Fjárfesti í lóðum...

13. maí 2007 klukkan 15:42
í Deutschlandi. Tvær þriggja hektara og fékk eina geit í kaupbæti!!!  Nei þetta hljómar ekki mjög spennandi. En ég keypti mér samt lóð þannig að nú get ég farið að gera æfingar heima hjá mér Brosandi. Og það á sko að fara taka á því!!! Og breyta um mataræði í leiðinni, ég hef einu sinni getað þetta og ætti því að geta það aftur Svalur. Ég er komin með algjöran viðbjóð á sjálfri mér.
En nóg um það...

Ásbjörn er kominn í hlutverk ættbálkahöfðingja hér á heimilinu.  Hann er þakinn rauðum bólum og með hvíta skelli hér og þar um líkamann (kláðastillandi hvítur vökvi!), þannig að hann lítur út eins og villimaður. En hann er samt búinn að vera mjög hress, er bara búinn að vera með nokkrar kommur í hita.
Í dag komu Tristan og Hrafn í heimsókn til hans þannig að það er búið að vera brjálað stuð á þessum bæ og Ásbjörn búinn að vera alveg í essinu sínu yfir að hafa fengið félagsskap frá öðrum en bróður sínum!!

Við Jóhann Ingi skelltum okkur í afmælisveislu, fengum rosa fínar kökur (góð byrjun á aðhaldinu Skömmustulegur) og vorum úti í góða veðrinu. Svo fór ég heim og skipti við Binna svo hann fengi líka kökur!!

Í gær fóru ég og Sólveig vinkona mín til Þýskalands. Versluðum í matinn og kíktum í fatabúðir. Ég keypti mér peysu og tvenna sandala, nýbúin að segja að ég fyndi mér aldrei neitt þegar ég færi í búðir!!!  Það fóru nokkrir klukkutímar í þessa ferð og þegar við komum heim var Binni búinn að elda fyrir okkur rosa góðar kótilettur og svo horfðum við á Júróvision með öðru auganu og sötruðum rauðvín.  Rosa fínn dagur Hlæjandi.

Það er orðið svolítið fyndið að hlusta á strákana tala. Þeir eru farnir að blanda saman dönsku og íslensku. Stundum gleymir Jóhann Ingi að "vaska" á sér hendurnar og svo fór hann í "bussen" með leikskólanum (strætó) og svo er þeim stundum illt í beininu (fætinum/ben) og svo þegar þeir biðja um að fá eitthvað lánað segja þeir: má ég lána dótið þitt!! (må jeg låne /má ég fá lánað), í stað þess að segja "ég veit það" þá segja þeir "það veit ég" (det vite jeg (godt)) (ég er nú ekki góð í danskri stafsetningu þannig að ég skrifa þetta örugglega vitlaust). Ég reyni að vera dugleg að leiðrétta þá en þarf samt stundum að hafa fyrir því að tala sjálf rétt/eða vera ekki að sletta málunum saman.  Ásbjörn fær líka íslensku- kennslu í skólanum þegar hann byrjar þar, 1x-2x í viku og ég er mjög ánægð með það.

Nú er ég að fara að skreppa til Sólveigar, þessi elska ætlar að lagfæra á mér tærnar!!! Ehemmm.. eins gott að ég skelli mér í smá fótabað fyrst Skömmustulegur.  Hún setti gel á neglurnar á mér um daginn, á stelpukvöldinu hjá Dagmar. Þetta er svona franskt pedicure, rosa flott Glottandi og nú er kominn tími á lagfæringu.

Hef þetta ekki lengra í bili....

Ps. Allar mæður..... til hamingju með daginn!!!!!!!

Knúsi knús...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Ásta Laufey - ný dönsk skrifar ...
 
KLIKKAÐ !!!!!!!
DUGLEG STELPA ........
þá er bara spurningin um að nota þau eða hvað ?
13. maí 2007 klukkan 17:08
Ágústa skrifar ...
 
Auðvitað Ásta!!! Ég fer nú ekki að nota þau sem stofustáss og láta þau rykfalla, höhömmm...
13. maí 2007 klukkan 17:14
Dísa skrifar ...
Dugleg ertu ...ég segi ekki annað .....ég er farin að huga að því hvað ég eigi að gera til að koma mér í form aftur ....en ég sé nú bara fyrir mér að vera dugleg að labba :-)
13. maí 2007 klukkan 20:06

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan