Haustveður í Baunalandi.

04. september 2007 klukkan 08:57
Nú sitjum við Ásbjörn bara ein heima. Hann er kominn með hita, eða hann er reyndar heitur og kaldur til skiptis, þannig að honum var haldið heima í dag. Ég fór heldur ekki í skólann í gær því ég hóstaði alla fyrri nótt og náði að sofa í 2,5 klst. Fékk samt alveg hrikalegt samviskubit yfir þessum aumingjaskap en ég fer í skólann á fimmtudag og föstudag í staðinn, allavega fimmtudag!

Það var nóg að gera hjá okkur um helgina. Á laugardag fórum við til Þýskalands og Elsa kom með okkur. Og við versluðum alveg helling :o)
Ásbjörn var í pössun hjá Svan á meðan og Jóhann Ingi kom með okkur og hélt okkur á snakkinu ALLAN tímann. Það er alveg ótrúlegt hvað barnið getur talað mikið Glottandi.
Á sunnudaginn fórum við í afmælisveislu til Möggu Lukku og átum á okkur gat og rúlluðum svo til Svans og Elsu því þar var okkur boðið í mat og eftirrétt og eftir það ultum við eins og tunnur heim Skömmustulegur.

Í gær byrjaði Binni í skólanum. Hann er reyndar ekki enn kominn með stundatöflu!!! En fær hana örugglega í lok vikunnar eða byrjun næstu viku!!! Frekar fyndið!
Hann fer bara um á vespunni, þvílíkur munur fyrir hann. Hann er alltaf að ýja að mér að ég fari að nota hana líka en ætli ég geri það ekki bara í myrkri!!! Ég fékk nefnilega svo skemmtileg skot á mig þegar ég prófaði í fyrsta skiptið.
Binni, Svanur og Jóhann Ingi komu með mér út til að horfa á (allir tilbúnir í gríngírnum). Binni sagði mér að halda bensíngjöfinni í botni og handbremsunni inni meðan ég startaði hjólinu og ég gerði það. Svo var búið að starta hjólinu og enn hélt ég bensíngjöfinni í botni og sem betur fer hélt ég handbremsunni ennþá inni þar til mér var sagt að SLAKA á bensíngjöfinni (Ó!!) og svo fór ég hægt og rólega af stað og tók smá hring. Þegar ég kom aftur byrjaði skothríðin: Það hreyfist varla á þér hárið, þú ferð svo hægt (so what!!) og Jóhann Ingi sagði: Hún kemst ekki hraðar því hún er svo þung!! Skömmustulegur En Svansi hafði vit á því að þegja Glottandi hehe..
Já þannig að næsta ferð verður farin í skjóli nætur, brumm,brummm....

Ég held ég verði að fræða son minn aðeins um það hvernig maður svarar kvenfólki, svo hann gangi kannski einhverntímann út Brosandi. Hann hikar ekki við að segja það fyrsta sem honum dettur í hug og það kemur svo beint frá hjartanu, t.d.: Þú ert með Rosalega stóran rass!!! (takk fyrir, ég er einmitt búin að vera að ergja mig á þessu í mörg ár!! Skömmustulegur ). Já hann er svo einlægur og yndislegur Brosandi.

Ásbjörn átti að byrja í íslenskukennslu í skólanum í dag en missir því miður af fyrsta tímanum, en hann fer í ísl. tvisvar í viku og er mjög spenntur fyrir því. Honum fannst þetta reyndar algjör óþarfi fyrst þegar ég sagði honum frá þessu, því hann kynni alveg íslensku! En svo sagði ég honum að hann myndi læra að skrifa og tala rétta íslensku og þá kviknaði á perunni Brosandi. Ég reyni alltaf að leiðrétta þá þegar þeir beygja orðin vitlaust en nafnið Örn er mjög flókið!! Við vorum hjá Erni eða þetta er dótið hans Arnar; en Arnar á heima á Íslandi!!!  Ó my god, það er svo erfitt að útskýra þetta fyrir þeim, sérstaklega Jóhanni póhanni Brosandi.

Ég er að láta mig dreyma um að fara að skúra!! Það er bara verst að það gerist ekkert meðan manni dreymir það. Þetta er eitt af því leiðinlegasta sem ég geri og ég mikla það svo fyrir mér að í huganum mætti halda að ég byggi í íþróttahúsi en ekki í 100 fm. íbúð.

Jæja best að fara að vakna frá þessum ljóta draumi og láta hann rætast Óákveðinn.

Bless í bili.
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Dísa skrifar ...
æji já skil þennan draum um skúringarnar...´mig dreymir um að þrífa alla íbúðina..en það gerist ekki neitt. Hérna á okkar bæ eru líka veikindi, maður sleppur ekki þó maður búi í baunalandi. En frábært hjá þér að prufu keyra vespuna....væri alveg til í að eiga svoleiðis. Látið ykkur batna og dreymi þér vel elskan....kveðja Dísa
04. september 2007 klukkan 09:59
Elísabet frænka skrifar ...
hæhæ... ohh skil þetta með að vera alltaf í draunalandi.. ég er ekki einu sini að nenna að þrífa herbergið mitt, og ekki er það nú stórt! en já það er einhver leti í mér líka, nennti ekki í skólann í morgun, var svo óheirilega þreitt að ég kom mér ekki framm úr. Þannig að núna er bara heima að gera nákvæmlega ekki neitt, en nenni samt ekki að fara þrífa herbergið mitt. ji erfitt líf ;) hehe. en bið þá bara að heilsa í bli. hafið það sem allra best. vildi óska að við kæmum í heimsókn til ykkar bráðum ;)
Kveðja Elísabet frænka
04. september 2007 klukkan 13:56
Lilja Guðrún skrifar ...
 
Ég fékk lánaða vespuna hjá pabba og ætlaði að nota hana í vinnuna í sumar. Ég fór aldrei á hana, ég þorði ekki að fara útí þessa brjáluðu umferð hér í rvk. Allt annað að vera á þessu í Danmörku þar sem fleiri en 10 manns eru á vespu....
Endileg drífðu þig að nota hana og hlustaðu ekki á þetta röfl í þessu köllum :)
knús
Lilja
p.s þú ert ekki með feitan rass:)
04. september 2007 klukkan 19:54
Selma skrifar ...
 
vá hvað ég kanast við þennan draum. Þetta er bara með því alleiðinlegasta sem ég geri fyrir utan að strauja.
05. september 2007 klukkan 16:18
Bogga skrifar ...
Bwahahaha! Ekkert smá fyndin lýsing á vespuferðinni og viðbrögðum viðstaddra :)

Með skúringarnar, þá gætir þú hugsað þetta eins og ég geri:
Ef maður skúrar í dag þá þarf samt að skúra líka eftir viku. Ef maður skúrar ekki í dag þarf ennþá að skúra eftir viku.
Þar af leiðir er ástæðulaust að skúra í dag bara til að endurtaka það eftir vikuna svo því er best að sleppa því algerlega! Sneddý, ha?

Svo gæti ég líka sagt frá því hvernig ég slepp algerlega við það að strauja...en vil ekki gefa upp of mikið af mínum atvinnuleyndarmálum...sorrý Selma ;)

Alla vega, hafið það gott yndislega fólk.
Kveðja,
Bogga
05. september 2007 klukkan 19:36
Ágústa skrifar ...
 
Ég skil vel að þú hafið ekki hætt þér útí umferðina í Rvk. Lilja :o) og já ég verð bara að hlamma mér á hnakkinn og bruna af stað, stefni að því um helgina :o)

Ég er alveg sammála þér Selma með straujeríið, en ég strauja eiginlega aldrei, kannski rétt á jólunum, ég vona bara alltaf að fólk taki ekki eftir hvað skyrturnar eru og dúkarnir eru krumpaðir!!! (eða ég er nú kannski ekki alveg svona slæm í þessu) hehe!!!

Og takk fyrir gott húsráð Bogga :o)

Ég verð nú samt að segja ykkur frá því hvað ég var dugleg. Afrekaði að skúra og þurrkaði rimlagardínurnar inní herbergi (það er næstum leiðinlegra en að skúra) og þreyf svefnherbergis og eldhúsgluggana að innan OG utan, geri aðrir betur ;o)

See ya....
05. september 2007 klukkan 21:00
Ásta Laufey - ný dönsk skrifar ...
 
Þú ert ógis dugleg ..... fékkstu ekki hrós frá körlunum þínum ??? Ef ekki þarftu bara að minna þá á það. En mér líst vel á Vespunotkunina og lýsingin hjá þér er bara fyndin.
08. september 2007 klukkan 09:05

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan