Sko minns...

30. september 2007 klukkan 20:09

Verður fögurra ára í næstu viku og hjólar án hjálparadekkja Brosandi. Ég skrúfaði þau af í dag og minns bara hjólaði og hjólaði og hjólaði alla leið til vinar síns, sem er dágóð vegalengd og mamman fékk sko að svitna Ullandi. Ég þurfti bara að hlaupa á eftir honum en hann var samt voða almennilegur að hægja á sér til að ég gæti náð andanum Brosandi. Og hvað minns var montinn Hlæjandi, hann gjörsamlega geislaði Saklaus og mamman auðvitað líka, stolt af litla barninu sem er að verða svo stórt.

Helgin er búin að vera mjög fín hjá okkur.
Árný, Stebbi og Monika Rós borðuðu með okkur á föstudaginn og á laugardaginn komu Jóna Björk, Haffi og börn í heimsókn. Strákarnir náðu rosalega vel saman og er því beðið með eftirvæntingu að hitta Gabríel aftur Brosandi. Það yrði nú gaman að taka rúnt til Esbjerg einhvern daginn og kíkja á þau. Takk fyrir skemmtilega heimsókn Brosandi.

Um kvöldið hjólaði ég til Dagmar og Sólveigar. Við áttum alveg yndislega huggulega kvöldstund. Töluðum, hlógum og grétum og allt þar á milli Brosandi. Stútuðum nokkrum flöskum eins og okkur einum er lagið er við hittumst!!! öhömm... En þetta rann allt saman ljúft niður.

Já og svo er ein pirringsfrétt!!
Aðgerðinni var frestað til 8 okt. Og þetta er í annað skiptið sem þessu er frestað Fýldur. Ég röflaði aðeins í konunni sem hringdi í mig, sagði henni að þetta hentaði mér ekkert. Ég er búin að fá frí í skólanum og vikuna sem ég fer í aðgerðina er ég fullbókuð enda gert ráð fyrir að ég myndi mæta aftur þá Fýldur. En hún sagðist náttúrulega ekkert geta við þessu gert. Það er eins gott að þessi dagsetning standist. Ég nenni ekki svona veseni.

Á morgun kemur Jóna, mamma hans Binna til okkar Hlæjandi, en ég hitti hana því miður ekki fyrr en seinnipart þriðjudags v/ skólans. En svo á ég frí frá fimmtudegi og næstu 2 vikur á eftir Glottandi, því seinni vikan er vetrarfrí. Þannig að við ættum að geta eitt góðum tíma saman.

Læt þetta gott heita í bili, bestu kveðjur...

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Bogga skrifar ...
jeminn...
Þriggja ára án hjálpardekkja? Það er fátt sem jafnast á við það! Ótrúlega flott hjá drengnum.

Ég sé ekki fyrir mér að hjálpardekkin hjá Sólinni hverfi í bráð. Ég fengi hana örugglega ekki upp á hjólið nema með þau tryggilega skrúfuð á.

Kveðja til allra,
Bogga
30. september 2007 klukkan 20:26
Bergþóra skrifar ...
 
hæ hæ
ég er altaf svo löt að kvitta fyrir okkur hér inni þegar við kikjum á bloggið ...enn ég er MJÖG reglulegur gestur hér:)
en gaman að heyra að Jóhann Ingi sé farinn að hjóla án hjálparadekkja .....hann er greinilega rosa klár :)eins og mamma hans:)
gaman að fylgjast með þér í danaveldi en við þurfum nú svo að reyna að spjalla kannski saman í síma við tækifæri
kveðja Bergþóra
30. september 2007 klukkan 22:54
Dísa skrifar ...
Duglegur drengur sem þú átt....
Það er vonandi að þú fáir að fara í aðgerðina 8 okt. Leiðinlegt að bíða eftir svona og þurfa alltaf að hagræða hlutum aftur og aftur, en elskan mín þú ert svo skipulögð að þetta gengur alveg upp hjá þér.

Verð bara að segja mér er farið að hlakka til að komast í heimsókn til ykkar...það er greinilega mikið stuð alltaf hjá þér dama...hí hí hí.

Hafið það gott ...miss you like crazy...knús
01. október 2007 klukkan 09:11
skjóna skrifar ...
Takk kærlega fyrir okkur, það var æðislega gaman að kíkja til ykkar, þið eruð ávallt velkomin til okkar í Esbjerg;)
Knús**
Jóna
01. október 2007 klukkan 14:58
Jóhanna Steinunn skrifar ...
Það er aldeilis langt síðan við höfum litið hér inn. Menn eru bara orðnir tannlausir og farnir að hjóla aleinir og óstuddir.
Það þarf nú eitthvað að fara að taka þessa kennara þína í gegn, þetta eru greinilega algjörir vitleysingar.
Allt gott héðan annars, brjálað að gera í skóla, enginn tími fyrir neitt annað.....svona er þetta bara.
Gangi þér vel í aðgerðinni og kveðja til Binna

Johanna og Gummi
04. október 2007 klukkan 15:06

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan