Blessuð blíðan...
08. ágúst 2007 klukkan 13:15
Jæja, þá er ég komin heim. Ég viðurkenni nú að ég er smá heimþrá til Íslands, var orðin svo heimakær eftir þessa 5 vikna, yndislegu dvöl. En það er nú samt gott að vera komin heim til sín. Er ekki heima alltaf best, hvar svo sem maður býr?
Ferðin gekk rosalega vel og þvílíkur munur að taka flug alla leið til Sönderborg og ENGIN LEST
.
Veðrið er alveg rosalega fínt, sól og blíða. Ég svitnaði bara endalaust í gær og fór í bað og vaknaði síðan sveitt í morgun, næs
.
Við byrjuðum á því í gær að sjá íbúðina hjá Svan og Elsu, það var rosa fínt hjá þeim og svo var skroppið í búðina til að eiga nesti í skólann og svo var okkur Ásbirni boðið í mat til Dagmar og Arnar.
Svo dílaði ég við Ásbjörn um að fá að raka hann einu sinni enn, því það er svo heitt ennþá, fékk samþykki fyrir því og eftir baðið horfðum við á sjónvarpið. Ásbjörn sofnaði nú fljótlega en ég reyndi að pína mig áfram því það var einmitt mynd í sjónvarpinu sem mig lefur langað að sjá í nokkur ár (How to lose a guy in 10 days), en ég bara gat ekki haldið augunum opnum
. En það er bara allt í lagi því Elsa á víst þessa mynd og ætlar að lána mér hana
.
Ásbjörn fór í skólann í morgun en var samt bara stutt í dag. Honum fannst mjög erfitt að kveðja en sagði svo að dagurinn hafi verið mjög skemmtilegur þegar ég sótti hann.
Ég er í fríi út þessa viku þannig að hann verður stutt í skólanum á meðan. En ég ætla að mæta í skólann næsta mánudag og þriðjudag. En á miðvikudaginn er fyrsti skóladagurinn hjá Ásbirni (hann er núna í skóladagvistun) og þá mæta foreldrar með og allir syngja saman og svo er kaffi fyrir foreldra.
Svo pantaði ég tíma hjá lækni í dag en kemst ekki að fyrr en fimmtudag í næstu viku
. Hringdi svo í skólann til að láta vita af því og að ég kæmi í skólann á mánudag og þriðjudag og sagði þeim að ég væri með gallsteina, ég var bara búin að segja þeim að ég hafi verið veik. Kennarinn sagði að ég ætti bara að taka mér frí þar til ég væri búin að tala við lækninn og ég þurfti að grípa frammí fyrir henni til að segja henni að ég væri alveg hress og ÆTLI að koma í skólann þessa tvo daga í næstu viku!! Ég er farin að halda að þær haldi að ég sé fárveik og gjörsamlega vafin í bómul en... það er nú fjarri!!!!
Ég ætla samt að stefna að því að láta fjarlægja steinana, þá þarf ég ekki að velta mér meira uppúr þeim og kvíða fyrir að fá næstu verki. Ég finn oft pínu til en ekkert til að tala um.
Á morgun ætla ég í bæjarleiðangur að skoða skólatöskur fyrir Ásbjörn og þegar hann er búinn í skólanum kemur hann með mér í bæinn og velur sér tösku. Spennó
.
Jæja best að fara gera ekki neitt....
Bless í bili.....
Ferðin gekk rosalega vel og þvílíkur munur að taka flug alla leið til Sönderborg og ENGIN LEST
Veðrið er alveg rosalega fínt, sól og blíða. Ég svitnaði bara endalaust í gær og fór í bað og vaknaði síðan sveitt í morgun, næs
Við byrjuðum á því í gær að sjá íbúðina hjá Svan og Elsu, það var rosa fínt hjá þeim og svo var skroppið í búðina til að eiga nesti í skólann og svo var okkur Ásbirni boðið í mat til Dagmar og Arnar.
Svo dílaði ég við Ásbjörn um að fá að raka hann einu sinni enn, því það er svo heitt ennþá, fékk samþykki fyrir því og eftir baðið horfðum við á sjónvarpið. Ásbjörn sofnaði nú fljótlega en ég reyndi að pína mig áfram því það var einmitt mynd í sjónvarpinu sem mig lefur langað að sjá í nokkur ár (How to lose a guy in 10 days), en ég bara gat ekki haldið augunum opnum
Ásbjörn fór í skólann í morgun en var samt bara stutt í dag. Honum fannst mjög erfitt að kveðja en sagði svo að dagurinn hafi verið mjög skemmtilegur þegar ég sótti hann.
Ég er í fríi út þessa viku þannig að hann verður stutt í skólanum á meðan. En ég ætla að mæta í skólann næsta mánudag og þriðjudag. En á miðvikudaginn er fyrsti skóladagurinn hjá Ásbirni (hann er núna í skóladagvistun) og þá mæta foreldrar með og allir syngja saman og svo er kaffi fyrir foreldra.
Svo pantaði ég tíma hjá lækni í dag en kemst ekki að fyrr en fimmtudag í næstu viku
Ég ætla samt að stefna að því að láta fjarlægja steinana, þá þarf ég ekki að velta mér meira uppúr þeim og kvíða fyrir að fá næstu verki. Ég finn oft pínu til en ekkert til að tala um.
Á morgun ætla ég í bæjarleiðangur að skoða skólatöskur fyrir Ásbjörn og þegar hann er búinn í skólanum kemur hann með mér í bæinn og velur sér tösku. Spennó
Jæja best að fara gera ekki neitt....
Bless í bili.....
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
kveðja frá Esbjerg:)