Blómin springa út og ţau svelgja í sig sól....
17. júní 2007 klukkan 10:25
sumarið í algleymi og hálft ár enn í jól. Í hjarta sínu fólkið gleðst og syngur lítið lag, því lýðveldið Ísland á afmæli í dag.
Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei, það er kominn 17 júní....
Gleðilega þjóðhátíð 
Þetta er nú svolítið skrítin tilfinning, að í gær héldum við Sönderborgar- íslendingar uppá 17 júní!!! Það var vegna þess að það hentaði betur að halda uppá það á laugardegi. Og þó þetta hafi verið "plat" 17 júní, þá rigndi samt!!! og það á örugglega líka eftir að rigna í dag. En það var mjög gaman í gær. Við fórum í skrúðgöngu- smá hring með fánabera í broddi fylkingar. Svo las fjallkonan upp ljóð (fyrsta skiptið á ævinni sem ég hlusta á það sem fjallkona les upp!!!). Svo var íþróttasalur fyrir börnin með fullt af leiktækjum og grillaðar pylsur og íslenskt nammi. Svo um kvöldið var opið hús fyrir fullorðna fólkið. Binni kíkti þangað en ég fór á stelpukvöld til Sólveigar. Við í föndurklúbbnum héldum surprice afmælisveislu fyrir Dagmar sem heppnaðist súper vel.
Á síðasta miðvikudag þegar ég kom heim úr skólanum var Binni búinn að kaupa uppþvottavél
. Hann var víst búinn að vera að laumupúkast með það í nokkra daga án þess að mig grunaði neitt. Á þriðjudaginn sá ég einhverja óreiðu í einum eldhússkápnum og lagaði til í honum og fann þá nokkrar lausar skrúfur og skrúfjárn þar inni. Ég var að spá hvernig í ósköpunum skrúfjárnið hefði getað dottið þarna niður en gekk svo bara frá því en þá hafði Binni verið að reyna að losa skápinn fyrir uppþvottavélina en sagði mér ekki neitt!!! Þannig að þetta kom bara skemmtilega á óvart. Og ég verð líka að játa það að þetta er mjög þægilegt tæki og eldhúsið er miklu snyrtilegra
.
Á föstudaginn fórum við til Kiel í Þýskalandi. Við fórum barnlaus því enn og aftur redduðu Lára og Gummi okkur með því að sækja gaurana í leikskólann og pössuðu þar til við komum heim. Við fórum í Ikea og versluðum slatta þar og Jóna og Kobbi gáfu okkur nýtt matarstell, rosalega flott
. Svo keyptum við okkur kaffistell í sömu línu og matarstellið og ýmislegt fleira. Svo fórum við líka í verslunarmiðstöð sem var rétt hjá Ikea og þar fór ég í H&M og keypti mér buxur.
Og svo ég vaði nú úr einu í annað... eins og vanalega.
Það er hann nágranni minn....
Ég held barasata að hann hafi mikla sýningaþörf. Það fer nú ekki mikið fyrir þessum manni en.......... hann gerir mikið af því að hafa útidyrahurðina sína galopna og svo liggur hann í sófanum sínum á nærbrókunum og klórar sér í rassgatinu (allavega stundum). Og ástæðan fyrir því að maður laumar augunum inn til hans er ekki sú að hann sé einhver kroppur eða þannig, ó nei.... hann er sko ekkert augnakonfekt. Ég veit eiginlega ekki af hverju maður horfir þarna inn, kannski við vonumst bara til að hann sé búinn að þrífa hjá sér en ylduskítafýlan á stigaganginum gefur það nú vel til kynna að hann sé ekki búinn að því. Draslið og viðbjóðurinn inni hjá honum... þvílíkur vibbi
. Og það er svo leiðinlegt bæði að bjóða okkur familíunni uppá þetta og gestunum okkar, það er ekki annað hægt en sjá þarna inn þegar við löbbum inn til okkar og stundum verður mér bumbult af fýlunni. Við fengum gesti til okkar síðasta fimmtudagskvöld og þegar þeir voru að fara stóðu þeir fyrir framan hurðina hjá karlinum, með símana sína og voru að reyna að taka mynd af herlegheitunum (ég veit þetta hljómar ekki vel) en allavega þá stóð karlinn upp og lokaði hurðinni og hún er búin að vera lokuð síðustu tvo daga en því miður í morgun var hann aftur farinn að viðra út hjá sér. Og svo talaði Binni um þetta við manninn á neðri hæðinni og hann tók þetta fyrir á húsfundi og nágranna okkar verður sent bréf um að hann verði vinsamlegast beðinn um að halda hurðinni sinni lokaðri og beðinn um að hafa eitthvað meira en nærbrækur utaná sér þegar hann gengur um ganga blokkarinnar, það hefur nefnilega sést til hans á naríunum niðrí kjallara.
Já, þannig var nú það.
Í dag stefnum við á bæjarrölt og svo bara einhver rólegheit
.
Og meðan ég man, þá er ég búin að setja restina af afmælismyndunum inn... og ég hélt geðheilsunni á meðan. Þetta tekur nefnilega alltaf svo hrikalega langan tíma að vista myndirnar inn.
Over and out í bili....
Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei, það er kominn 17 júní....
Þetta er nú svolítið skrítin tilfinning, að í gær héldum við Sönderborgar- íslendingar uppá 17 júní!!! Það var vegna þess að það hentaði betur að halda uppá það á laugardegi. Og þó þetta hafi verið "plat" 17 júní, þá rigndi samt!!! og það á örugglega líka eftir að rigna í dag. En það var mjög gaman í gær. Við fórum í skrúðgöngu- smá hring með fánabera í broddi fylkingar. Svo las fjallkonan upp ljóð (fyrsta skiptið á ævinni sem ég hlusta á það sem fjallkona les upp!!!). Svo var íþróttasalur fyrir börnin með fullt af leiktækjum og grillaðar pylsur og íslenskt nammi. Svo um kvöldið var opið hús fyrir fullorðna fólkið. Binni kíkti þangað en ég fór á stelpukvöld til Sólveigar. Við í föndurklúbbnum héldum surprice afmælisveislu fyrir Dagmar sem heppnaðist súper vel.
Á síðasta miðvikudag þegar ég kom heim úr skólanum var Binni búinn að kaupa uppþvottavél
Á föstudaginn fórum við til Kiel í Þýskalandi. Við fórum barnlaus því enn og aftur redduðu Lára og Gummi okkur með því að sækja gaurana í leikskólann og pössuðu þar til við komum heim. Við fórum í Ikea og versluðum slatta þar og Jóna og Kobbi gáfu okkur nýtt matarstell, rosalega flott
Og svo ég vaði nú úr einu í annað... eins og vanalega.
Það er hann nágranni minn....
Ég held barasata að hann hafi mikla sýningaþörf. Það fer nú ekki mikið fyrir þessum manni en.......... hann gerir mikið af því að hafa útidyrahurðina sína galopna og svo liggur hann í sófanum sínum á nærbrókunum og klórar sér í rassgatinu (allavega stundum). Og ástæðan fyrir því að maður laumar augunum inn til hans er ekki sú að hann sé einhver kroppur eða þannig, ó nei.... hann er sko ekkert augnakonfekt. Ég veit eiginlega ekki af hverju maður horfir þarna inn, kannski við vonumst bara til að hann sé búinn að þrífa hjá sér en ylduskítafýlan á stigaganginum gefur það nú vel til kynna að hann sé ekki búinn að því. Draslið og viðbjóðurinn inni hjá honum... þvílíkur vibbi
Já, þannig var nú það.
Í dag stefnum við á bæjarrölt og svo bara einhver rólegheit
Og meðan ég man, þá er ég búin að setja restina af afmælismyndunum inn... og ég hélt geðheilsunni á meðan. Þetta tekur nefnilega alltaf svo hrikalega langan tíma að vista myndirnar inn.
Over and out í bili....
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Og til hamingju með uppþvottavélina, þetta er auðvitað þvílíkur munur og héðan í frá verður ekki aftur snúið hjá ykkur. Erfitt að munda uppþvottaburstann þegar maður hefur prófað að eiga þetta þarfaþing :)
Alltaf gaman að lesa pistlana frá þér mín kæra!
Kveðja til strákanna,
Bogga
til hamingju með uppþvottavélina:) þvílíkt þægilegt apparat..;)
knús á liðið..:)
Maðurinn á neðri hæðinni fór víst og talaði við karlinn í dag, þannig að vonandi lagast þetta. Ég sagði einni vinkonu minni frá þessu um daginn og henni fannst þetta frekar ógeðslegt en svo kom hún í heimsókn og sá þetta og hún sagði að þetta væri miklu verra en hún hafði ímyndað sér, henni virkilega bauð við þessu eins og öllum öðrum sem hafa séð inn til hans!!
Og uppþvottavélin: þvílík snilld...
Binni er búinn að vera sérstaklega spenntur yfir henni og sérstaklega daginn sem við fengum hana. Ég beið bara eftir að hann færi útá götu og byðist til að sjá um uppvaskið fyrir fólk, maður fékk varla að klára af diskunum fyrir spenningi hjá honum, hehehehe....
Vonandi verður eitthvað gert varðandi nágrannan þinn.
Hlakka rosalega til að sjá þig og þína þann 28. Bara 11 dagar í ykkur :-)