Rólegheit...

18. ágúst 2007 klukkan 15:46

Nú eru ferðalangarnir komnir og Dagný reyndar farin aftur!!
Ferðalagið gekk mjög vel hjá þeim, enda svosem ekki við öðru að búast!!
Binni þurfti að fara á sjúkrahúsið næsta dag og láta lappa aðeins uppá gifsið, það blotnaði aðeins í Kaupmannahöfn. Annars er hann búinn að vera ágætur í löppinni samt fyrir utan smá verki. Hann verður bara að passa sig að taka því rólega rétt á meðan þetta nær að gróa og njóta þess að liggja með tærnar uppí loftið -í orðsins fyllstu merkingu Glottandi. Svo var hann svo sætur í sér og gaf mér gjöf þegar hann kom. Ég fékk rosalega fallegt úr frá DKNY Brosandi.

Jóhanni Inga var demt beint í leikskólann daginn eftir að hann kom heim, hann var alveg sáttur við það. Ég sótti hann bara snemma og á heimleiðinni komum við við í búð. Hann var svo agalega þreyttur og ég spurði hann útí það og minns svaraði agalega dramatískt: Já, ég er alveg að deyja!! Og þegar við vorum komin heim var hann kominn með hita Óákveðinn. Þannig að hann hefur fengið að dúsa inni síðan en fær að fara út á morgun.

Það var rosalega gaman að fá Dagný í heimsókn. Við gerðum nú ekkert mikið en tókum þó búðarölt alla dagana, kíktum á útsölurnar. Og í gær keyrðum við til Gråsten sem er um 15 km héðan og gengum um sumarbústaðagarð drottningarinnar. Þetta er nú engin smá smíði af sumarhúsi, heill kastali!!! Og garðurinn mjög flottur.

Ásbirni gengur mjög vel í skólanum. Hann er svo stoltur og sáttur þegar hann kemur þangað, segir bara bless við mig og gengur í sætið sitt (þvílíkur munur, það er svo erfitt að þurfa að skilja við hann þarna ósáttann). Hann fær stuðningskennslu nokkra tíma í viku, ásamt 3 öðrum erlendum krökkum og einn dag í viku læra krakkarnir úti í náttúrunni, sama hvernig viðrar. Mér finnst það hljóma mjög vel.

Nú er nágranni minn fluttur!!! Hann sagði mér að konan hans og börn væru komin til hans og þau hafi þurft að flytja í stærra (ææ). Nú angar gangurinn ekki lengur og engin ófögur sjón þegar maður kemur heim Brosandi. Vona bara að það sé einhver almennilegur sem kemur í staðinn. Ekki það að þessi maður hafi verið eitthvað slæmur, hann var bara bölvaður sóði.

Svo er verið að skipuleggja húsmæðraferð til Póllands Hlæjandi.
Það er verið að safna saman konum og bílum og stefnt á að fara í október og vera eina helgi. Og auðvitað á að kaupa kristala og princ polo.
Ég ætla að reyna að komast ef ég fæ að sitja í með einhverjum, treysti nefnilega ekki "sænska eðalvagninum" svona langt út fyrir landssteinana.
Og svo fer það líka eftir því hvernig stendur á með gallsteinaaðgerðina.
Ég fór í blóðprufu á fimmtudag og fæ útúr henni eftir helgi og svo fer ég í ómskoðun eftir rúma viku. Ég veit ég er óþolinmóð að eðlisfari en mér finnst þetta samt taka alltof langan tíma. Það liggur við að ég vonist eftir næsta krampa til að komast bara beint á skurðborðið!!! Ég nenni ekki að standa í þessu veseni.

Þangað til næst..... bless í bili....

Eitt enn..... smá áskorun.....
Það yrði rosa gaman ef þið yrðuð duglegri að kommenta eða kvitta í gestabókina. Það er nefnilega svo gaman að sjá hverjir eru að kíkja við. Ég bíð alltaf spennt eftir kvitti Brosandi.  KOMA SVO.....

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Dísa skrifar ...
Hæ sæta...vildi bara kasta á ykkur einni kveðju...
Leiðinlegt að heyra að granninn sé farinn :-( En auðvitað gott að því leytinu til að lyktin fór með honum ha ha ha ....Vonandi kemstu í ferðina..alltaf gaman í kelluferðum...búðir og bús hí hí hí
Kv. Dísa
19. ágúst 2007 klukkan 00:15
Dagný skrifar ...
 
Takk fyrir síðast og takk fyrir mig. Þetta var ljómandi fæin ferð :-) Bið að heilsa Orm og Gorm og batakveðju á gamla mannin ;-)
Kv Dagný
19. ágúst 2007 klukkan 09:50
Lilja Guðrún skrifar ...
 
kvitt kvitt:)
3 dagar í köben hjá mér:)
knús
Lilja
19. ágúst 2007 klukkan 20:39
Jóna Björk skrifar ...
Ég þori ekki annað en að kvitta;)
kveðja frá Esbjerg,
Jóna og co.
20. ágúst 2007 klukkan 06:07
Rakel skrifar ...
 
Heil og sæl,

Fer inná síðuna nánast á hverjum degi, þannig að nú verð maður að taka sig á og kvitta ekki satt? :)
Bið að heilsa ykkur,
knús
Rakel
20. ágúst 2007 klukkan 13:59
Bogga skrifar ...
Kvitt, kvitt!
Alltaf gaman að lesa hjá þér elskan mín.

Vonandi fara læknarnir að drífa sig að behöndla þig svo þú þurfir ekki að bíða eftir næsta krampakasti. Er ekki bara hægt að feika þessi köst svo þeir dembi þér undir hnífinn? Nei, bara spyr svona eins og fávís kona.

Smá mont líka: mín fór alla leið upp á Esju í dag :) þetta líka smá dugleg!
Sakna þín alveg hrikalega,
kveðja,
Bogga
20. ágúst 2007 klukkan 23:03
Elísabet frænka skrifar ...
hæhæ.. alltaf gaman að skoða bloggið þitt.. og fá að forvitnast hvað þið eruð að gera!!!
Allt fínt að frétta héðan af faxabrautinni;)

p.s ætla að kvitta í gesta bókina líka og segja frá ,,fyrsta" skóladeginum í dag... hahah:)
21. ágúst 2007 klukkan 16:42
Ágústa skrifar ...
 
Vá engin smá viðbrögð:o)
Ætlaði ekki að trúa hvað það voru komin mörg komment!!!
Þið eruð algjört æði :o)
21. ágúst 2007 klukkan 19:34
Þórunn frænka skrifar ...
 
Halló öll sömul við vonum að heilsufarið hjá ykkur komist í lag fljótlega, frábært að hafa ykkur hér við hliðina á okkur í sumar.allt gott héðan nóg að gera
kv. frá Faxabrautinni
21. ágúst 2007 klukkan 20:27
Sibba skrifar ...
 
hæhæ kvitt vkitt
21. ágúst 2007 klukkan 22:35
Ásta Laufey - ný dönsk skrifar ...
 
Kvitti kvitt .....
það er ekki að spyrja að plönunum hjá þér hvernig kemstu yfir þetta allt saman hehe. En alltaf gaman að vera í góðum og virkum félagsskap.
Bata kveðjur á karlana þína tvo og á þig auðvita gerðu bara eins og Bogga segir og drífðu þetta af ... Kvitti kvitt og kveðja
22. ágúst 2007 klukkan 17:02
Ella Þóra skrifar ...
 
Þori ekki annað en að kvitta hjá þér :) En ég les bloggið þið reglulega.. Gaman að fylgjast með ykkur í Danaveldi, er að öllum líkindum að koma aftur til Köben í október. verslunarferð og já afslöppun:)
24. ágúst 2007 klukkan 00:08

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan