Hinn helmingurinn...
14. ágúst 2007 klukkan 21:19
af fjölskyldunni er á leiðinni heim í fyrramálið. Við Ásbjörn erum búin að hafa það mjög gott hér tvö saman en það verður gott að fá Jóhann Inga og Binna heim. Við erum búin að telja niður dagana með því að krossa við á dagatalinu. Dagný systir Binna fylgir þeim heim og hlökkum við líka til að fá hana loksins í heimsókn
.
Á síðasta laugardag lenti Binni í vinnuslysi. Það brotnuðu allar tær og ristin mölbrotnaði á hægri fæti. Löppinni var púzzlað saman og hann á að vera í gipsi í 8-10 vikur. Járnblendið var svo almennilegt að bjóða fylgdarmanni með honum út, mér var farið að dauð kvíða fyrir að hann væri að dröslast um Kastrup á hækjum, með töskur, hjól og Jóhann Inga. Sá þetta ekki alveg fyrir mér, (en Nautið er þrjóskt, gerir það sem það ætlar sér!!
).
Dagný ætlar að vera hjá okkur til sunnudags og ég bara í fríi alla dagana
.
Ég byrjaði aftur í skólanum í gær eftir 5 vikna frí... og jeminn hvað ég er ekki að nenna því
. Það er frekar erfitt að rífa sig upp eldsnemma og fara í "vinnu" aftur. Allur mánudagurinn fór nú samt í snyrtikynningu frá Guniot, það var fínt en það tók á heilastöðvarnar að þurfa allt í einu að hugsa og einbeita sér.
En ég er bara í skólanum í 2 daga þessa vikuna, s.s. 5 daga helgarfrí!!! (Ef það er hægt að kalla það helgarfrí?)
Ég tók mér frí á morgun (miðvikudag), því þá er fyrsti skóladagurinn hjá Ásbirni og svo fer ég til læknis á fimmtudaginn. Ætla að ath. hvort ég komist í aðgerð v/gallsteinanna.
Eftir skóla í dag fór ég með Ásbjörn útí búð til að kaupa ný föt á hann fyrir skólann. Hann var nú ekkert að nenna þessu fatastússi, ég fann bara einar íþróttabuxur og Spidermanpeysu, en mig langaði að kaupa betri buxur á hann en fann ekki í þessari búð og minns bara neitaði að fara í fleiri búðir -byrjar snemma!!! (þá meina ég: karlmaður og búðir!!!). Heheh..
Ég verð víst að svekkja ykkur yfir að ég hef engar nýjar sögur af nágranna mínum
. Ég hef verið svo lítið heima og því ekkert getað njósnað!!! En hann er allavega voða glaður alltaf og "spjallar" smá þegar ég mæti honum eða skítur einhverju til mín um veðrið og þess háttar!!!
Eins og þið sjáið er voðalega lítið um að vera hjá mér, það er farið að rjúka úr hausnum á mér sem þýðir að ég er að rembast við koma einhverjum orðum hér inn. Er gjörsamlega tóm í hausnum.
En áður en ég kveð vil ég óska Sibbu og Rabba til hamingju með litla prinsinn sinn, jii.. hann er svo sætur
.
Og svo vil ég enn og aftur óska Boggu og Tóta til hamingju með giftinguna
.
Over and out...
Á síðasta laugardag lenti Binni í vinnuslysi. Það brotnuðu allar tær og ristin mölbrotnaði á hægri fæti. Löppinni var púzzlað saman og hann á að vera í gipsi í 8-10 vikur. Járnblendið var svo almennilegt að bjóða fylgdarmanni með honum út, mér var farið að dauð kvíða fyrir að hann væri að dröslast um Kastrup á hækjum, með töskur, hjól og Jóhann Inga. Sá þetta ekki alveg fyrir mér, (en Nautið er þrjóskt, gerir það sem það ætlar sér!!
Dagný ætlar að vera hjá okkur til sunnudags og ég bara í fríi alla dagana
Ég byrjaði aftur í skólanum í gær eftir 5 vikna frí... og jeminn hvað ég er ekki að nenna því
En ég er bara í skólanum í 2 daga þessa vikuna, s.s. 5 daga helgarfrí!!! (Ef það er hægt að kalla það helgarfrí?)
Ég tók mér frí á morgun (miðvikudag), því þá er fyrsti skóladagurinn hjá Ásbirni og svo fer ég til læknis á fimmtudaginn. Ætla að ath. hvort ég komist í aðgerð v/gallsteinanna.
Eftir skóla í dag fór ég með Ásbjörn útí búð til að kaupa ný föt á hann fyrir skólann. Hann var nú ekkert að nenna þessu fatastússi, ég fann bara einar íþróttabuxur og Spidermanpeysu, en mig langaði að kaupa betri buxur á hann en fann ekki í þessari búð og minns bara neitaði að fara í fleiri búðir -byrjar snemma!!! (þá meina ég: karlmaður og búðir!!!). Heheh..
Ég verð víst að svekkja ykkur yfir að ég hef engar nýjar sögur af nágranna mínum
Eins og þið sjáið er voðalega lítið um að vera hjá mér, það er farið að rjúka úr hausnum á mér sem þýðir að ég er að rembast við koma einhverjum orðum hér inn. Er gjörsamlega tóm í hausnum.
En áður en ég kveð vil ég óska Sibbu og Rabba til hamingju með litla prinsinn sinn, jii.. hann er svo sætur
Og svo vil ég enn og aftur óska Boggu og Tóta til hamingju með giftinguna
Over and out...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir