Langttt...frí....

17. maí 2007 klukkan 09:52

Þetta er eiginlega of gott til að vera satt!! Ég er í 4 daga fríi!!! Það voru svo margar búnar að skrifa sig í frí í skólanum á föstudag en við Jóna vorum svo seinar til skrá okkur og því búið að fullbóka á okkur þannig að við ákváðum bara að mæta en... svo fréttum við það á mánudaginn að kennarinn yrði líka í fríi!!! Við vorum þrjár sem ætluðum að mæta og ein af okkur byrjaði í náminu í september og við áttum bara að leita til hennar ef okkur vantaði eitthvað en við sögðum bara nei takk, við ætluðum ekki að mæta ef það yrði enginn kennari og við fengum það í gegn.  Kennarinn kann ekki að svara fyrir sig ef maður baunar einhverju á hana, meira segja ég get gert hana kjaftstopp!!! Venjulega kemur allt öfugt út úr mér þegar ég ætla að tjá mig um eh. sem ég er óánægð með og hugsa svo alltaf eftir á af hverju ég sagði ekki hitt og þetta í stað þess sem ég sagði!! En ég þarf þess ekki þegar ég tala við kennarann!!! Glottandi.
Ég er eiginlega ekkert búin að vera heima hjá mér þessa viku og hefur því Binni hlotið titilinn "Húsmóðir heimilisins" (eins gott að hann lesi þetta ekki). Hann er búinn að vera heima með Ásbirni alla vikuna og séð um eldamennsku og bakstur. Á þriðjudaginn gerði hann rosa góðan kjúklingarétt og í gær var hann og Ásbjörn búnir að baka speltbrauð. Við erum nefnilega að breyta mataræðinu og það hefur gengið mjög vel Brosandi, borðum bara hollt og svo er sukkdagur á laugardögum.

Ásbjörn er orðinn hress af hlaupabólunni og er farinn að fara út, fer samt ekki í leikskólann fyrr en á mánudaginn. Við höfum ekki fundið neina bólu á Inga pinga og vonumst til að hann bíði með að fá þetta fram yfir prófin, víst hann gat ekki smitast fyrr!!!!

Svo ég vaði nú úr einu í annað!!! Þá var ég að horfa á tærnar á mér!!! Yes... og dást af þeim. Sólveig var nefnilega að sjæna þær á sunnudaginn og hún er algjör snillingur. Nöglin á annarri stóru tánni drapst fyrir jólin og þegar hún óx aftur út var hún þvílíkt bækluð, með "landslagi" og öllu. Sólveig er búin að pússa "landslagið"  niður og svo bjó hún til nögl framan á hana þannig að hún lítur alveg eins út og hin stóra táin. Ótrúlegt hvað hægt er að gera!!! Svo gerði hún Franskt pedicure á þær Hlæjandi.

Um helgina er Byfest í Sönderborg. Þá er hellingur að gerast í bænum og það er tívolí og svo auðvitað Damefrokost á laugardaginn. Eins gott að það rigni ekki... en það er búin að vera skýfall hér síðustu daga Óákveðinn
En okkur ætti allavega ekki að leiðast!!! Jibbí... hlakka svo til að fara í tívolííí... og auðvitað á djammið líka Brosandi.

Góða helgi.....

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Bogga skrifar ...
Hæ sæta mín!
Maður er orðinn svo forvitinn um tásurnar á þér að þú verður bara að smella inn mynd af þeim fyrir okkur forvitna lesendur!
Það verður aldeilis gaman hjá ykkur um helgina og vonandi skemmtið þið ykkur sem best.
Knús og krams,
Bogga
17. maí 2007 klukkan 13:18
þórunn frænka skrifar ...
 
Hallo allir
alltaf gamam að sjá hvað gengur vel, og allir glaðir, hvenær komið þið heim í frí, það er upp á Valgerði? kveðja Þórunn
20. maí 2007 klukkan 13:05

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan