Stutt og laggott....
03. júlí 2007 klukkan 22:31
að þessu sinni. Það er rosalega fínt að vera komin til Íslands. Veðrið búið að vera yndislegt. Stuttbuxnaveður alla daga hingað til og ég meira að segja orðin smá brún, ótrúlegt en satt. Vonandi verður svona gott veður áfram, allavega út júlí
.
Í gær löbbuðu ég og Elmar uppá Akrafjallið og kvittuðum í gestabókina á Háahnjúk. Það er komið ár síðan ég labbaði þangað síðast þannig að þetta frekar erfitt
... en erfiðisins virði. Ég fékk hrikalegt hælsæri og ætla að leyfa því að gróa og svo ætla ég líklega að labba á Geirmundartind í vikunni og kvitta í gestabókin þar, það er nefnilega algjört möst að komast á toppinn til að kvitta!!
Ég ætlaði bara að hafa þetta stutt að þessu sinni, rétt að láta vita að við séum á lífi.
Ég hafði líka hugsað mér að taka mér smá sumarfrí frá blogginu, njóta góða veðursins og svoleiðis. Þannig að næsta blogg verður líklega ekki fyrr en í ágúst.
Vona að allir hafi það rosa gott og eigi gleðilegt sumar
.
Bestu kveðjur, Ágústa.
Í gær löbbuðu ég og Elmar uppá Akrafjallið og kvittuðum í gestabókina á Háahnjúk. Það er komið ár síðan ég labbaði þangað síðast þannig að þetta frekar erfitt
Ég ætlaði bara að hafa þetta stutt að þessu sinni, rétt að láta vita að við séum á lífi.
Ég hafði líka hugsað mér að taka mér smá sumarfrí frá blogginu, njóta góða veðursins og svoleiðis. Þannig að næsta blogg verður líklega ekki fyrr en í ágúst.
Vona að allir hafi það rosa gott og eigi gleðilegt sumar
Bestu kveðjur, Ágústa.
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
knús
kv
Lilja og co
Takk fyrir heimsóknina, æðislegt að hitta ykkur. Sjáumst vonandi aftur fljótlega. Kveðja Dísin
Hlakka til að fylgjast með í ágúst ( það þýðir ekki að klikka á svoleiðis fyrirheitum ) hehe