Enn ein sjúkrasagan!!!
07. október 2007 klukkan 11:27
Það er alltaf sami höfuðverkurinn við að byrja skrifa!!! Vikurnar eru alltaf eins en svo koma helgarnar sem brjóta aðeins upp það hversdagslega!!
En allavega erum við fjölskyldan orðnir hálfgerðir fastagestir á sjúkrahúsunum hér í nágrenninu!!! Ég, Binni og Jóhann Ingi erum öll búin að nýta okkur sjúkrahúsin undanfarnar vikur og nú var komið að Ásbirni. Á föstudaginn gleypti hann eitthvað plaststykki sem hann fann útá götu. Hann var reyndar búinn að skola það og var víst eitthvað að stinga því uppí sig og það bara rann ofaní hann!! Greyið fékk þetta þvílíka sjokk, hljóp öskrandi um alla íbúð af hræðslu en náði sér síðan aðeins niður og gat sagt okkur hvað hafði gerst. Þetta var hringlótt plast eins og úr litlu stækkunargleri eða ég held og vona að þetta sé plast, ég sá þetta bara þegar hann var að dunda við að skola þetta. En allavega hefur hann náð að kyngja þessu alveg niður í maga svo við ákváðum að bíða með að fara til læknis. Næsta morgun varð hann ansi kvalinn og Binni fór með hann á sjúkrahúsið og þar var hann gegnumlýstur og hann fékk að sjá á mynd hvar stykkið sæti inní honum. En læknarnir héldu að kvalirnar hafi komið þegar stykkið var á leið í þarmana og vildu bíða með að gera eitthvað, því kannski færi það bara út með leið nr.2. Ekkert hafði gerst í morgun og því fór hann aftur í myndatöku núna áðan og brósi með. Plastið var enn inní honum og læknirinn sagði honum að borða mikið og drekka mikið og á svo að mæta aftur í myndatöku á miðvikudaginn. Minns bað um þriggja rétta hádegismat þegar hann kom heim, ætlar greinilega að taka lækninn á orðinu
.
Helgin er annars búin að vera súper skemmtileg. Við Binni fórum í afmæli á föstudaginn. Þar var þetta þvílíka hlaðborð, bæði matarkyns og fljótandi. Síðan var farið í keilu, ekki minn keilu-happadagur þennan daginn
. Ég gat ekki neitt!! Skíttapaði í fyrstu umferð en komst síðan í annað sætið í næstu umferð
en við náðum ekki að klára þann leik. Síðan fór ég í einn pool leik, ég held ég hafi hitt tvær kúlur ofaní, önnur var hvít!! og hin var í réttum lit. Já svona er maður nú hittin!! Binni fór heim eftir keiluna en ég kíkti í bæinn og var þar fram á morgun. Kannski náði ég að dotta í klukkutíma samanlagt í gær en svo hresstist ég við hvítvínsglas seinnipartinn
.
Í gær buðum við Einari og Dagmar út að borða í Þýskalandi. Þau eru búin að vera okkar stoð og styttur meðan Binni var brotinn og líka fyrir það og eftir. Þau vissu ekkert hvert við vorum að fara, settust bara uppí bílinn og þar fengum við hvítvín og bjór. Svo lá leiðin á Hanses braueri í Flensborg. Það er brugghús/veitingastaður, þeir brugga bjórinn á staðnum. Það var live tónlist eða þeir spiluðu eitt eða tvö lög og voru svo bara farnir í pausu!! En allavega borðuðum við á okkur gat, röltum svo um miðbæinn og kíktum inná pöbb og svo rúntuðum við aftur heim. Alveg frábært kvöld.
Síðan vorum við að kaupa okkur nýja myndavél. Hin var alveg úr sér gengin, þannig að nú hef ég enga afsökun við að vera löt að setja inn myndir.
Nú er fyrsti sunnudagur í október og búðir opnar. Þannig að best að fara versla!!!!
Klára kaupa afmælisgjafir og svo þarf ég að baka köku á eftir svo lillinn geti tekið með í leikskólann á þriðjudag.
Bless í bili...
En allavega erum við fjölskyldan orðnir hálfgerðir fastagestir á sjúkrahúsunum hér í nágrenninu!!! Ég, Binni og Jóhann Ingi erum öll búin að nýta okkur sjúkrahúsin undanfarnar vikur og nú var komið að Ásbirni. Á föstudaginn gleypti hann eitthvað plaststykki sem hann fann útá götu. Hann var reyndar búinn að skola það og var víst eitthvað að stinga því uppí sig og það bara rann ofaní hann!! Greyið fékk þetta þvílíka sjokk, hljóp öskrandi um alla íbúð af hræðslu en náði sér síðan aðeins niður og gat sagt okkur hvað hafði gerst. Þetta var hringlótt plast eins og úr litlu stækkunargleri eða ég held og vona að þetta sé plast, ég sá þetta bara þegar hann var að dunda við að skola þetta. En allavega hefur hann náð að kyngja þessu alveg niður í maga svo við ákváðum að bíða með að fara til læknis. Næsta morgun varð hann ansi kvalinn og Binni fór með hann á sjúkrahúsið og þar var hann gegnumlýstur og hann fékk að sjá á mynd hvar stykkið sæti inní honum. En læknarnir héldu að kvalirnar hafi komið þegar stykkið var á leið í þarmana og vildu bíða með að gera eitthvað, því kannski færi það bara út með leið nr.2. Ekkert hafði gerst í morgun og því fór hann aftur í myndatöku núna áðan og brósi með. Plastið var enn inní honum og læknirinn sagði honum að borða mikið og drekka mikið og á svo að mæta aftur í myndatöku á miðvikudaginn. Minns bað um þriggja rétta hádegismat þegar hann kom heim, ætlar greinilega að taka lækninn á orðinu
Helgin er annars búin að vera súper skemmtileg. Við Binni fórum í afmæli á föstudaginn. Þar var þetta þvílíka hlaðborð, bæði matarkyns og fljótandi. Síðan var farið í keilu, ekki minn keilu-happadagur þennan daginn
Í gær buðum við Einari og Dagmar út að borða í Þýskalandi. Þau eru búin að vera okkar stoð og styttur meðan Binni var brotinn og líka fyrir það og eftir. Þau vissu ekkert hvert við vorum að fara, settust bara uppí bílinn og þar fengum við hvítvín og bjór. Svo lá leiðin á Hanses braueri í Flensborg. Það er brugghús/veitingastaður, þeir brugga bjórinn á staðnum. Það var live tónlist eða þeir spiluðu eitt eða tvö lög og voru svo bara farnir í pausu!! En allavega borðuðum við á okkur gat, röltum svo um miðbæinn og kíktum inná pöbb og svo rúntuðum við aftur heim. Alveg frábært kvöld.
Síðan vorum við að kaupa okkur nýja myndavél. Hin var alveg úr sér gengin, þannig að nú hef ég enga afsökun við að vera löt að setja inn myndir.
Nú er fyrsti sunnudagur í október og búðir opnar. Þannig að best að fara versla!!!!
Klára kaupa afmælisgjafir og svo þarf ég að baka köku á eftir svo lillinn geti tekið með í leikskólann á þriðjudag.
Bless í bili...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Þið eruð nú dugleg að skemmta ykkur. Æðislegt að koma vinum sínum svona á óvart.
En þar til næst túrílú Dísa og co
*knús* og *sakn*
Bogga