Miss Colgate!!!!

24. apríl 2007 klukkan 20:13
Kannski þó í misheppnari kantinum!!
En á morgun er ég að fara að læra að hvíta tennur í skólanum. Mér skilst að við lærum að gera mót eftir tönnunum og setjum svo einhver extra virk efni á þær til að hvíta þær og svo á kúnninn að taka með sér efni til að viðhalda hvítunni eða byggja hana upp... eða bara eitthvað Hlæjandi. En við Jóna höfum engin módel, þannig að við æfum okkur á hvorri annari og við fáum Diploma skjal fyrir þetta og meigum fara að vinna við þetta strax eftir námskeiðið.
Þannig að á fimmtudaginn stend ég í afgreiðslunni með glansandi hvítar tennur, nema kannski neðri hlutann á annarri framtönninni því þar er fylling því hún brotnaði einu sinni og er í sama lit og tennurnar eru núna Óákveðinn.

Í gær var haldinn fundur í skólanum vegna neikvæðra umfjöllunar um einkaskóla í snyrtifr. í Dk. sjónvarpið kom og alles, en við Jóna drifum okkur heim áður en það gerðist. Ég held það verði sýnt á TV2 á fimmtudaginn næsta.  Það var búið að undirbúa okkur undir það hverju við ættum að svara ef við yrðum spurðar að einhverju, við áttum eiginlega að snúa útúr eða láta vel að skólanum!!! Ég hefði bara staðið þarna og roðnað og ropað einhverju stami útúr mér Skömmustulegur, ekki alveg tilbúin í svoleiðis vitleysu.

Af strákunum er allt gott að frétta. Ásbjörn var víst svolítið spéhræddur fyrsta daginn eftir snoðunina Brosandi, neitaði að taka hjólahjálminn af sér þegar hann kom í leikskólann. En hann var fljótur að venjast þessu og kann þessu held ég bara vel, þetta hlýtur allavega að vera þægilegt í hitanum. ´
Þeir bræður eru rosalega duglegir að leika sér úti eftir leikskóla, koma ekki inn fyrr en ég kalla á þá í mat. Og þeir eru eitthvað farnir að leika við krakkana hér úti, þetta er allt að koma hjá þeim. Ég var að hlusta á J.I tala við eina stelpu áðan, hrikalega krúttlegt, danska og smá íslenska í bland en þau skildu hvort annað Brosandi.

Í gærkvöldi var ég svaka dugleg!!! Fór út að línuskauta, alveg dágóðan hring. Gsm síminn minn er með mp3 spilara þannig að ég get hlustað á tónlist á meðan, þvílíkur munur, verð bara að passa mig á að fara ekki að syngja... svo ég fæli nú ekki fuglana og hin dýrin í kringum mig í burtu Skömmustulegur.
Ég nennti svo ekki að skauta í kvöld, fór bara að baka í staðinn og stefni á skautun á morgun. (Kostar ekkert að láta sig dreyma!!!)  En ég verð að fara vera duglegri að hreyfa mig, get ekki látið sjá mig svona á ströndinni í sumar Glottandi.

Og eitt enn... veðurfréttir...það var 21° í dag en engin sól og spáð einhverju álíka á morgun, meira að segja sól!!!  Það er bara tvennt neikvætt við þetta góða veður, það vantar Air condition í sænska eðalvagninn Óákveðinn. Og svo magnast skítafýlan "góða", en ég er allavega búin að læra það að hafa miðstöðina ekki í botni þar sem skítafýlan er mest... það ER gáfulegra að slökkva á henni rétt á meðan maður keyrir í gegn (smá hint... til þeirra sem eru blond eins og sumir!!!).

Jæja nóg af bulli í dag...

Knús og kremjur....
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Bogga skrifar ...
Það er alltaf svo gaman að lesa það sem þú skrifar Ágústa mín!
Sárvorkenni þér samt í 21° hita og skítafýlu hahahaha
Hvenær kemurðu svo í þessar fimm vikur í sumar?? Ég fer sko í sumarfrí 20. júlí svo það væri fínt ef þú kæmir um það leyti :-D
Knúúúús frá Boggu
24. apríl 2007 klukkan 22:46
ragga skrifar ...
Já já þú klárar þetta dæmi þarna úti... ég meina eruð þið nokkuð á leiðinni heim næstu árin hvort eð er..;) fínt fyrir þig að vinna við þetta þarna úti.. og fá fullt af reynslu.. en þetta er nú semsagt eitthvað
spúkí skóli.. ha..

hehehee.. þú og þessi skítafýla... hún er reyndar hriiikaleg .... manni svíður liggur við í nebbann sko..

heyrðu ég flyt heim 9 maí.. ég verð í bandi við þig:)

knúúúúús til strákana:)
25. apríl 2007 klukkan 12:47
Ágústa skrifar ...
 
Ég verð líklega á landinu ca. 2 júlí til 3 ágúst en það er samt ekki alveg á hreinu, ég verð allavega allan júlí. Týbískt að þú ferð í frí í endaðan júlí Bogga :o/

Og já þessi skóli er óttalegt peningaplokk og ég er hálf reið yfir að láta bjóða mér uppá þetta, en vonandi að þetta lagist!!! Það er erfitt að vera svona málhölt í svona aðstæðu!!!
25. apríl 2007 klukkan 15:15
ragga skrifar ...
ji já ég skil það... hrikalegt að geta ekki tjáð sig almennilega...

heyrðu ég þarf að ná á þér á msn.. mig vantar svo uppskrift af skinkuhornum;) þú ert alltaf með svo góðar uppskriftir Ágústa... ættir að henda þeim hérna inn;)
25. apríl 2007 klukkan 17:25

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan