.. sætir svona
og ekki spillir fyrir að þeir eru orðnir svolítið brúnir
, algjörir töffarar. Binni "fékk nú ekki grænt ljós" frá mér um snoðun þannig að hann lét sig hafa það að vera klipptur mjög stutt. Hann býr sko með Grýlu
. Við vorum sem sagt að koma frá Jónu og Gunna. Jóna hjálpaði mér við að "kantskera" strákana og sjænaði svo Binna og svo var okkur boðið í grill til þeirra, uummm... það var hrikalega gott, það var orðið ansi langt síðan við höfum fengið alvöru grillmat. Ég og Ásbjörn fórum til þeirra á línuskautum, þau búa í hinum enda bæjarins en Ásbjörn er orðinn svo duglegur á skautunum og þetta gekk bara mjög vel. Svo skautaði ég ein heim. Er eitthvað að þykjast vera dugleg
.
Í gær (laugardag) skruppum við til Þýskalands að versla í matinn. Við höfum aldrei áður verslað svona mikið á einu bretti, en við fylltum heila innkaupakörfu og það hrundi næstum úr henni!!!
Svo var okkur boðið í pönnsur til Árnýjar (já það er ekkert diet þessa dagana
), meira að segja með rjóma, nammi,namm... Og til að toppa allt átið á okkur pöntuðum við okkur ekta ítalskar pizzur á Bella Ítalia, bestu pizzur ever.
Í dag fengum við Móniku Rós í heimsókn til okkar, (hún er nokkrum mánuðum yngri en J.I.) Algjör dúlla. En þau voru úti að leika sér í allan heila dag.
Það er ekkert búið að vera alltof hlýtt undanfarna daga en það á eitthvað að hlýna næstu viku. Ég vona að það standist.
Svo er ég byrjuð að vinna á snyrtistofunni í skólanum. Það hefur gengið vel. En djö... var ég stressuð fyrsta daginn. Ég fann alveg stress skjálfta í höndunum á mér annað slagið þegar ég var með fyrsta kúnnann og svo hef ég verið svo stíf í skrokknum að ég fékk þennan dúndrandi hausverk. Ég hef sjaldan fengið svona hrika illt í hausinn og það lagaðist ekkert fyrr en ég kom heim og fékk pillu og lagði mig, næsta dag hef ég verið eitthvað afslappaðri, ég fékk allavega ekkert í hausinn!!!
Ég átti reyndar að gera baknudd annan daginn og gerði allt það sem ég var búin að glósa niður um nuddið, en málið var að ég átti að nudda í 20-30 mín. og var löngu búin að gera það sem stóð á blaðinu áður en tíminn var liðinn, það var enginn kennari nálægt þannig að ég fór bara að bulla eitthvað, kúnninn kvartaði ekkert þannig að þetta hlaut að vera í lagi!!!
En þessi skóli er nú ekkert eins mikið "jahú" eins og hann hljómaði í fyrstu!!! Við fengum 5 vikur í kennslu og eigum svo að byrja vinna eftir þann tíma. Við höfum fengið að æfa okkur 1x á sumu því sem við þurfum að gera og við höfum ekki fengið kennslu í make-up en samt eigum við að gefa make-up eftir andlitsmeðhöndlun ef kúnninn vill það!!!
Og... svo ég haldi nú áfram að ausa úr skálunum!!! Þá eigum við sjálfar að skaffa handklæði til að nota á kúnnana OG þvo þau heima hjá okkur. OG svo er ætlast til þess að við nemendurnir þrífum skólann!!! Já þetta er fáránlegasta rugl ever. Við eigum að þrífa skólastofuna og eldhúsið sem kemur innað henni og ísskápinn þar og baðherbergið!!! Ég held að engin af okkur nýju höfum þrifið í okkar vikum og ég ætla ekki að þrífa þarna, no way... ég er ekki að borga allan þennan pening fyrir að þrífa annarsstaðar en heima hjá mér (og hana nú!!!)
