Ein ég sit og suma.

21. september 2007 klukkan 07:03

Nú er ég bara ein í kotinu og þá nýti ég tímann og hangi í tölvunni!!! Það er búið að vera úrhellis rigning síðustu daga og nennarinn í mér eitthvað vanvirkur!!!
Ásbjörn er búinn að missa aðra tönn, og finnst agalega gaman að reyna að bíta í matinn sinn þar sem tennurnar vantar og þar af leiðandi er hann endalaust lengi að borða Ullandi.
Á miðvikudaginn var Itrædsdag í skólanum hans. Þá koma foreldrar í skólann og fara með börnunum í allskonar þrautir utandyra. En greyið Ásbjörn á svo ómögulega foreldra, ég steingleymdi þessum degi. Hafði svo mikið fyrir því að muna eftir foreldrafundinum sem var í skólanum í gær Óákveðinn. En ein fóstran tók hann að sér og svo þegar Binni ætlaði að sækja hann vildi hann vera lengur og fékk að vera með Ísabellu og foreldrum hennar, svo kíkti hann með þeim í heimsókn og skemmti sér konunglega Brosandi, þannig að þessi dagur endaði vel eftir allt saman. Ég fékk náttúrulega alveg nagandi samviskubit, allir krakkar með foreldrum sínum í leikjun nema mitt barn Fýldur. En vonandi kemur þetta ekki fyrir aftur.
Í kvöld fer Ásbjörn aftur í skólann og gistir eina nótt, rosa spennandi. Ég lofaði að baka kanilsnúða fyrir krakkana og svo koma aðrir með kökur og svo meiga þau líka taka nammi með. Þannig að það verður allsherjar partý hjá þeim Hlæjandi.

Í gær tók ég mig til og skráði okkur á biðlista eftir stærri íbúð Hlæjandi. Sótti um í sama hverfi og við búum í núna, nema 4 herbergja, með garði. Við förum beint í forgang á listanum því við búum í hverfinu. Svo sótti ég líka um í raðhúsi hér rétt hjá. Við viljum vera áfram hér í nágrenninu svo það sé stutt fyrir Ásbjörn í skólann, og hann þurfi helst ekki að labba yfir stóra götu á leið í skólann. En það eru þó alltaf umferðarverðir við gangbrautirnar á morgnana, sem stoppa bílana og hleypa gangani og hjólandi vegfarendum yfir, því það er tilfelli ef danir stoppa við gangbraut, hvað þá þar sem ekki er gangbraut til að hleypa fólki yfir!

Á þriðjudaginn fór ég í forskoðun fyrir aðgerð og fékk tíma 2 okt. Ég bjóst nú alls ekki við að komast svona fljótt að. Ég talaði við skurðlækninn og hún lét mig leggjast uppá bekk og sýndi mér allt sem yrði gert við mig, hvar götin verða stungin og alles. Síðan talaði ég við svæfingalækninn sem sagði mér frá svæfingunni og hvar lyfinu yrði dælt í mig og það allt, svo fór ég í blóðprufu og hjartalínurit. Ég var svo hissa á öllum þessum upplýsingum sem þau gáfu mér, þau sögðu mér allt. Ef eitthvað myndi klikka við aðgerðina, þá myndu þau gera þetta og þetta og þetta o.s.frv. og svo fékk ég líka bæklinga og símanr. sem ég get hringt í ef mig vantar að vita eitthvað.
Og Jóna mamma hans Binna ætlar að koma til okkar 1 okt. og aðstoða fatlafólin meðan á þessu ástandi stendur Hlæjandi. Það verður alveg yndislegt að fá hana til okkar.

Ég man nú ekki eftir fleiru í bili til að blaðra um. Ætti kannski að fara að hefa deig!! Og lave kanilsnegle???

Bestu kveðjur...

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Bogga skrifar ...
 
gaman, gaman, ferskt blogg í morgunsárið!
Ohhh, mikið gæfi ég fyrir kanilsnúð hjá þér. Þetta eru barasta bestustu snúðar sem hægt er að komast í! Ég næ þeim aldrei eins góðum og þú gerir mín kæra.

Þarf að fara að heyra í þér kona, ferlega langt síðan það hefur gerst. Ég reyni að hringja í kveld.

Kveðja,
Bogga
21. september 2007 klukkan 08:35
Dísa skrifar ...
Ég hef lent í þessu líka að gleyma einhverju mikilvægu hjá börnunum...úff hræðilegt. En ég keypti mér dagbók sem er alltaf á eldhúsbekknum og þar er allt skráð og vandi mig á að kíkja á hana á hverjum degi...en hummm það hefur komið fyrir að ég hafi samt gleymt :-(
Kanilsnúðar..heitir með kaffinu ...ég fæ bara vatn í munninn....vildi ég gæti bara droppað í kaffi og spjall til þín búhú....en vonandi gerist það á næsta ári í maí....stefnan er að koma í heimsókn þá...kossar og knús
21. september 2007 klukkan 12:44
ragga skrifar ...
mmm.. kaaanilsnúúúðar Ágústu...!!

ég hef ekki verið sú allra duglegasta að fylgjast með.. een í hvaða aðgerð ertu að fara? ég verð að fara ná þér á msn sko...
22. september 2007 klukkan 10:20
Ágústa skrifar ...
 
Ég fer í gallsteinaaðgerð!!!
22. september 2007 klukkan 19:04
Brósi skrifar ...
 
Hæ hæ

Bara að senda kveðju og líka að athuga hvort þú hafir náð að versla eitthvað fyrir strákana frá okkur. Gangi þér vel í aðgerðinni.

Og já við erum að selja steinatrén og bara allt sem er sýnt á síðunni. Ég er sölumaðurinn og Selma er listakonan ;) Ég þarf að fara að hringja í þig fljótlega, hvenær ertu yfirleitt með símatíma?
25. september 2007 klukkan 18:18

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan