Allt að verða vitlaust....

26. apríl 2007 klukkan 20:05

Á síðasta miðvikudag kom ein sjónvarpsstöð í skólann til að taka viðtöl og skoða skólann. Svo í dag fréttist það að það hafi komið maður í klippingu með falda myndavél frá þessari sömu sjónvarpsstöð og ég var að horfa á þennan þátt áðan, einhverskonar danskur Kompás þáttur og sjálf Heidi Sommer eigandi skólans var í þættinum til að svara fyrir sig og sú var sko þokkalega jörðuð þarna á staðnum. Það voru viðtöl við fyrrverandi kennara og nemendur sem létu ekki vel að þessu öllu saman og sérstaklega talað um að fólk væri EKKI að fá fyrir peninginn sinn þarna, hér er linkur af heimasíðu sjónvarpsstöðvarinnar, þar er smá umfjöllun um þetta (þó bara verið að tala um hárgreiðslunámið en snyrtifr. námið er í sömu sporum), ef einhver hefur áhuga á að lesa þetta: http://programmer.tv2.dk/basta/article.php/id-6783864.html

Ég fór á þetta tannhvítunámskeið, en fékk ekki hvítar tennur sjálf, hefði þurft að borga 12000 kr. aukalega ef ég hefði viljað það! En ég hefði nú alveg getað sleppt þessu. Það er verið að rukka okkur um nokkur þúsund fyrir þetta námskeið svo við getum unnið við þetta frítt í skólanum og mér skilst að sá sem hélt þetta námskeið fær ekkert af þessum peningum, hann heldur námskeiðið frítt og gellan heldur peningunum!!!

En það á víst að vera fundur með skólastjóranum einhverntímann næst daga og þá höfum við tækifæri á að setja útá það sem við erum óánægðar með og vonandi verður það til að bæta skólann. En annars er aldrei að vita nema maður skoði þetta vel og alvarlega, hvað maður ætti að gera í þessu.
Jedúdda mía....

Það er nú annars lítið annað að frétta, hlakka mikið til að komast í helgarfrí Glottandi, vera úti og njóta góða veðursins. Það fór allavega í 27° í dag í án þess að sólin skini á mælinn!!!
Á laugardaginn á Binni afmæli en við förum í aðra afmælisveislu, hjá honum Erni okkar, hann er reyndar 2ja ára í dag Brosandi. Þannig að ég slepp við að baka, hehe... fer bara í bakaríið í staðinn og færi honum góðan morgunmat.
Svo voru og Dísa og Freyr að eignast litla prinsessu, til hamingju Dísa og co. Brosandi

Og svo stóð ég við drauminn minn sem kostaði ekki neitt!!! Ég fór út á línuskauta í gærkvöldi Svalur, svakalega dugleg... skautaði á fund hjá ísl.félaginu og fékk svo far til baka Skömmustulegur huhumm...

Jæja best að gera sig klára fyrir Lost... er alveg húkt á þessum blessuðu þáttum... þoli það ekki, þeir eru svo seint á kvöldin og ég vildi gjarnan vera sofnuð þegar þátturinn byrjar, en hugga mig við það að það kemur föstudagur á eftir fimmtudegi... dööö... og svo laugardagur og þá get ég bætt upp svefninn!!!

Allavega.. bless í bili....

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Helena skrifar ...
 
Ég vona innilega að gangi vel á fundi með skólastjóra og eitthvað verði gert fyrir ykkur. Þetta hljómar
eins og einhverskonar glansmyndaskóli. Allt svo voða flott og yndislegt á yfirborðinu en
ekki standast loforð.
Það hefur verið umræða um einn einkaskóla hér (reyndar ekki á þessu sviði) en nemendum þar finnst
þeir hafa verið illa sviknir - greitt offjár fyrir skólann en hann skili ekki því sem var lofað.
Það virðist víða vera pottur brotinn í þessum málu.
Standið fast á ykkur og farið fram á breytingar!!
Baráttukveðjur
27. apríl 2007 klukkan 16:28
Ágústa skrifar ...
 
Takk Helena. Þetta er alveg rétt, þetta er glansmyndaskóli en það verður fundur næsta þriðjudag með skólastjóranum og vonandi verða þá breytingar.
27. apríl 2007 klukkan 17:14
Dísa skrifar ...
Hæ hæ .....takk fyrir kveðjurnar...hlakka til að sýna þér prinsessuna í sumar þegar þú kemur... Hérna á heimilinu er blússandi bleik hamingja í gangi :-)
28. apríl 2007 klukkan 23:27
ragga skrifar ...
æi ég sakna þín...
29. apríl 2007 klukkan 15:37

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan