Fríið búið...

06. maí 2007 klukkan 19:37
Oooo..... Óákveðinn
Það varð nú ekki mikið úr þessu fríi Óákveðinn, en við fengum þó góðan félgsskap. Veðrið var alveg geggjað en við vorum svo mikið inni því Jóhann Ingi var veikur alla helgina.
En á föstudaginn fóru Ásbjörn og Binni í bíó hjá Ísl.félaginu niðrí háskóla og ég fór í bíó um kvöldið (á sama stað!). Sá myndina Kaldaljós og fannst hún mjög góð, svo var líka sýnd Stuðmannamyndin nr.2 en ég nennti ekki að horfa á hana líka.
Á laugardaginn fóru ég og Ásbjörn á línuskauta, það var ekkert smá heitt... fúff... og kíktum við í heimsókn til Ísabellu og co.
Svo kíktu Tristan og foreldrar hans í heimsókn til okkar, þannig að við skemmtum okkur öll voða vel.
Í morgun (sun.) dreif ég mig í að baka, skellti í skúffuköku og bakaði kanelsnúða og fór svo í búðir, það eru opnar búðir fyrsta sunnudag hvers mánaðar. Seinnipartinn fórum við í lautarferð með Stebba, Árnýju og Móniku Rós með nýbakaðar kræsingar og kaffi en veðrið var bara ekki nógu gott þannig að við stoppuðum ekki eins lengi og venjulega. Og auðvitað gleymdi ég myndavélinni... eina ferðina enn Fýldur. Við ákváðum að hleypa J.I. út í dag, okkur fannst ekki hægt að halda honum lengur inni enda var hann orðinn hitalaus.  Svo var okkur boðið í mat í kvöld til Hjördísar og Ingvars. Fengum steiktan íslenskan fisk, þvílíkt sælgæti. Það er svo langt síðan ég hef fengið fisk og var virkilega farin að sakna hans, danski fiskurinn er óætur og því bara etið kjét á þessum bæ Fýldur.  Strákarnir komust í rabarbarabeðið hjá þeim og fengu því ágætis andlitsleikfimi Brosandi, frekar fyndið.

Nú tekur bara daglega amstrið aftur við Óákveðinn. Ég verð í skólanum til kl. 21 á morgun og gisti því næstu nótt í Fredricia.

Ég er eitthvað voðalega andlaus núna, veit ekkert hverju ég á að ljúga að ykkur!!!

Kveð því bara í bili.... bæjó....
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Bogga skrifar ...
 
Varð ekki mikið úr þessu fríi ha? Mér heyrist þessi helgi bara hafa verið fullbókuð hjá ykkur.
Ég væri alveg til í að kíkja til þín í kaffi og fá snúða hjá þér Ágústa mín, það hljómar vel!
Knús og kremjur til ykkar allra,
Bogga
06. maí 2007 klukkan 20:50
Ella skrifar ...
 
Minni ykkur hjónakornin á að kjósa utankjörfundar í Danaveldi:)
06. maí 2007 klukkan 22:13
Mér sýnist þið nú bara haft fínustu helgi ..... (fyrir utan veikindi ) En annars finnst mér eins og það sé alltaf brjálað að gera hjá ykkur .... hehe var þetta líka svona heima á klakanum ???
Mín reynsla er að familien gerir miklu meira saman hér en við gerðum heima ....
Alltaf gaman að lesa bloggið þitt Ágústa Andlaus eður ei !!!
Kveðjur hérna megin frá.
07. maí 2007 klukkan 06:55
Dísa skrifar ...
Það hljómar eins og dagarnir eru alltaf fullbókaðir hjá ykkur.....alltaf nóg að gera í danaveldi ;-) ..væri sko alveg til í að fá góða veðrið hingað svo ég geti farið út með
prinsessuna mína í vagninum með góðri samvisku....en það er allt of kalt hérna ennþá. Freyr sannaði það fyrir mér með því að fara út að mótorhjólast og náði sér í kvef
greyið :-( En hafið það sem allra best ..kveðjur frá okkur hérna á klakanum
07. maí 2007 klukkan 11:56
Ágústa skrifar ...
 
Þetta með að það hafi orðið lítið úr helginni var að ég hefði viljað vera miklu meira úti í góða veðrinu!!! Ég fór ekki útúr húsi fyrr en á föstudagskvöld og svo aftur út um miðjan laugardag!! Það var sko málið ;o)

Og jú við fjölskyldan gerum miklu meira saman hér í Dk. heldur en nokkurntímann heima, og við finnum okkur líka eitthvað fjölbreyttara að gera hér. T.d. pick nick, hjólatúra, rúnta hingað og þangað og í fjölskyldugarða. En auðvitað gerðum við líka margt af þessu sama heima en það bara ekki bara svona góður tími til þess og maður naut þess öðruvísi (eða ég veit ekki alveg hvernig ég á að orða þetta!!)

Bestu kveðjur.
08. maí 2007 klukkan 15:03

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan