Hefur hárlitur áhrif á heilastarfsemi???

03. júní 2007 klukkan 19:36
Ég fer í klippingu næsta föstudag og var að spá í að lýsa aðeins hárið á mér, vera svolítið sumarleg Glottandi. Ég er komin með svooo... sítt hár, hef ekki verið með það svona sítt í mörg ár... en það lagast á föstudaginn Hlæjandi. Svo þarf að fara að raka strákana aftur, þeir eru að verða eins og síðhærðir broddgeltir, hárið á þeim vex beint uppí loftið.

Fyrri part vikunnar RIGNDI í orðsins fyllstu merkingu með þrumum og eldingum. Mér finnast þrumur og eldingar svo spúkí, var meira að segja hálf illa við að sofa ekki í sama herbergi og strákarnir!! Þetta er svo yfir náttúrulegt og enginn getur stjórnað þessu (þrumunum og því) en innst inni finnst mér pínu kósý að heyra rigninguna berja á rúðurnar og þrumurnar glamra inná milli.  En seinnipart vikunnar og um helgina er búið að vera fínasta veður Svalur.

Á síðasta fimmtudag fór ég með Ásbjörn og Jóhann Inga að skoða skóladagvistunina sem Ásbjörn byrjar í 18 júní nk.  Skólinn var þvílíkt völundarhús, við fórum nefnilega inn í kolvitlausan enda og þurftum að spyrjast til vegar til að finna bekkinn hans, en það "hafðist" (eða það héldum við). Settumst niður með dagfóstrunum og öðrum foreldrum, strákarnir léku sér og ég drakk kaffi og spjallaði við fóstruna örugglega hátt í klukkutíma. Svo fór ég að spyrja útí bekkjarfélaga hans... og þá kom í ljós að við vorum í vitlausri stofu!!!! ÚPPS... (og ég segji frá þessu).  Fóstran fylgdi okkur svo í réttu stofuna og þar tóku á móti okkur hans réttu fóstrur... sem allir eru karlmenn. Mér fannst þetta helv... vandræðalegt, EN þetta er víst bara týbíkt ég svo það er ekkert við þessu að gera Skömmustulegur.  Við stoppuðum dágóða stund í skólastofunni hans og ég spjallaði við einn fóstrann og drakk annan kaffibolla! Svo fórum við út að skoða leiksvæðið og þar léku þeir í góðan tíma, fannst það mjög gaman. Það eru samt einhverjir bakþankar í Ásbirni varðandi skólann en ég held það sé aðallega kvíði við að skilja við vini sína í leikskólanum. En auðvitað geta þeir haldið áfram að hittast utan skólatíma Brosandi.

Á laugardaginn pössuðum við Alexander og Evu Karen í smá stund. Ég fékk að fara í smá litlubarna-mömmuleik Brosandi. Eva Karen er 7 mánaða og það var voða gaman að fá smá flashback. En ég myndi samt ekki nenna að eiga annað barn. Það er fínt að lánað öðru hvoru.  Eftir að mamma þeirra kom aftur fórum við öll saman í Katrinelund með nesti með okkur. Svo seinni partinn fóru strákarnir í pössun heim til þeirra og við Binni fórum til Þýskalands til að kaupa afmælisgjöf fyrir Ásbjörn og versla smá inn. Drengurinn verður 6 ára næsta föstudag og ætlar að halda uppá það á sunnudaginn.
Í morgun fór ég með strákana í heimsókn til Alexanders og co., ég línuskautaði og strákarnir skiptust á að hjóla og hlaupahjóla (þeir eru farnir að rífast um hlaupahjólið, J.I á eitt með þremur hjólum en honum finnst Ásbjörns hjól meira spennandi, kemst hraðar á því.) Þeir léku þar bæði inni og úti og svo fórum við í smá göngutúr og keyptum ís og komum við á róló. Svo... fór ég útí búð og keypti æfingarbekk!!! Bekkurinn er aðallega hannaður fyrir magaæfingar en það er líka hægt að gera allskonar lóðaræfingar á honum, það fylgdu líka lóð með honum. Þannig að nú er ENGIN afsökun fyrir að hafa ekki tíma eða komast ekki í ræktina!!! Ég gerði nokkrar magaæfingar áðan.... fúff.... (þarf nokkuð að útskýra það betur?), ég veit að vöðvarnir eru þarna einhversstaðar... bara málið að kafa eftir þeim og finna þá.

Þessi vika verður stutt hjá mér Hlæjandi. Á þriðjudag er ég í skólanum til kl.12 því þá er hálfur frídagur sem heitir Grundlovsdag og svo er ég í fríi á fimmtudag og föstudag og þannig verður það út júní, jííí....  Ef einhver vill koma langa helgi í heimsókn, þá er ég heima Brosandi.

Næsta laugardag koma foreldrar hans Binna í heimsókn. Við teljum niður dagana Hlæjandi, hlökkum svoo.. til að fá þau til okkar.

En nú er ég orðin tóm!!! Spurning hvort það sé hárliturinn eða??? Kannski er bara komið nóg af bráðgáfuðu bulli Hlæjandi.

ADIOS..... Koss
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Bogga skrifar ...
Vá, fjögurra daga helgar í heilan mánuð?? Ekki slæm upphitun fyrir sumarfrí það :)
Alltaf gaman að lesa fréttir af ykkur. Svo fer að styttast í að þið komið, það verður aldeilis fjör :)
Knús og kremjur,
Bogga
03. júní 2007 klukkan 20:56
Sibba skrifar ...
 
hæhæ vildi bara kvitta núna gleymi alltfa að kvitta . Gaman að heyra í þér hljóðið um daginn og heyri sem fyrst í þér

Kveðja af Reynigrundinni
03. júní 2007 klukkan 21:00
Dísa skrifar ...
Jáhá hlakka svo til að þið komið ....nú er mann farin að telja niður. Til hamingju með drenginn svona fyrirfram :-)
kossar og knús
04. júní 2007 klukkan 10:23
Helena skrifar ...
Til hamingju með afmælið Ásbjörn!!!
6 ÁRA - BRÁÐUM SKÓLASTRÁKUR. VÁ!
KNÚS OG KOSS TIL ykkar allra

Fönix og Holmestrand gengið
08. júní 2007 klukkan 09:16
ragga skrifar ...
Til hamingju með unglinginn:):)

ég er enn að hlæja þetta með skólastofuna.. :D hehehehehehehe..... þú ert æði..;)
08. júní 2007 klukkan 10:38
Lára í Sönder skrifar ...
 
Til lykke med stóra barnið

Knus frá hveitiakrinum
08. júní 2007 klukkan 20:49

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan