Nokkrar afmælismyndir komnar inn.

10. júní 2007 klukkan 21:45
Ég hafði mig í að setja inn nokkrar myndir, en það koma fleiri inn í vikunni. Ég gerði tvær tilraunir til að setja inn FLEIRI myndir en það datt allt út og ég hef ekki meiri þolinmæði Öskrandiarrrggg. Þetta eru myndir úr afmælinu hans Ásbjörns sem við héldum í Katrinelund í dag. Veðrið var yndislegt, steikjandi hiti reyndar en ég ætla samt ekki að kvarta undan honum, ég er búin að bíða eftir þessu veðri síðan á jólum!!!
Við grilluðum pylsur og svo voru kökur í eftirrétt. Einar og Dagmar voru svo sniðug að koma með buslulaug með sér, þannig að krakkarnir nutu þess að sulla og kæla sig. Dagurinn var alveg yndislegur í alla staði Brosandi.

Á föstudaginn fór Ásbjörn með ís og köku í leikskólann. Binni sótti þá snemma þennan daginn og fór með þá útí bæ því þar voru markaðsdagar. Það fór lítil lest um bæinn og hestvagn og svo voru þar líka hoppukastalar og trúðar. Þeir hittu einn voða skemmtilegan trúð sem fékk Ásbjörn til að hjálpa sér við að gera einhverjar kúnstir, hann var voða glaður með það. Þegar þeir komu aftur heim fékk hann loksins afmælisgjöfina sína, búinn að bíða allan daginn eftir henni. Hann var rosa glaður, fékk tölvuspil og leiki og Jóhann Ingi fékk hlaupahjól og er búinn að svífa um á bleiku skýji síðan. Hann segir að hann fékk nýtt hlaupahjól sem er ekki með hjálparadekkjum!! Greyið lillinn er svo vanur að fá notað eftir bróðir sinn og aðra en núna fékk hann nýtt og nýtur þess að segja að Ásbjörn á gamalt hlaupahjól!!!  Svo átti hann hlaupahjól með þremur dekkjum (það eru hjálparadekkin!!) en þetta er með tveimur. Þannig að þeir fengu báðir það sem þeir óskuðu sér Brosandi.

Á laugardaginn komu Jóna og Kobbi til okkar (foreldrar Binna). Þau komu með Norrænu í gær og keyrðu svo hingað til okkar, búið að vera ansi langt ferðalag á þeim. Eftir matinn í gær skelltum við okkur í göngutúr, Ásbjörn sýndi þeim skólann sinn og svo sýndu bræðurnir þeim leikskólann sinn. Svo í dag var þeim dembt beint í action = barnaafmæli, hehe...  þetta var nú ekkert svaka dæmi þetta afmæli, við vissum ekki af börnunum, þau voru bara á fullu að leika eða aðallega að sulla allan daginn Brosandi. Vikan verður róleg, við Binni erum í skólanum en við vorum að spá í að skreppa til Kiel á föstudaginn, ég held við séum innan við 2 klst. að keyra þangað.

Ég læt þetta duga í bili, langur dagur í skólanum á morgun þannig að best að drífa sig í draumalandið.

Ég lofa myndum í vikunni, þ.e.a.s. ef tæknin klikkar ekki!!!!

Knús og kremjur...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Ragnheiður frænka og stelpurnar skrifar ...
 
Elsku Ásbjörn ynnilega til hamingju með afmælið þitt, af okkur er allt gott að frétta erum aðeins byrjuð að pakka niður fyrir flutninginn .
Það er alltaf jafn gaman að lesa bloggið þitt elsku frænka , vest hvað ég er löt að kvitta fyrir
bið að heilsa öllum kossar og knús
10. júní 2007 klukkan 22:16
Dísa skrifar ...
Hæ hæ
Til hamingju með afmælið Ásbjörn....frá okkur hérna á vallholtinu.
Skil þig vel varðandi að setja inn myndir ..er nú ekki sérlega dugleg við það sjálf...hí hí hí
Er búinn að taka fullt af myndum af Sunnevu en á eftir að setja inn....fer að vinna í því ..að ég held. Biðjum innilega að heilsa héðan kv. Dísa og co
11. júní 2007 klukkan 19:03
Hæhæ.. mikið er gott að vita hvað þið hafið það gott þarna úti.. og .ið eruð allaveganna heppin með veður..!! það er búið að vera voða heitt í dag 19 stiga hiti, en þá var ég náttla að vinna, eins og alla aðra daga en jæja!!! en ég var bara að vinna til 4 í dag þannig að ég skellti mér í sund eftir vinnu!! voða notó, og ná sér í smá brúnku og freknur.. hehe! en allveganna þá er ég að vinna í ALLT sumar, og er alveg sama hvernig veður er hérna!! hehe.. Hlakka til að hitta ykkur öll.. Sjáumst hress og bið að heisla í bili..
Elísabet frænka..
12. júní 2007 klukkan 20:20
Rakel skrifar ...
 
HÆ hæ,

Hlakka til að sjá ykkur þegar þið komið heim. Við Steinar erum að fara til Rhodos 23.júní með fjölskyldunni minni. Mamma 60 ára 28.júní. Annars allt gott að frétta hérna heima.
Bið að heilsa
kveðja
Rakel :)
13. júní 2007 klukkan 16:26

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan