Lifið í lukku en ekki í krukku!!!!
31. ágúst 2007 klukkan 20:43
Dagmar kom með þessa skemmtilegu upprifjun af orðataki (eða hvað það kallast) um daginn
. Það var frekar fyndið að rifja þetta upp!!! Maður var alltaf með einhverja "yfirheyrslubók" í skólanum sem heitir Bekkjarfélagar mínir eða eitthvað svoleiðis og þar voru t.d. allskonar svona orðatök skrifuð
.
Það er búið að vera svo lítið að gerast hjá okkur undanfarna viku að ég veit varla hvar ég á að byrja!!!
Fyrstu þrjá daga vikunnar á ég mér varla líf! Það eina sem ég geri er að fara í skólann, eta og sofa.
Á fimmtudaginn skutlaði ég Binna til Aabenraa í gifsskiptingu. Þetta leit nú verra út en búist var við
. Hann fór í röntgen og þar kom í ljós að beinin eru enn ekki farin að grófa og því fékk hann ekki göngugifs eins og honum var búið að dreyma um. Hann á að koma aftur í eftirlit eftir mánuð. Þannig að kallinn verður bara að skakklappast áfram á yndislegu hækjunum sínum
.
Eftir sjúkrahússkutlið skutlaði ég Binna uppí skóla og fór svo í klippingu til Jónu. Hún dekkti mig vel eftir sumarið og klippti svipað og síðast og ég er alveg mjög ánægð með útkomuna.
Síðan fékk ég að passa Hrannar, son Elsu og Svans í smá stund. Hann kom með mér að sækja strákana í skóla og leikskóla. Þeim fannst alveg æði að Hrannar skyldi koma og sækja þá.
Dagurinn í dag er búinn að vera frekar leiðinlegur
. Reyndar byrjaði hann mjög vel! Ég fór að setja bensín á bílinn í morgun og þá var þar kona frá einhverju íþróttafélagi að gefa nýbökuð rúnstykki og smjördollu!! Hún koma bara til mín og rétti mér poka!! Ég var einmitt búin að vera að blóta því að hafa ekki tekið með mér pening til að fara í bakaríið.
En annars er ég búin að hanga inni í allan dag. Er AFTUR orðin bullandi kvefuð og slöpp og búin að sofa alveg svakalega mikið og samt er ég þreytt. Ég er byrjuð að taka vítamín, rosa dugleg= ég er búin að muna eftir þeim tvo daga í röð!!!! Ég held þetta sé bara vegna veðurfarsbreytinga. Það er búið að kólna úti og mikill raki í loftinu.
En ég afrekaði að baka skúffuköku áður en ég sótti strákana, þeim til mikillar ánægju. Þeir fengu Tristan vin sinn í heimsókn í dag, þannig að hér á bæ var strákastuð
, leikið inni og farið út að "frispa" (nýyrði hjá strákunum!! = frisbí).
Á morgun stefnum við á að kíkja til Þýskalands. Það er komið smá pláss í frystinum sem hægt er að fylla uppí!!!
Á síðasta mánudag töluðum við Jóna aðeins við skólastjórann. Okkur vantaði bara pappíra til að senda til Lín. Og í leiðinni fengum við þessa svaka fínu gullhamra frá henni!!! Hún sagðist hafa heyrt það alla leið til Óðinsvé hvað við værum duglegar og Professional eins og hún orðaði það. Hún sagði að hún hafi líka séð það á okkur þegar við sóttum um skólann og sér það enn!!! Og að við höfum þægilega nærveru og kúnnarnir myndu finna það!!! Ég var einhverntímann búin að skrifa um gestakennara sem kom frá skólanum í Kaupmannahöfn, sú sem "hékk" svo yfir okkur og fylgdist með öllu sem við gerðum og hældi okkur endalaust. Hún barst sem sagt í tal við skólastjórann og í ljós kom að þetta er dóttir skólastjórans og hún var búin að segja mömmu sinni frá okkur!!!
. Það var allavega mjög hvetjandi og gaman að heyra svona hól.
Nú er "gamli" hópurinn í skólanum að útskrifast í næstu viku og spenndi að sjá hvort hvort það komi einhverjar nýjar inn. Það verður allavega voða rólegt til að byrja með, því þá erum við bara 4-5 að vinna í einu, enginn mórall og ekki neitt!!
Já svo er ég búin að fara í ómskoðun. Það eru fullt af gallsteinum í mér og læknirinn ætlar að senda beiðni um aðgerð svo nú er bara að bíða eftir bréfi. Vonandi sprengja þeir bara steinana, þá er ég bara einn til tvo daga að jafna mig.
Til hamingju með afmælið í gær Gylfi minn
. Þú ert ávallt jafn unglegur
.
Jæja, held þetta sé orðið ágætt í bili.
Hej, hej... eða mojn, mojn.....
Það er búið að vera svo lítið að gerast hjá okkur undanfarna viku að ég veit varla hvar ég á að byrja!!!
Fyrstu þrjá daga vikunnar á ég mér varla líf! Það eina sem ég geri er að fara í skólann, eta og sofa.
Á fimmtudaginn skutlaði ég Binna til Aabenraa í gifsskiptingu. Þetta leit nú verra út en búist var við
Eftir sjúkrahússkutlið skutlaði ég Binna uppí skóla og fór svo í klippingu til Jónu. Hún dekkti mig vel eftir sumarið og klippti svipað og síðast og ég er alveg mjög ánægð með útkomuna.
Síðan fékk ég að passa Hrannar, son Elsu og Svans í smá stund. Hann kom með mér að sækja strákana í skóla og leikskóla. Þeim fannst alveg æði að Hrannar skyldi koma og sækja þá.
Dagurinn í dag er búinn að vera frekar leiðinlegur
En annars er ég búin að hanga inni í allan dag. Er AFTUR orðin bullandi kvefuð og slöpp og búin að sofa alveg svakalega mikið og samt er ég þreytt. Ég er byrjuð að taka vítamín, rosa dugleg= ég er búin að muna eftir þeim tvo daga í röð!!!! Ég held þetta sé bara vegna veðurfarsbreytinga. Það er búið að kólna úti og mikill raki í loftinu.
En ég afrekaði að baka skúffuköku áður en ég sótti strákana, þeim til mikillar ánægju. Þeir fengu Tristan vin sinn í heimsókn í dag, þannig að hér á bæ var strákastuð
Á morgun stefnum við á að kíkja til Þýskalands. Það er komið smá pláss í frystinum sem hægt er að fylla uppí!!!
Á síðasta mánudag töluðum við Jóna aðeins við skólastjórann. Okkur vantaði bara pappíra til að senda til Lín. Og í leiðinni fengum við þessa svaka fínu gullhamra frá henni!!! Hún sagðist hafa heyrt það alla leið til Óðinsvé hvað við værum duglegar og Professional eins og hún orðaði það. Hún sagði að hún hafi líka séð það á okkur þegar við sóttum um skólann og sér það enn!!! Og að við höfum þægilega nærveru og kúnnarnir myndu finna það!!! Ég var einhverntímann búin að skrifa um gestakennara sem kom frá skólanum í Kaupmannahöfn, sú sem "hékk" svo yfir okkur og fylgdist með öllu sem við gerðum og hældi okkur endalaust. Hún barst sem sagt í tal við skólastjórann og í ljós kom að þetta er dóttir skólastjórans og hún var búin að segja mömmu sinni frá okkur!!!
Nú er "gamli" hópurinn í skólanum að útskrifast í næstu viku og spenndi að sjá hvort hvort það komi einhverjar nýjar inn. Það verður allavega voða rólegt til að byrja með, því þá erum við bara 4-5 að vinna í einu, enginn mórall og ekki neitt!!
Já svo er ég búin að fara í ómskoðun. Það eru fullt af gallsteinum í mér og læknirinn ætlar að senda beiðni um aðgerð svo nú er bara að bíða eftir bréfi. Vonandi sprengja þeir bara steinana, þá er ég bara einn til tvo daga að jafna mig.
Til hamingju með afmælið í gær Gylfi minn
Jæja, held þetta sé orðið ágætt í bili.
Hej, hej... eða mojn, mojn.....
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Bið að heilsa gaurunum.
Kv. Gylfi
en annars er allt fínt að frétta hérna af faxabrautinni.. ég er einmitt ný byrjuð að vinn aí olís út úr bænum.. á erfitt með að standast nammið og ísinn.. ég er búinn að vinna 2 daga, og hef haldið mér á motunni ;) en bið bara að heilsa öllum, kossar og knús ;#)
kveðja Elísabet frænka
Frábær árangur í skólanum....það er alveg satt að þú ert með alveg æðislega nærveru.
Kossar og knús