Íþróttaálfarnir...
28. maí 2007 klukkan 19:43
Ótrúlegt en satt, þá vorum við familían að lyfta lóðum saman áðan!!! Og það uppí rúmi... frekar furðuleg bólleikfimi!!! Hehe... Við Binni byrjuðum og skiptumst á lóðunum og svo fannst strákunum þetta svo spennandi og vildu prófa líka, en þetta var frekar þungt fyrir þá. En við gerðum allavega slatta af æfingum og magaæfingum og gláptum á mynd í sjónvarpinu í leiðinni (tvær flugur í einu höggi). Og þetta tók bara vel á, sérstaklega magaæfingarnar. Við ákváðum að setja okkur það markmið að æfa okkur 3x í viku og hina dagana fer ég út að labba/(skokka) eða línuskauta. Ég ætlaði nú að vera löngu byrjuð að þessu, en.... lazy thing.
Annars er nú ekki mikið að frétta. Jóhann Ingi fékk hlaupabólu í síðustu viku með þremur andvökunóttum
. Það var alveg hrikalegt að sjá barnið, alveg gjörsamlega þakinn í bólum og vildi stanslaust láta bera á sig kláðakremið. Þó það sé ljótt að segja það þá fékk ég hroll þegar ég kom við hann
, greyið barnið, en ég höndlaði þetta nú alveg. En hann er allur að koma til og bólunum fer fækkandi. Á morgun fer hann í pössun til Láru, hún var svo elskuleg að bjóðast til að passa hann. Tristan strákurinn hennar er líka með hlaupabólu svo það verður fjör á þeim bænum
. Binni fer í fyrsta prófið á morgun og er því búinn að vera í skólanum að læra alla helgina.
Ég er búin að vera að drepast úr leti undanfarnar vikur og alveg sérstaklega síðustu daga. Er búin að hanga heima og láta mér leiðast. Mér tókst samt að hafa mig í að þrífa íbúðina. Það mætti halda að það hafi ekki verið þrifið hér í marga mánuði. Þetta var eins og í draugahúsi á sumum stöðum í íbúðinni, þ.e.a.s. það voru köngulóavefir út um allt. Ég held að köngulærnar feli sig á meðan maður þurrkar vefina í burtu og blóta manni í sand og ösku á meðan og svo þegar maður setur kústinn aftur inní skáp byrja þær aftur að spinna. Frekar þreytandi húsdýr!!!!
Í gærkvöldi buðum við Dagmar, Einari og Sólveigu í mat. Vorum með íslenskt lambalæri, ummm.. það var hrikalega gott. Og kvöldið var voða kósý. Svo í dag bakaði ég kryddbrauð og pönnsur og Magga Lukka kíkti í kaffi. Ég spáði mikið í því hvort ég ætti að leggja mig... eða fara að baka!!! Já svona mikið er ég búin að vera löt
. Svo langar mig alveg hrikalega í eitthvað sætt núna en á ekkert nammi - sem betur fer. En það er rosa fínt að við erum saman í átaki, þá er maður allavega ekkert að freistast. Ég stefni á að missa 4 kg. áður en ég fer til Ísl. Og á alveg að geta það .
Á næsta fimmtudag fer ég með Ásbjörn í skólann til að skoða aðstæður í skóladagvistuninni. Ég nefndi þetta við hann í síðustu viku og hann var voða spenntur. Við erum búin að fá blöð um skólann og allt það og líka nöfnin á öllum krökkunum sem verða með honum í bekk. En hann verður með einum ísl. strák í bekk sem hann þekkir ekki og svo er hann líka með einum strák af deildinni sinni úr leikskólanum líka í bekk. Þetta verður spennandi tímamót fyrir hann
.
En jæja í bili....
bless, bless..........
Annars er nú ekki mikið að frétta. Jóhann Ingi fékk hlaupabólu í síðustu viku með þremur andvökunóttum
Ég er búin að vera að drepast úr leti undanfarnar vikur og alveg sérstaklega síðustu daga. Er búin að hanga heima og láta mér leiðast. Mér tókst samt að hafa mig í að þrífa íbúðina. Það mætti halda að það hafi ekki verið þrifið hér í marga mánuði. Þetta var eins og í draugahúsi á sumum stöðum í íbúðinni, þ.e.a.s. það voru köngulóavefir út um allt. Ég held að köngulærnar feli sig á meðan maður þurrkar vefina í burtu og blóta manni í sand og ösku á meðan og svo þegar maður setur kústinn aftur inní skáp byrja þær aftur að spinna. Frekar þreytandi húsdýr!!!!
Í gærkvöldi buðum við Dagmar, Einari og Sólveigu í mat. Vorum með íslenskt lambalæri, ummm.. það var hrikalega gott. Og kvöldið var voða kósý. Svo í dag bakaði ég kryddbrauð og pönnsur og Magga Lukka kíkti í kaffi. Ég spáði mikið í því hvort ég ætti að leggja mig... eða fara að baka!!! Já svona mikið er ég búin að vera löt
Á næsta fimmtudag fer ég með Ásbjörn í skólann til að skoða aðstæður í skóladagvistuninni. Ég nefndi þetta við hann í síðustu viku og hann var voða spenntur. Við erum búin að fá blöð um skólann og allt það og líka nöfnin á öllum krökkunum sem verða með honum í bekk. En hann verður með einum ísl. strák í bekk sem hann þekkir ekki og svo er hann líka með einum strák af deildinni sinni úr leikskólanum líka í bekk. Þetta verður spennandi tímamót fyrir hann
En jæja í bili....
bless, bless..........
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Skil þetta alveg með letina...er þetta ekki bara eitthvað sem er að ganga? En húsdýrin..oj oj oj ...ekki öfunda ykkur af þeim...frekar ógeðsleg húsdýr að mínu mati :-/
Hlakka geggjað til þar til þú kemur heim..hvenær kemur þú annars?
Bið eð heilsa knús....
ég sko VERÐ að hitta ykkur þegar þið komið til íslands.. algert möst... svo fæ ég kannski að innrita ykkur þegar þið farið aftur út;)
knús í kotið...:)