Uppáhalds dagar!!
09. september 2007 klukkan 19:01
Nú er Ásbjörn búinn að eignast uppáhalds daga!! Það eru þriðjudagar og fimmtudagar og ástæðan fyrir því er að þá er íslenskukennsla í skólanum. Hann er búinn að fá skólabók í ísl. og hefur hann hana alltaf við höndina. Honum finnst svo gaman að læra. Hann er búinn með nokkrar bækur sem heita Geitungurinn og þessi kennslubók er í svipuðum dúr. Það er síðan óskandi að hann haldi áhuganum á skólabókunum áfram
. Ég keypti lesbók og vinnubók á íslandi um jólin og ætti eiginlega að drífa mig í að skoða þær með honum. Við erum reyndar aðeins búin að flétta í gegnum þær, en ekkert að viti.
Síðasta vika var ansi stutt hjá mér. Ég fór bara í skólann á miðvikudag og fimmtudag, en samt nenni ég varla að byrja á nýrri viku
, ég er eitthvað óeðlilega löt þessa dagana eða vikurnar. Verð að fara að rífa mig upp á rassgatinu og gera eitthvað áður en ég leggst í þunglyndi. Það fer að opna ný líkamsræktarstöð hér í bæ og spurning að skella sér þangað í spinning eða eitthvað álíka.
Föstudagurinn síðasti byrjaði með leti = kaffi og tölvan í alltof langan tíma. En svo um hádegi drattaðist ég út að hjóla, kíkti á Dagmar og við hjóluðum síðan saman útí bæ og kíktum í búðir. Seinnipartinn pössuðum við Örn, það er alltaf gaman þegar hann kemur til okkar
.
Á laugardaginn var haustfagnaður hjá Íslendingafélaginu. Um daginn var grill og fínerí fyrir fjölskyldurnar og kynning á félaginu og leiktæki fyrir börnin. Það var voða gaman. Svo keyptum við fullt af íslensku nammi, eiginlega alltof mikið!!
Við vorum þarna í dágóðan tíma og seinnipartinn hjólaði ég aftur heim með strákana. Jóhann Ingi blaðraði náttúrulega ALLA leiðina og þegar við vorum alveg að verða komin heim var ég farin að svara honum með: já er það, já okey og eitthvað á þá leiðina. Allt í einu spyr hann mig: Ertu að hlusta á það sem ég er að segja? Og ég svara játandi, auðvitað er ég að hlusta!!! Þá segir hann: Hvað var ég að segja??? Ég: (kjaftstopp) Ummmm.... HA??? Já, hvað var ég að segja?? Æææææ.... ég veit það ekki
!!!!
Börnin læra greinilega það sem fyrir þeim er haft!!! Ég á það til að spyrja strákana að þessu þegar ég er búin að vera segja eitthvað við þá og fékk þetta þokkalega í hausinn þarna
, hehe..
Á laugardagskvöld hélt haustfagnaðurinn áfram. Þá var barinn opinn og skemmtiatriði, DJ og dansað. Mjög gaman. Við Dagmar kíktum síðan aðeins í bæinn og inná nokkra skemmtistaði en það var ekkert sérstaklega gaman á þeim, eða við bara ekki í rétta gírnum??
Ég var reyndar ekki komin heim fyrr en um kl. 4 því ég LABBAÐI
, það kom bara enginn Taxi og ég nennti ekki að bíða lengur. Ég er farin að halda að það séu álög á stígvélunum sem ég var í, ég fæ aldrei Taxa þegar ég er í þeim. Spurning um að fara splæsa í ný??? 
Dagurinn í dag var líka letidagur. Við Jóhann Ingi fórum reyndar í göngutúr til Alexander vinar hans og vorum svo heppin að lenda þar í vöffluveislu
, namminamm...
Og sunnudagsmaturinn var borðaður á Mc´donalds með ís í eftirrétt.
Það er kannski ekkert skrítið að ég sé að drepast úr leti miðað við lifnaðinn á mér
.
Jæja nú verð ég að hætta, er að fara að horfa á imbann
.
Mojn....
Síðasta vika var ansi stutt hjá mér. Ég fór bara í skólann á miðvikudag og fimmtudag, en samt nenni ég varla að byrja á nýrri viku
Föstudagurinn síðasti byrjaði með leti = kaffi og tölvan í alltof langan tíma. En svo um hádegi drattaðist ég út að hjóla, kíkti á Dagmar og við hjóluðum síðan saman útí bæ og kíktum í búðir. Seinnipartinn pössuðum við Örn, það er alltaf gaman þegar hann kemur til okkar
Á laugardaginn var haustfagnaður hjá Íslendingafélaginu. Um daginn var grill og fínerí fyrir fjölskyldurnar og kynning á félaginu og leiktæki fyrir börnin. Það var voða gaman. Svo keyptum við fullt af íslensku nammi, eiginlega alltof mikið!!
Við vorum þarna í dágóðan tíma og seinnipartinn hjólaði ég aftur heim með strákana. Jóhann Ingi blaðraði náttúrulega ALLA leiðina og þegar við vorum alveg að verða komin heim var ég farin að svara honum með: já er það, já okey og eitthvað á þá leiðina. Allt í einu spyr hann mig: Ertu að hlusta á það sem ég er að segja? Og ég svara játandi, auðvitað er ég að hlusta!!! Þá segir hann: Hvað var ég að segja??? Ég: (kjaftstopp) Ummmm.... HA??? Já, hvað var ég að segja?? Æææææ.... ég veit það ekki
Börnin læra greinilega það sem fyrir þeim er haft!!! Ég á það til að spyrja strákana að þessu þegar ég er búin að vera segja eitthvað við þá og fékk þetta þokkalega í hausinn þarna
Á laugardagskvöld hélt haustfagnaðurinn áfram. Þá var barinn opinn og skemmtiatriði, DJ og dansað. Mjög gaman. Við Dagmar kíktum síðan aðeins í bæinn og inná nokkra skemmtistaði en það var ekkert sérstaklega gaman á þeim, eða við bara ekki í rétta gírnum??
Ég var reyndar ekki komin heim fyrr en um kl. 4 því ég LABBAÐI
Dagurinn í dag var líka letidagur. Við Jóhann Ingi fórum reyndar í göngutúr til Alexander vinar hans og vorum svo heppin að lenda þar í vöffluveislu
Og sunnudagsmaturinn var borðaður á Mc´donalds með ís í eftirrétt.
Það er kannski ekkert skrítið að ég sé að drepast úr leti miðað við lifnaðinn á mér
Jæja nú verð ég að hætta, er að fara að horfa á imbann
Mojn....
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Kveðja Dísa og co
úpps klaufalegt þegar jóhann spurði þig hvort þú værir að hlusta.. hrikalegt að lenda í þessu. álíka þegar e-h spyr hvort maður skilji hvað viðkomandi er að tala um, maður segir já, en skilur ekkert! svo spyr viðkomandi hvað var ég að meina, og ég sem svara játandi veit ekkert hvað hann var að segja... svona getur þetta verið vandræðalegt allt saman!!
En það var gaman hjá mér um helgina, var sko alveg i rétta gírnum! smalað í grenjandi rigningu á laugardaginn.. en bjórinn og pelinn komu að góðum nota, eins og alltaf;)skellti mér svo á MÖRKINA;)
en bið að heilsa öllum. alltaf gaman að lesa færsurnar.. allir hér biðja að heilsa !!!
kveðja,
Jóna og co.