ÁRÁS......

10. ágúst 2007 klukkan 08:25

Ég lenti í frekar "skemmtilegri" lífsreynslu í nótt!! Ég hef reyndar lent í þessari sömu lífsreynslu áður en þá átti ég ekkert vopn!!
Þannig er mál með vexti að þegar ég var að fara að sofa í gærkvöldi heyrði ég alltaf einhver hljóð og grunaði að það væri bara vindurinn að blása á gardínurnar. EN... ég er svo klikkuð, að ég varð endilega að kveikja ljósið til að sjá hvort ég hafði ekki örugglega rétt fyrir mér, og jú ég hafði sko rétt fyrir mér. En auðvitað á maður aldrei að kveikja ljós að nóttu til með opinn gluggann, dööö....
Þegar ég ætlaði svo loksins að fara að sofa aftur (vitandi það að skrítna hljóðið kæmi frá gardínunum!!!) þá heyrist... bisssss...... við eyrað á mér og ég slæ frá frá mér, bíð svo í smá stund og bissss.... sama sagan endurtekur sig nokkrum sinnum. Þá mundi ég eftir því að snillingurinn hann Ásbjörn vildi endilega að ég keypti fyrir sig flugnaspaða í gærdag og mín sótti spaðann, lokaði glugganum, kveikti á sjónvarpinu og beið eftir helv.... mýflugunni og viti menn, ég smjallaði henni, múhahaha... Svalur. Og fékk svo að sofa óáreitt í alla nótt.  Helv... hefur þó náð að setjast einu sinni á mig, ég er með svakalegt bit á innanverðu lærðinu og svo er ég með bit frá því í gærdag á sköflungnum. Ég held ég fjárfesti í kláðaspreyji í dag víst flugurnar eru orðnar svona ástfangnar af mér Óákveðinn.

En nóg um það.

Ásbjörn var rosalega duglegur í gærmorgun þegar ég fór með hann í skólann, sagði bara bless við mig og ekkert mál. Eftir skóla fórum við að kaupa skólatösku. Ég var búin að skoða í allar búðir fyrr um daginn en það var bara svo lítið úrval til. Skólatöskusalan hefur örugglega byrjað í júlí og nú er allt að verða búið, það er ekkert verið að panta meira í þessar búðir!!! Við fundum samt fína tösku með öllu tilheyrandi: nestisboxi, brúsa, íþróttatösku og meira að segja regnpoka til að hylja töskuna með. Og svo held ég að hún sé góð fyrir bakið og böndin á henni eru góð. Ég kann ekkert á svona skólatöskuval og reyndi því að velja tösku með góðu baki, en mér sýnist hún mjög lík JEVA töskunum, mig langaði svo að kaupa svoleiðis.
Í gærkvöldi fórum við svo að borða á Mc´donalds, ég var búin að lofa honum því ef hann yrði duglegur í skólanum.  Svo tilkynnti hann mér það að hann vildi vera lengur í skólanum í dag, eða til kl.15

Hann var líka mjög duglegur að fara í skólann í morgun, samt pínu erfitt en hann hafði mikið fyrir að harka það af sér. Jónas vinur hans var ekki kominn svo hann var pínu ráðvilltur þarna. Eftir skóla ætlum við að heimsækja Tristan vin hans, Ásbirni er búið að hlakka mikið til þess Brosandi.

Ég má nú ekki gleyma aðal "kjaftasögunni" !!!  Hehe...
Hún er um vibbann hérna við hliðna á mér. Ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum, það er komin austurlensk kona og tvö börn til hans í íbúðina. Hummm... ég trúi því nú samt ekki að hann sé genginn út!! Á póstkassanum hans standa tvö önnur nöfn, sem hann hefur sjálfur sett á fyrir löngu síðan og ég hélt bara að hann væri farin að nafngreina pöddurnar inni hjá sér!! En kannski eru þetta börnin hans??? Humm... ég held ég verði að fara að leggjast á gæjugatið á hurðinni, híhí.... djók.

Ég er alveg að drepast úr leti. Hafði hugsð mér að fara til Þýskalands að versla en bara nenni því ekki. Og ekki get ég látið eftir mér að skríða aftur uppí rúm þó ég hafi staðið í stríði í nótt. Humm... mér þykir það samt góð afsökun en nei...

Eitt enn:

Til hamingju með afmælið elsku pabbi minn, vona að þið hafið það gott í útilegunni.

Knús og kremjur...

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Dísa skrifar ...
Leiðinlegt að heyra hvað helv... flugurnar eru orðnar árasagjarnar..en þetta fylgir ágúst og september. Jiiii en gaman að heyra scoop af grannanum..eins og alltaf er þetta þvílík spennusaga um hvað gerist næst hjá kallinum hí hí hí
10. ágúst 2007 klukkan 10:32
Ragnheiður skrifar ...
 
Ég vil nú bara byrja á því að segja að ég SAKNA ÞÍN ALVEG ÓGEÐSLEGA MIKIÐ ELSKU FRÆNKA en nóg um það
Hvað er með kallinn þarna á móti þetta fer að verða ógurlega spennandi haltu endilega áfram að segja frá honum , gott að allt gengur vel með Ásbjörn í skólanum kisstu hann frá okkur bið að heilsa í bili
10. ágúst 2007 klukkan 20:47
Ágústa skrifar ...
 
Ég sakna þín líka Ragnheiður mín :o) og ykkar allra. Það var svo gaman að tölta yfir til ykkar í kaffi, alveg eins og í gamla daga :o)
11. ágúst 2007 klukkan 20:52

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan