Svaðilfarir!!!

26. ágúst 2007 klukkan 18:34

Ég er búin að vera alveg einstaklega heppin undanfarið!!! Reyndar er ég voða oft "heppin" en undanfarnir dagar hafa slegið öll met Skömmustulegur.

Day one:
Á miðvikudagskvöldið í síðustu viku keyrði ég ein heim úr skólanum. Það er nú ekki frásögum færandi, nema það að það var svo mígandi rigning að rúðuþurrkurnar höfðu varla undan, himininn svartur og þrumur og eldingar. Mér leist nú ekkert alltof vel á þetta en hélt mig bara í hæfilegri fjarlægð aftan við flutningabíl, þá gat ég elt afturljósin á honum því ég sá varla annað í kringum mig. Síðan gerist það... úúú.... eldingu slær niður, beint fyrir framan bílinn hjá mér á hraðbrautinni. Þetta minnti helst á flugelda, það spýttist glóð upp eftir eldinguna og svo kom reykur og blossi í augun. Ég snarbremsaði að sjálfsögðu og flaut í gegnum reykinn. DJÖFULL var ég hrædd Öskrandi. Ég fór samt ekki að grenja sko, hehe... en ég skalf allavega í korter á eftir og í hvert skipti sem himininn tók að loga byrjaði ég að skjálfa. Svo flaut líka bíllinn hjá mér í einni beygjunni á sveitaveginum, það var nú heldur ekki til að hjálpa mér að slaka á. Já ég var alveg að skíta á mig þarna þetta kvöld, og hugsaði bara að ég yrði að komast heim til mín!!! Og mikið hlýt ég að hafa góða sál sem vakir yfir mér Brosandi.

Day too:
Á föstudaginn fékk Jóhann Ingi astma, eftir næstum eitt ár í pásu. Ég sem hélt hann væri sloppinn, en svoleiðis á maður víst ekki að hugsa.
Hann byrjaði að hósta um morguninn og fór versnandi með deginum og um kvöldið hringdi ég á læknavaktina. Ventolinið hans virkaði ekkert á hann og hin lyfin voru útrunnin!! Hann sendi mig með hann á barnadeildina á sjúkrahúsinu og þar fékk hann 2x friðarpípur og stein svaf á meðan þeim var dælt í hann. Við vorum í u.þ.b. 2 klst. á sjúkrahúsinu og eftir það var hljóðið í honum orðið miklu betra og við fórum heim. Jóhann Ingi stein svaf og ég ætlaði auðvitað styðstu leið heim, sem tekur ca. 5 mín. En nei, það var menningarnótt í bænum og ég lenti í ný störtuðu maraþonhlaupi. Ég var búin að heyra að 800 manns hafi skráð sig í þetta hlaup og ég þurfti að bíða eftir að öll runan færi framhjá bílnum áður en ég mátti keyra af stað og ég var 30 mín. á leiðinni heim til mín.

Það er nú ekki bara búið að vera leiðinlegt hjá okkur undanfarna viku.
Ásbjörn er með 2 lausar tennur og svífur vegna þess um á bleiku skýji. Nú finnst honum hann í ALVÖRU orðinn stór Brosandi.

Og Jóhann Ingi fór til tannlæknis á fimmtudaginn. Hann er búinn að vera stokk bólginn og aumur í tannholdinu. Tannlæknirinn vildi meina að 6 ára jaxlarnir væru að koma upp í drengnum. Og það fyndna við það er að hann fékk fyrstu tönnina sína rúmlega eins árs (ég var farin að halda að barnið yrði tannlaust for ever) og nú er hann að verða 4 ára og er að fá jaxla!!!

Við erum búin að fara einu sinni í Katrinelund, í pic nick. Við hittumst nokkrar ísl. mömmur sem eigum stráka, þannig að þetta var hálfgerður strákadagur. Voða gaman.

Á föstudaginn komu Elsa og Svanur og co. og Dagmar og Örn og við pöntuðum okkur pizzur saman.
Í gærdag fórum við í 5 ára afmælisveislu hjá Tristan, þetta leit reyndar út eins og fermingarveisla af kræsingunum að dæma og auðvitað var borðað yfir sig Skömmustulegur.
Svo var kósýkvöld hjá okkur Dagmar í gærkvöldi Brosandi.
Og í dag fór Ásbjörn í afmæli til bekkjarbróður síns og svo fórum við öll til Svans og Elsu og við elduðum okkur saman.

Ég fékk rosalega skemmtileg skilaboð frá kennaranum hans Ásbjörns um daginn. Í sérkennslunni sem hann er í er hann orðinn svo duglegur að tala að hann talar næstum mest af krökkunum sem eru með honum þar Hlæjandi.
Hann er líka að safna sér punktum, ef hann talar í skólanum fær hann punkt og eftir einhvern tíma fær hann verðlaun, ef hann er duglegur. Og þetta er alveg að virka á hann.

Og svo er eitt enn!!
Binni er búinn að kaupa sér vespu. Þannig að nú kemst hann ferða sinna án þess að vera bundinn við að fá einhvern til að skutla sér. Strákunum finnst þetta algjört æði. Kalla þetta mótorhjól og fá stundum að sitja aftan á hjá Binna og fara smá hring Brosandi. Það verður líka munur fyrir hann að geta farið á vespunni í skólann, því nýji skólinn er svo langt í burtu frá okkur.
Binni fer í gifsskiptingu á næsta fimmtudag. Getur varla beðið eftir að losna við saumana og hækjurnar. Saumarnir eru farnir að pirra hann og hækjurnar alltaf fyrir honum!!!!

Ég verð nú líka að nefna hvað ég var ánægð með viðbrögðin við áskoruninni!!!
Ég vildi nú ekkert vera frek og neyða fólk til að kommenta en það var rosalega gaman að fá svona mörg Gráðugur, hehe..
Það er nefnilega ekkert gaman að skrifa og fá svo engin viðbrögð Glottandi.

Jæja, nú hætti ég. Binni ætlar að fara að rífa í sundur tölvuna, hún er búin að vera svo leiðinleg, á það til að frjósa og svoleiðis vesen. Og bara eins gott að ég nái að vista þessa vitleysu sem ég er búin að skrifa Glottandi.

Knús og kremjur á línuna....


Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Ágústa G. ÁsbjörnsdóttirYes, yes,yes....
Besta tölva í heimi!!!!!
26. ágúst 2007 klukkan 18:40
Dísa skrifar ...
Hæ hæ
Það vantar sko ekki að það sé nóg að gerast hjá ykkur. Kveðja Dísa og co
26. ágúst 2007 klukkan 19:33
Ásta Laufey - ný dönsk skrifar ...
 
Kvitti kvitt ( frekja ) hehe
26. ágúst 2007 klukkan 19:42
Dagný skrifar ...
 
Hallu.
Það má seiga það neisti um þig góða. Fá eldingu svona meint fyrir framan nefið. Gett rétt ímundað mér að það hafi verið hálf óhugnaleg reynsal.
Gaman að heyra að Ásbjörn sé nú farinn að blaðra dönskuna.
Ég er búin að fatt heimsíðuna hjá A-Z. Nýr heimur fyrir mig, he, he :-)
Kv Dagný
26. ágúst 2007 klukkan 19:45
Bogga skrifar ...
Tjá, það er ekki að spyrja að því!
Það er alltaf svo mikið að gerast hjá ykkur þarna úti að ef gerður væri raunveruleikaþáttur, "Ágústa og Binni í Baunalandi", þá myndi ég sitja límd við sjónvarpið yfir honum!

Binni í gifsi á vespu...jaaáááá, ég get alveg séð það fyrir mér :-s

Knús,
Bogga
27. ágúst 2007 klukkan 08:50
Elísabet frænka skrifar ...
ji já mamma þín sagði okkur frá þess með eldinguna.. guð minn góður, ég hafði sko ábyggilega bara farið að grenja úr hræðslu, efast sko ekki um það, en það var gott að ekki fór verr!!!
en já Ásbjörn að fá 6 ára jaxla og ég að fá mína endajaxla.. ooo hvað það er pirrandi vont ;/
en bið að heilsa öllum strákunum þínum!! ;) hehe heyrumst sem fyrst ;)
27. ágúst 2007 klukkan 19:39
Brósi skrifar ...
 
Hæ hæ....er bara allt crazy þarna úti hjá ykkur eldingar og læti :) Heyrðu ég var að spá í hvort þú værir til í að versla afmælis gjafir fyrir guttana og ég millifæri svo á þig? (í staðinn fyrir að vera að senda) Ég var búinn að lofa Ásbirni að hann fengi gjöf frá okkur :) og svo litli kútur líka. Annars bara allt fínt að frétta hjá okkur, ég er byrjaður í nýrri vinnu, búinn kl.15.00 á daginn Selmu til mikillar gremju :):) Við biðjum að heilsa genginu, svo er Selma komin með síðu fyrir glerverkin sín:

"listagler.bloggar.is "

Þú mátt svo skila til Binna að ég er með nokkur skópör af Snorra nr. 39 sem hann er hættur að nota ;) en svona öllu gríni sleppt þá vona ég að hann jafni sig alveg á þessu....

Kv. Gylfi
27. ágúst 2007 klukkan 21:58
Lilja Guðrún skrifar ...
 
Blessuð
Þessi ferð þín minnti mig á ferð sem við fórum saman í borgarnes einn veturinn- á sumardekkjum- þá var nú einhver að passa okkur sko!-)
Gott að allt gangi vel hjá ykkur.

bið að heilsa
kv
Lilja
28. ágúst 2007 klukkan 10:37
Ágústa skrifar ...
 
Jeminn já!! Borgarnesferðin á Toyotunni hans Gylfa, hehe... ég held ég hafi aldrei sagt honum frá þessu (höhömm...)

Takk fyrir strákana Gylfi minn, nú ertu sko uppáhalds frændi. Þeim var búið að dreyma svo lengi um að fá svona rafmagnsbíl sem þeir gætu setið í og keyrt :o)

Híí.... bara grín. Ég skal finna eitthvað flott fyrir þá.
28. ágúst 2007 klukkan 17:58
Brósi skrifar ...
 
:) takk takk.....hvaða toyotu ertu annars að tala um??? :)
29. ágúst 2007 klukkan 00:02
Ágústa skrifar ...
 
Gráa Toyotu Corolla, það eru ca. 10 ár síðan þú áttir hana :o) Fínasti spyrnubíll!! hehe... komst miklu hraðar en Dihatshu-inn hennar mömmu :o)
29. ágúst 2007 klukkan 20:57

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan