Den store bededag!
03. maí 2007 klukkan 19:46
Jibbíí.... frí í skólanum á morgun
. Það verður alveg yndislegt að fá svona langa helgi. Jóhann Ingi er reyndar kominn með hita en ég vona að hann verði fljótur að hrissta þetta af sér, svo engist hann sundur og saman af hósta
. Ásbjörn er búinn að vera rosalega góður við hann, leyfði honum að fara í tölvuna og teiknaði síðan rosalega flotta mynd fyrir hann með bát og fiskum
. Bræðrakærleikurinn til staðar þegar á reynir.
Á morgun á að vera bíó hjá íslendingafélaginu, ísl. mynd fyrir börnin um daginn og svo um kvöldið er ísl. mynd fyrir fullorðna fólkið. Spennandi að sjá hvað verður í boði (fyrir utan poppið og ísl. nammið!!)
Ásbjörn er búinn að ákveða að taka Íþróttaálfinn sér til fyrirmyndar og borða bara nammi á laugardögum og ég er að spá í að herma eftir honum! En ég ætla samt ekki að byrja fyrr en á sunnudaginn
, verð að fara að gera eitthvað í þessum maga mínum!!!
Og svo er auðvitað alltaf stuð í skólanum... samt orðið frekar þreytt...
Þessi fundur með skólastjóranum breyttist nú "aðeins", hún ætlaði að koma og tala við okkur og við máttum segja henni hvað okkur þyki að betur mætti fara þarna. En áður en fundurinn var voru allar búnar að ákveða að segja ekki neitt því þær sögðu að maður fengi þetta allt í hausinn ef maður væri að kvarta! Maður yrði hunsaður og það gæti bitnað á einkununum. Og við Jóna vorum búnar að gera þennan fína kvörtunarlista!!!
En fundurinn fór nú á annan veg!!!
"Drottningin" sjálf mætti á svæðið (eigandinn), og hélt þessa líka klisjukenndu ræðu um hvað sjónvarpsþátturinn væri mikið bull og var að reyna réttlæta allar staðreyndir. Við vorum ekkert spurðar um okkar álit og ekkert spurðar um hverju væri hægt að breyta til að skólinn yrði betri. Í síðustu kaffipásum hefur þessi fundur verið til umræðu og mikil óánægja og nemendur kalla eigandann norn og algjört eitur og fleiri álíka "skemmtilegum" nöfnum. Ég stakk uppá að við myndum allar taka okkur saman og heimta betri kennslu en ég fékk það svar að eigandanum gæti ekki verið meira sama um hvað okkur fyndist og við myndum ekkert hafa uppúr því!!! Frekar fúlt
.
Og svo ég haldi aðeins áfram í kvörtunardeildinni
þá varð ég svo hundfúl í skólanum í dag að ég hef sjaldan vitað annað eins!!!
Ég skal hlífa ykkur við ritgerðinni, en til að gera langa sögu stutta þá finnst mér alltof mikið álag á okkur, flestar af okkur eru full bókaðar allan daginn og höfum x mikinn tíma til að klára hverja meðhöndlun, og það er eins og það skipti engu máli að við þessar nýju höfum verið þarna á snyrtistofunni í 2 vikur. Við eigum bara að geta klárað á þessum setta tíma og eigum að troða eins mikið af vörum inná kúnnana eins og ómögulegt er!!! Mér finnst þetta oft alltof mikið stress og mér ofbýður við þessari sölumennsku þarna.
Stundum næstum gleymi ég að ég sé í skóla þarna því þetta líkist frekar vinnubúðum. Og það er ekki það að ég nenni ekki að vinna, ég vil læra hlutina áður en ég fer að vinna við þá. Ég þarf tíma til að læra hlutina svo ég geti gert þá vel. Ég vil ekki vera á milljón bara til að vera á réttum tíma og skila svo verkefninu illa gerðu. Hraðinn kemur með tímanum (vonandi)!!!
En já þetta skólamál er dauðþreytt og ég skrifa ekki meira um það nema það komi eitthvað svaka krassandi... meiri sjónvarpsumræða eða eitthvað álíka.
Jæja best að fara sinna börnunum og njóta llaanngga helgarfrísins

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Var í Köben um helgina með Vodafone, árshátíð sko:) Það var geggjað veður og ógeðslega gaman. Besta árshátíð sem ég hef nokkurn tímann farið á:)
Öfuna ykkur ekkert smá að búa í Danaveldi:) Væri sko alveg til í að flytja út..
Koma tímar og koma ráð:)
KV. Ella Þóra
Hlakka mikið til að hitta þig í sumar :-)
knúúúús og kossar....