Áður en við byrjuðum að vinna spurði ég annan kennarann hvort þetta með handklæðin væri rétt og spurði svo hvort við gætum þvegið þau í skólanum, hún sagði að við ættum að þrífa þau heima. Þá spurði ég hana fyrir hvað í ósköpunum við værum að borga/í hvað skólagjöldin færu? Þá sagði hún: kennsluna! Þá spurði Jóna: kennslu í 5 vikur??? þá sagði hún bara já!!! Þessi kennari svarar svo hratt og stutt og við Jóna erum ekki alveg nógu sleipar í dönskunni til að geta rökrætt og það er svoo.. fúlt. Maður er alltaf kjaftstopp þegar manni langar að ræða málið nánar
.
Og þessir tveir kennarar sem við höfum útskrifuðust báðar úr þessu sama námi í september síðastliðinn og hafa því þannig séð enga reynslu sjálfar. Önnur þeirra er nú bara 22 ára (þessi sem svara svo hratt og stutt) en hin er 35 ára og maður finnur alveg þroskamuninn á þeim, það er allavega hægt að tala við þessa eldri en samt aldrei gefist tækifæri til að tala um þetta mál við hana. Bla..bla..bla....
En við erum 4 í bekknum og allavega 3 af okkur ætlum að standa saman og ræða við einhvern sem er yfir þarna um það sem við erum ósáttar við, við eigum eftir að tala við þessa fjórðu, ég trúi ekki öðru en að hún verði með okkur.
Fúfff... ég efast um að einhver skilji þessa rumsu og ef svo er, þá er þetta kannski bara ágætis gestaþraut!!! hehe.. góða skemmtun.
Læt þetta gott heita í bili. Er ekki ritfær lengur nú í augnablikinu, allavega ekki í þessum ham
.
Veriði hress, ekkert stress, bless, bless....

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Er þetta ekki bara ekta Danskt að láta nema fara heim með þvottin.. algjörlega fáranlegt og þurfa svo að borga skólagjöld... hefði verið annað ef þið fengjuð þetta frítt...
Vhá hvað ég yrði pirruð....arrggg.
Annars allt gott að frétta héðan, litla barnið mitt kannski á leið í leiksskóla ufff...
Verðum í bandi..
les allta bloggið þótt ég sé mjög léleg að kvitta.
knús
Lilja
Baráttu kveðja Dagný
Mér lýst nú ekkert á að það sé búið
að snoða drengina mína.
kveðja mamma
En er sko sammála þér um þetta....borga skólagjöld og þurfa svo að standa í þrifum....isss Hvort þetta sé eitthvað týbískt danskt veit ég ekki.
En good luck með þetta og vonandi finnið þið einhvern sem getur kippt þessu í liðin fyrir ykkur....hummm kanski eru þessi þrif inni í verkahring kennarana...
og þær bara koma þessu yfir á ykkur.....spurning :-/
En hafið það sem allra best ''í góða veðrinu og hitanum'' (geðveikt abbó) knús og kremjum úr rigningunni á klakanum....
Mér líst vel á snoðninguna (er þetta orð??) ætlum að gera mohawk á okkar fyrir sumarið sem er núna algjörlega mætt á svæðið.
Þú ert engin grýla Ágústa mín. Ég hef aldrei skilið af hverju karlmenn eru eitthvað að setja sig upp á móti því sem við konurnar segjum..........það er allt miklu betra ef við bara fáum að ráða.....hahaha
Og mamma loksins farin að kvitta :o) Þetta hefur verið nógu sjokkerandi til að þú hafir ekki getað setið á þér, hehe :o)
En ég lofa þér því að þeir líta mjög vel út, sólbrúnir glókollar.
Og Jóhanna: Ég verð að sína Binna þetta, haha... algjör snilld, og MIKIÐ til í þessu, hahaha...
Það er verið að opna nýjan förðunarskóla í Kolding 1 maí, það er haldið að það verði ekkert að gera í mínum skóla í haust, en það verður bara að koma í ljós. Ég ætla að klára þetta nám í mars á næsta ári án þess að þrífa þarna!!! hehe...