Ilmurinn úr eldhúsinu var svo lokkandi.....

10. maí 2007 klukkan 18:29
Nú er Ásbjörn orðinn veikur Óákveðinn. Kvartaði um í maganum í gær og var kominn með hita. En ég er skíthrædd um að hann sé með hlaupabólu!!!  Hann er ekki með margar bólur, það er hægt að telja þær!! Og það er vökvi í þeim. En það hlýtur að koma í ljós, þær hljóta að fjölga sér ef þetta er hlaupabóla.  Binni hélt fyrirlestur í skólanum í morgun sem var undirbúningur fyrir dönskupróf, það gekk mjög vel hjá karlinum og Gunni snillingur bjargaði okkur með því að passa Ásbjörn á meðan.  Síðan þegar ég og Jóhann Ingi komum heim úr skólanum tók á móti okkur þessi líka góði ilmur... Ásbjörn og Binni voru búnir að baka skonsur sem biðu okkar á borðinu ásamt öðru bakaríis gúmmulaði, ekki amalegt að fá svona mótttökur Hlæjandi. Og auðvitað át ég yfir mig Skömmustulegur. Ég er nú farin að reyna að hafa með mér hollt nesti í skólann, stundum kjúklingasalat en venjulega brauð, ég er komin með þvílíkt ógeð af brauði. En til tilbreytingar hef ég verið að fá mér rúgbrauð með kornum í, með kotasælu og grænmeti. Mér kvíður alltaf jafn mikið fyrir að byrja borða það en þetta bragðast samt ekkert ógeðslega, hlýtur að vera mjög hollt!!!
Svo er ég líka búin að ákveða að kaupa mér lóð næst þegar ég fer til Þýskalands, sko lyftingarlóð... ekki jörð!!! Þetta gengur ekki lengur, ég sé mig fitna Öskrandi aarrggg...

Nú fer Evróvision alveg að fara byrja... og ég er svo spennt Öskrandi, meikar Ísland það að þessu sinni eða ekki?????? Ó my god, ég ræð ekki við mig!!!!! Höhömm...

Ég hef verið að ræða þessa keppni við nokkra dani og það eru ca. 30-50% af þessu fólki sem veit hvað Evróvision er!!! 
Þeir vita ekki af hverju þeir eru að missa, hehe...

En best að fara setja sig í stellingar, koma strákunum í rúmið og planta mér síðan fyrir framan sjónvarpið Glottandi.

Adios....Farvel...

Ég gleymdi einu!!! Við erum búin að bóka flug heim í sumar.

Binni og Jóhann Ingi koma 25/6 og fara aftur heim 15/8 og ég og Ásbjörn komum 28/6 og förum aftur 31/7, því við byrjum í skólanum á undan Binna!!

En Júróvision er byrjuð og mikið hrikalega eru mörg lög LEIÐINLEG, það er varla að ég nenni að horfa á þetta en langar samt að sjá úrslitin.  Mér finnst íslenska lagið bara með þeim bestu sem ég hef heyrt enn sem komið er en ég heyrði það bara í fyrsta skiptið á síðasta mánudag (þ.e.a.s. ísl. lagið)!!  Og það eru ótrúlega mörg rokklög, fyndið hvað er alltaf reynt að apa upp eftir síðustu sigurvegurum.

En best að reyna klára að hanga yfir þessu gauli....

Bæjó!!
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Bogga skrifar ...
 
Áfram Ísland!
...þið megið kjósa Eika, er það ekki? Mikið eruð þið heppin :)
Farin að horfa á júró...hei, við erum að horfa á sama sjónvarpsefnið! Gaman af því :)
Knús og kveðjur,
Bogga
10. maí 2007 klukkan 20:41
Ásta Laufey - ný dönsk skrifar ...
 
Jebb það voru vonbrigði á mínu bæ eftir þessa keppni ...... arrrg og fullt af löndum semég vissi ekki að væru til ...... Þar fór laugardagsjammið fyrir lítið.
En frábært að þið séuð á heimleið í sumar (alltaf gott að koma heim ) Ég sætti mig bara við það að það verður örugglega betra veður hér en þar.
Bið að heilsa.
11. maí 2007 klukkan 21:27

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan