Ég er nú ekki í lagi....
29. apríl 2007 klukkan 20:06
Á föstudagskvöldið fór ég að sofa kl.22:00 og ekki nóg með það, ég var vöknuð kl. 07:18 á laugardagsmorgninum og GAT EKKI sofnað aftur og var komin í bakaríið kl. 8:00, þetta er sko ekki ég!!!! (En kannski nýja ég, hehe... right!!!
)
Svefnpurkan hann Jóhann Ingi svaf lengst og þegar hann vaknaði sungum við afmælissöng fyrir Binna og gáfum honum gjafir. Svo skelltu strákarnir sér í sund og ég hjólaði útí bæ og kíkti í búðir.
Eftir hádegi fórum við í afmælisveislu til Arnar, það var útiveisla enda fínasta veður (fyrir utan 2 mínútna djók hjá veðurguðunum= rigning).
Krakkarnir léku sér á fullu og við fullorðnu átum á okkur gat
, ég allavega rúllaði heim. Svo var Binni búinn að nefna að við færum út að borða í kvöldmatnum en við höfðum bara ekki pláss fyrir meiri mat, þannig að við ákváðum að geyma það þar til í dag (sunnudag).
Í morgun svaf ég nú aðeins lengur eða til níu. Finnst ykkur ekki gott að vita það??? Mér leið allavega betur þegar ég leit á klukkuna
. Svo fórum við öll familían að þrífa og nú er allt skínandi hreint.
Eftir hádegi kom Örn í pössun til okkar svo foreldrar hans gætu kíkt á prinsessuna hjá Hafdísi og Óskari. Við kíktum á róló og dúlluðum okkur bara. Ásbjörn var að lesa fyrir hann, hann er svo duglegur að hafa fyrir Erni og finnst það svo gaman en svo hefur hann engan áhuga á bróður sínum, það er svo fyndið að fylgjast með þessu
. Seinni partinn ákváðum við svo að skella okkur út að borða en... þá var Ingi Pingi orðinn svo þreyttur og var alveg að sofna að við ákváðum að fara bara á Mc´donalds, þar geta þeir nefnilega leikið sér og hann gat haldist vakandi. Þannig að við verðum bara að fara seinna eitthvað fínna út að borða, og kannski/vonandi bara barnlaus
.
Ég át svo hrikalega yfir mig á Magga Dóna, fékk mér ís í eftirrétt og alles að ég skellti mér á línuskauta í klukkutíma, aðeins að reyna minnka samviskubitið. Það var rosa hressandi svona rétt fyrir svefninn.
Á morgun verð ég í skólanum frá kl. 9-21, við Jóna ætlum að byrja að vinna upp lengra sumarfrí. Við ætlum að taka 2 auka vikur í frí og getum verið lengur í skólanum á mánudögum og miðvikudögum. Svo ætlum við að gista hjá vini hennar Jónu í Fredricia því við erum bara korter að keyra þangað. Það tekur því ekki að keyra heim á mánudags kvöld og svo aftur í skólann á þriðjud. morgun. Þannig að þetta verður þvílíkur munur.
En jæja þá í þetta sinn....
Knús og kossar....
Svefnpurkan hann Jóhann Ingi svaf lengst og þegar hann vaknaði sungum við afmælissöng fyrir Binna og gáfum honum gjafir. Svo skelltu strákarnir sér í sund og ég hjólaði útí bæ og kíkti í búðir.
Eftir hádegi fórum við í afmælisveislu til Arnar, það var útiveisla enda fínasta veður (fyrir utan 2 mínútna djók hjá veðurguðunum= rigning).
Krakkarnir léku sér á fullu og við fullorðnu átum á okkur gat
Í morgun svaf ég nú aðeins lengur eða til níu. Finnst ykkur ekki gott að vita það??? Mér leið allavega betur þegar ég leit á klukkuna
Eftir hádegi kom Örn í pössun til okkar svo foreldrar hans gætu kíkt á prinsessuna hjá Hafdísi og Óskari. Við kíktum á róló og dúlluðum okkur bara. Ásbjörn var að lesa fyrir hann, hann er svo duglegur að hafa fyrir Erni og finnst það svo gaman en svo hefur hann engan áhuga á bróður sínum, það er svo fyndið að fylgjast með þessu
Ég át svo hrikalega yfir mig á Magga Dóna, fékk mér ís í eftirrétt og alles að ég skellti mér á línuskauta í klukkutíma, aðeins að reyna minnka samviskubitið. Það var rosa hressandi svona rétt fyrir svefninn.
Á morgun verð ég í skólanum frá kl. 9-21, við Jóna ætlum að byrja að vinna upp lengra sumarfrí. Við ætlum að taka 2 auka vikur í frí og getum verið lengur í skólanum á mánudögum og miðvikudögum. Svo ætlum við að gista hjá vini hennar Jónu í Fredricia því við erum bara korter að keyra þangað. Það tekur því ekki að keyra heim á mánudags kvöld og svo aftur í skólann á þriðjud. morgun. Þannig að þetta verður þvílíkur munur.
En jæja þá í þetta sinn....
Knús og kossar....
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir