Hann er tannlaus greyið...

18. september 2007 klukkan 08:18

Jæja, þá er önnur lausa tönnin hans Ásbjörns dottin úr. Og þvílíkt og annað eins hvað minns var stoltur Hlæjandi. Og bróðir hans ekkert minna stoltur!! Sá yngri hljóp eins og óður um allt og kallaði: Ásbjörn missti tönn, Ásbjörn missti tönn..... Auðvitað setti hann tönnina undir kodda og Tannálfurinn sótti hana meðan hann svaf og borgaði honum fyrir. Nú er bara beðið eftir að næsta tönn fari, en hún er orðin laf laus.

Helgin hjá okkur er búin að vera mjög fín.
Á föstudaginn vorum við að hjálpa einum íslending að flytja, eða tæma gáminn sinn. Ég var með harðsperrur alla helgina Skömmustulegur, sem segir mér það að vöðvarnir eru búnir að fá alltof mikla hvíld!!

Strákunum var boðið í mat til Hrafns vinar þeirra á föstudagskvöldið, það var rosa sport. Og ég fékk sko að heyra það alla leiðina til Hrafns að ég ætti síðan að fara heim, takk fyrir það Glottandi.

Ég skellti mér síðan í bíó um kvöldið með Möggu Lukku og Sólveigu. Mjög góð mynd sem við sáum. Samt frekar fyndið hvað bíósalurinn er lítill hérna miðað við íbúafjölda!! Bíóhöllin á Skaganum er stærri!!!
Síðan skelltum við okkur á kaffihús í smá stund.

Á laugardag heimsóttu strákarnir Hörpu og síðan kom Harpa til okkar í pössun og gisti hjá okkur. Þau léku sér mjög vel allan daginn en með smá pústum inná milli sem ég held að sé bara mjög eðlilegt Glottandi. En ég vissi varla af þeim og þurfti stundum að kíkja inní herbergi til að ath. hvort þau væru ekki örugglega þarna ennþá.

Binni kíkti til Horsens á laugardag. Þar var Klakamót (Fótboltamót íslendingafélaga í Dk.) Þar var víst mikið grín og mikið gaman Brosandi.

Á sunnudaginn komu Jón Gunnar og Steinunn til okkar og voru að fara í flug rétt áðan. Það var æðislega gaman að fá þau í heimsókn og strákarnir voru alveg með stjörnur í augunum yfir þeim Brosandi.

Í gær fóru strákarnir í "íþróttaskóla" eða íslendingafélagið leigir út íþróttasal og þar koma börnin saman og hlaupa og klifra og hoppa og allt mögulegt og þar var víst brjálað fjör. Þannig að nú eru mánudagar líka orðnir uppáhalds dagar!! Glottandi

Já!! Þetta var semsagt skýrsla síðustu daga Hlæjandi.

Ég ætla að vera svolítið "skemmtileg" núna og skrifa aðeins um skólann!! Ég skal samt reyna að missa mig ekki!!!

Það byrjuðu 3 nýjir nemendur í síðustu viku og einn af þeim er íslensk stelpa. Við Jóna hittum hana fyrst í gær og vorum búnar að kvíða því hverju við ættum að svara ef hún myndi spyrja okkur útí skólann!! En við ákváðum að segja henni bara sannleikann (en ekki hvað?) Stelpan sagðist reyndar hafa heyrt ýmislegt um skólann og var ráðlagt að fara ekki í hann en ákvað samt að prófa. Þessar tvær sem byrjuðu með henni höfðu ekki mætt síðustu daga og því var hún bara ein og var bara látin væblast þarna um skólann og fékk enga kennslu!! Hún var búin að æfa einu sinni handsnyrtingu og í gær var hún látin taka tvo kúnna í handsnyrtingu. En í rauninni á hún ekki að byrja taka kúnna fyrr en eftir 5 vikur!!! Því þessar 5 vikur eiga að fara í að æfa meðhöndlanir og fá bóklega kennslu, en henni var bara sagt að lesa heima!!!! Ég á bara ekki til orð yfir þessu. Og greyið stelpan var hálf miður sín yfir þessu (þ.e.a.s. þessari kennsluaðferð). Það er spurning hvort hún mæti aftur?? Hana langaði til að ganga út í gærmorgun.

Svo er það annað sem pirrar mig Öskrandi og ég bara verð að deila með ykkur.
Nú eru kennararnir farnir að taka kúnna líka. Og þær segja að það sé gott, því þá geta þær unnið við hliðiná okkur og við séð hvernig þær vinna. EN... við erum nemendur og okkur vantar stundum aðstoð og ef kennarinn er kannski að nudda verðum við að bíða í 5-50 mín. eftir aðstoð!! Og svo á miðvikudaginn síðasta var ég með meðhöndlun með einum kennaranum, við vorum með vinkonur. Mig vantaði aðstoð til að vera viss á húðtýpu kúnnans, svo ég myndi örugglega nota réttar vörur á hana. Kennarinn gat ekki hjálpað mér (hún sat við hliðiná mér), heldur sendi mig niður til að finna gestakennara sem var í skólanum þennan dag og átti að fá hana til að hjálpa mér!! Það var eins og kennarinn væri í hálfgerði samkeppni við mig og varð að vera á undan mér að klára meðhöndlunina!!! Og við vorum ekki einu sinni í tímaþröng.

Og eitt að lokum: Við Jóna erum búnar að vera í skólanum í 6 mánuði. Kennararnir þekkja ekki ennþá nöfnin okkar og rugla okkur ennþá saman (þær eru tvær sem kenna okkur). Gestakennarar og skólastjórinn þekkja okkur í sundur og muna hvað við heitum þó það líði margar vikur á milli þar til við hittumst. Og við erum örugglega búnar að læra 20 ný nöfn síðan við byrjuðum í skólanum og við getum þekkt fólk í sundur Öskrandi. Ég verð bara að segja að ég er farin að verða hálf móðguð yfir þessu. Mér finnst þetta vanvirðing. Arrggg og garg...

Jæja nú er ég búin að pústa aðeins Skömmustulegur.

Já best að fara að hætta þessu bulli. Ég er fríi í skólanum í dag. Fer til læknis á eftir, alla leið til Aabenraa í forskoðun v/gallsteinaaðgerðar, en ég verð síðan að bíða í 2 mánuði eftir að komast í sjálfa aðgerðina.
Síðan er körfuboltaæfing í kvöld, ó my god... harðsperrur í vændum!!!

Bless í bili...

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Dísa skrifar ...
Je minn,,,ég er nú bara alveg hissa á þessum kennurum í skólanum þínum..verð bara að segja þvílík kennsla. Skil vel hvað þú ert arrggg...ég yrði það líka.
Gaman að heyra að tannálfurinn sé byrjaður að heimsækja þitt heimili...Ásbjörn verður svo stór þegar tönnslurnar fara detta...ha ha ha
Hafið það sem allra best og gangi Þér vel með gallsteina-vesenið.
Knús Dísin
18. september 2007 klukkan 11:17
Skjónan skrifar ...
Alltaf gaman að missa tennur;) Gabríel Andri er ekki enn komin með lausa einu sinni hehe;) Held að Arna Björg sé bara búin að missa 4 tennur og fyrsta fór þegar hún var orðin 6 og hálfs árs, henni fannst þetta líka algjörlega glatað, allt of gömul til að missa sína fyrstu tönn hehe.... en já, það er nú lámark að vita hvað maður heitir finnst mér!!! Yrði líka stórmóðguð útí þessa kennarabeyglur hehe;)
knús frá Esbjerg***
Jóna og co.
18. september 2007 klukkan 13:44
Bogga skrifar ...
 
Kvittiríkvitt
Bara að láta vita af mér :)
Alltaf gaman að líkja hingað.
Kveðja,
Bogga
19. september 2007 klukkan 14:56

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan