Tívolí, tívolí, tívolí lí lí...

20. maí 2007 klukkan 19:07

Þetta er nú búið að vera ansi skemmtileg helgi.  Á fimmtudaginn kom Binni með þá snilldar hugmynd að skreppa til Óðinsvé og heimsækja Palla og Rósu. Þar fengum við nýbakaða köku og skinkusnúða og svo var okkur boðið í mat til þeirra líka. Við komum ekki heim fyrr en um miðnætti, en það var í góðu lagi... frí á föstudeginum Glottandi. Á föstudaginn ætlaði ég "aðeins" að kíkja í bæinn en þegar ég ætla mér aðeins að skreppa eitthvert þá getur það tekið nokkra klukkutíma!!  Ég kíkti í heimsókn í gömlu vinnuna og var þar til kl. 19,30!!!  Og fór ekki í eina einustu búð!!!  Liðið sat bara inná skrifstofu að sötra rauðvín og ég stóðst ekki freistinguna og fékk mér smávegis með þeim. Það var svo gaman að koma aftur í vinnuna!  Á meðan ég var í skrepputúrnum mínum fór Binni með strákana í hoppukastala og svo á Mc´donalds, þannig að þeim leiddist ekkert þó ég hafi ekki verið nálægt... og reitt af mér brandarana Hlæjandi.
Á laugardaginn var svo loksins Damefrokost. Við hittumst fyrst á loftinu hjá ísl.félaginu kl.15,30 og fórum svo á Damefrokost kl.17. Þar voru 1200 konur saman komnar til að drekka og skemmta sér. Það er alltaf eitthvert hattaþema í gangi og í ár var sportþema. Ég, Sólveig og Dagmar vorum með  bleik sólder og legghlífar aðrar með svitabönd o.þ.h. og svo voru aðrar kellur þarna með heilu fótboltavellina á hausnum og ein með hótel á hausnum (í svipaðri stærð og piparkökuhúsin í Kringlunni um jólin) og svo voru allskonar múnderingar á hausunum á þeim!!  Þarna var matur og vín í boði. Mér fannst þetta varla matur! Það eina sem ég gat borðað var brauð og ávextir en svo var hlaðið á okkur bjórkönnum, hvítvíni og Rauðvíni. Svo var hljómsveit þarna og dansað uppá stólum allt kvöldið. Mjög skemmtileg upplifun Brosandi. Uppúr miðnætti kíktu ég og Sólveig aðeins í bæinn. Hittum þar Jónu og fleiri stelpur en við vorum alveg búnar á því og komnar heim kl.1.... og þá kíkti Binni aðeins út. Fyrr um kvöldið voru Binni og strákarnir á strákakvöldi heima hjá Palla og Stínu (foreldrar eins úr leikskólanum) og þar voru líka Tristan og Gummi pabbi hans. Þeir grilluðu saman og höfðu það kósý, kerlingalausir!!

Í dag kíktum við svo til Palla og Stínu og þar voru líka Gummi og Lára og sátum bara úti í sólinni, sumir þunnir...aðrir ekki!! (ekki ég!!) Og við grilluðum og fengum ís í eftirrétt og fórum svo öll saman í tívolí. Jííí... það var svo gaman. Ég hefði alveg viljað fara í fleiri tæki og sum tækin aftur... en týmdi því ekki Óákveðinn. Gummi og Lára pössuðu strákana meðan við Binni skelltum okkur í eitt tæki sem ég vildi ekki leyfa strákunum að fara í... oooo.. þetta var svo gaman. Svo fór ég með Jóhann Inga í eitt tæki sem ég hefði betur átt að sleppa!!!! Ég hélt að líftóran myndi kremjast úr barninu, það var einn strákur með okkur í tækinu og hann flaug alltaf á Jóhann og gat engan veginn haldið sér greyið, þó hann hafi hamast við það allan tímann. Svo hélt ég að þetta væri að verða búið, en nei, nei, síðast dagurinn og tvöfaldur tími í öllum tækjum!!! Þetta er örugglega í fyrsta skiptið sem ég vona að tíminn sé liðinn í svona tæki!! Annars er ég alltaf til í extra tíma. En honum varð allavega ekkert meint af þessu. Svo fór Binni með strákana og Tristan í draugahús, þeir vildu ENDILEGA fara í það og fóru allir að gráta þar inni!! Svo var svo fyndið í kvöld þegar Ásbjörn spurði Jóhann hvort hann hafi verið hræddur í draugahúsinu, það kom þessi svaka svipur á Jóhann og hann sagði: Jahá ég var sko hræddur og þá sagði Ásbjörn: Jááá! ég líka!!!
Við komum heim um kvöldmatarleytið og þá var borðað, baðað og hent strákunum í rúmið... eða næstum því, þeir eru ennþá að koma fram!!!

Jamm og jæja... svona var helgin okkar!! Og svo er bara spáð bonó blíðu alla vikuna. Mig hlakkar til en Binna hryllir við því, hann er rauð glóandi eftir þennan dag: Bleika húsmóðirin!!!! (Híhí)

Best að fara koma strákunum í draumalandið, vona bara að þeir fái ekki martröð eftir draugahúsið Hissa.

Bæbæbæbæb......


Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Lára María skrifar ...
 
Hehe ég var heldur ekki þunn... en einhverjir af þeim sem voru þarna í dag voru þunnir. Við erum náttúrulega svo góðar stelpur að við upplýsum ekkert hverjir það voru

knus
20. maí 2007 klukkan 19:45
Ásta Laufey - ný dönsk skrifar ...
 
Það virðist alltaf vera líf og fjör í kringum þig kella ! það fer ekki á milli mála en helgin hljómar mjög vel í alla staði og hefur greinilega verið vel skipulögð.
Það vantar Íslendingafélag hérna meginn ég finn það vel....
Hilsen - keep up the good work.
21. maí 2007 klukkan 13:27
Dísa skrifar ...
Jeminn þessi helgi hefur verið skemmtileg...þó að það hafi verið þynnka sem fylgdi í kjölfarið eða pínu þreyta hí hí hí. Væri nú alveg til í að fá bongó blíðu hingað í staðin fyrir slydduna og haglélin :-(
En hafið það sem allra best...kveðja úr snjókomunni
21. maí 2007 klukkan 16:30

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan