Aftur komin í samband við umheiminn!!
28. september 2007 klukkan 07:04
Þ.e.a.s. netsamband. Það er búið að vera eitthvað svo mikið að gera hjá mér að ég hef varla komist í tölvuna. Það er alveg ótrúlegt hvað maður getur verið háður svona dauðum hlut!! En allavega er ég núna búin að kíkja í moggann (sem er algjört möst!) og nú hef ég tíma til að drita einhverri vitleysu hér inn
.
Það er svosem ekkert merkilegt búið að gerast hjá okkur. En þó ein gleðifrétt. Binni er laus úr gipsi
. Hann fór í röntgen í gær og allt leit vel út og hann fékk ekki einu sinni göngugips. Teinarnir í löppinni voru líka dregnir úr honum, án deyfingar og hann sagði að þetta voru verstu kvalir sem hann hafi hingað til upplifað. Það er eins og þungu fargi af honum létt
, hann komst í bað í gær og skutlaði strákunum í skólann í morgun og er nú bara með eina hækju til að styðja sig við meðan löppin er að jafna sig.
Í gær fór ég með Ásbjörn á fótboltaæfingu. Hann var lengi búinn að tala um að honum langaði að fara. Þetta var útiæfing (brrrr... hvað var kalt að standa þarna og horfa á) og hann var rosalega duglegur. Ég sagði þjálfurunum að hann hafi aldrei áður spilað fótbolta og þeir voru svo duglegir að segja honum til og rosalega almennilegir í alla staði. Ásbirni fannst rosalega gaman en hann var samt rosa feiminn en duglegur að láta sig hafa það þarna. Hann sagðist vilja halda áfram að æfa en samt bíða með að byrja þar til inniæfingar byrjuðu, þá er bara hans aldurshópur saman en í gær voru 5-7 ára krakkar saman. Ég vona samt að hann drífi sig aftur í næstu viku
.
Á þriðjudaginn hjólaði ég á körfuboltaæfingu en það var engin æfing þann daginn
. Ég var enganveginn að nenna að fara hreyfa á mér rassgatið en dreyf mig samt og ákvað að hjóla því ég vissi að það yrði bara kannski æfing.
Og djö.... var ég dugleg á sunnudaginn
. Ég þreyf bílinn!! Ryksugaði og þurrkaði innan úr honum og mikið hrikalega var hann ógeðslegur
og það er BARA ég sem hef verið að nota hann
(og ég segji frá þessu!!). Svo um kvöldið fór ég með hann á bílaþvottastöð og hef sjaldan skammast mín eins mikið
. Það er nefnilega þannig með þennan "eðalvagn" að hann á það til að veina mjög hátt þegar maður startar honum (ég fer að eiga met í að renna mér niður í gólfið án þess að rota mig á stýrinu). Okey.. ég lenti í biðröð eftir þvotti og þurfti að færa bílinn framar í hvert skipti sem næsti bíll komst inn. Bíllinn veinaði í HVERT SKIPTI sem ég startaði honum og stundum tvisvar í hverri tilraun
og jeminn hvað mig langaði til að vera ósýnileg. Og hann veinaði meira að segja þegar ég ætlaði út úr þvottastöðinni aftur og þar inni bergmálar. Hann hefur reyndar aldrei verið svona mikið slæmur á svona stuttum tíma, held að aðal ástæðan hafi verið að hann var orðinn bensínlítill. Vona það allavega!
En yfir í annað...
Ég fór í föndurklúbb í gærkvöldi. Keypti mér nýjan striga og meiri málningu, en ég og Jóna vorum þær einu sem mættu með föndur
, þannig að strigarnir voru jafn hvítir og þegar ég keypti þá þegar ég kom heim. Ég sem ætlaði að reyna rækta í mér listamanninn
, bwahahaa....
Og á morgun ætla Jóna Björk og fjölskylda að kíkja í heimsókn til okkar. Kannski maður þykist vera eitthvað myndó og baki eitthvað?
En ég held þetta sé orðið ágætt í bili.
Over and out...
Það er svosem ekkert merkilegt búið að gerast hjá okkur. En þó ein gleðifrétt. Binni er laus úr gipsi
Í gær fór ég með Ásbjörn á fótboltaæfingu. Hann var lengi búinn að tala um að honum langaði að fara. Þetta var útiæfing (brrrr... hvað var kalt að standa þarna og horfa á) og hann var rosalega duglegur. Ég sagði þjálfurunum að hann hafi aldrei áður spilað fótbolta og þeir voru svo duglegir að segja honum til og rosalega almennilegir í alla staði. Ásbirni fannst rosalega gaman en hann var samt rosa feiminn en duglegur að láta sig hafa það þarna. Hann sagðist vilja halda áfram að æfa en samt bíða með að byrja þar til inniæfingar byrjuðu, þá er bara hans aldurshópur saman en í gær voru 5-7 ára krakkar saman. Ég vona samt að hann drífi sig aftur í næstu viku
Á þriðjudaginn hjólaði ég á körfuboltaæfingu en það var engin æfing þann daginn
Og djö.... var ég dugleg á sunnudaginn
En yfir í annað...
Ég fór í föndurklúbb í gærkvöldi. Keypti mér nýjan striga og meiri málningu, en ég og Jóna vorum þær einu sem mættu með föndur
Og á morgun ætla Jóna Björk og fjölskylda að kíkja í heimsókn til okkar. Kannski maður þykist vera eitthvað myndó og baki eitthvað?
En ég held þetta sé orðið ágætt í bili.
Over and out...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Frábærar fréttir af Binna...gott að það gengur vel með löppina...LOKSINS. Fótbolta Ásbjörn..líst vel á drenginn...strákar hafa svo gott af hreyfingunni...
Þar til næst STÓRT knús
Og flott hjá Binna að vera laus úr gifsinu, til lukku með það :)
Kær kveðja,
Bogga
já flott hjá ásbirni að renna sér í boltann, líst vel á piltinn ;) held að hann verði næsti eiður smári ;)
bið að heilsa öllum.. bestu kveðjur úr rigningunni og rokinu :)
en ég hringi í þig á morgun eða hinn og spjala betur við þig
adios