Hann á afmćli í dag.....

09. október 2007 klukkan 06:08

Til hamingju með afmælið Jóhann Ingi.
Já loksins orðinn 4 ára Hlæjandi. Hann leit geislandi á mig í morgun með fjóra putta upp í loftið og svo sýndi hann mér ylina á sér og bað mig að sjá hvað hún væri orðin stór Hlæjandi. Svo fékk hann að opna einn pakka áður en hann fór í leikskólann. Trítlaði síðan út með nammiköku og nammipoka til bjóða krökkunum í leikskólanum.
Afmælisveislan sjálf fær að bíða þar til um eða eftir næstu helgi. Kemur í ljós í vikunni!!!

Í gærmorgun mætti ég á Aabenraa sjúkrahúsið kl. 7.15
Fór í blóðprufu og fleira og fór svo í aðgerð um kl. 10.30 Ég var eiginlega rotuð allan gærdaginn, svaf meðan ég beið eftir að fara í aðgerðina og var því ný vöknuð þegar ég var svæfð. En þetta gekk allt saman mjög vel. Það voru gerð 3 göt á magann á mér og aðgerðin sjálf fór fram í gegnum naflann! Þannig að ég er svolítið bogin þessa dagana. Síðan var ég dottandi í allan gærdag, ég var eiginlega farin að skammast mín, ég var alltaf sofandi þegar hjúkkan kíkti inn til mín Skömmustulegur. Ég fór heim um kl.21 í gærkvöldi, ég nennti ekki að gista þarna. Það er miklu betra að vera veikur heima hjá sér Glottandi.
Ég á sjálf að skipta um plástra og á svo að fara til heimilislæknis til að láta taka saumana eftir 10 daga. En ég ætti að vera orðin full frísk fyrir næstu helgi Brosandi.

Fleira var nú ekki í fréttum hjá okkur að þessu sinni Brosandi.
Over and out...

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Lára í Sönder skrifar ...
Til lukku með drenginn í dag.

og farðu nú vel með þig skvísa
09. október 2007 klukkan 11:41
Íris skrifar ...
 
Innilega til hamingju með drenginn.
kveðja Íris og co
09. október 2007 klukkan 12:19
skjóna skrifar ...
Til hamingju með prinsinn;) Gott að þú ert að jafna þig eftir aðgerðina;)
knús frá Esbjerg***
Jóna og co.
09. október 2007 klukkan 13:43
Bogga skrifar ...
Til hamingju með prinsinn!

Og flott nýja útlitið á síðunni.

Í sambandi við könnunina hér á kantinum, hún er frá Binna komin haggi? Fyrst Vísindavefur Háskólans gat ekki svarað þessari spurningu þá er náttúrulega sjálfsagt að leita til vitringanna sem lesa þessa síðu. Svarið er einfalt, lausi endirinn á að snúa fram auðvitað!!!
09. október 2007 klukkan 16:46
Rakel skrifar ...
 
Hæ hæ,

Til hamingju með Jóhann Inga 4 ára þessi elska. Þú ert nú ekkert smá dugleg eftir aðgerðina. Farðu vel með þig. Gott að þetta er búið líka.
En ég verð að fara að bjalla í þig og heyra í ykkur. Líka hvenær eftir áramót væri best að koma til ykkar eða hvort við ættum að koma eftir páska?? Steinar vill koma þegar skólinn er í gangi til að skoða þetta allt saman. Ég var líka að frétta að Dísa og co og Bogga og Tóti ætla að koma. Mig langar nú bara að koma með þeim. EN Ég hef ekki ennþá fundið mér skóla. Er líka ennþá í lyfjabreytingunni og hlakka svo til að fá heilsuna aftur. Maður er eins og gamalmenni þarf að leggja sig á daginn. Díses hvað ég ætla að vera hress á elliheimilinu og skrá mig í allt sem er í boði hvort sem það er skák, saumar, eða bara spila við karlanna. hahhaa
En við söknum ykkar svo mikið -
knús og koss
Rakel
09. október 2007 klukkan 17:08
Ágústa skrifar ...
 
Takk fyrir kveðjurnar :o)

Og Bogga: Binni veit ekki af könnuninni en kannski get ég sannað fyrir honum hvernig rúllan á að snúa ef fólk verður duglegt að taka þátt!!! ;o) híhí...

Og Rakel, þið eruð velkomin hvenær sem er. Ég er líka alltaf á leiðinni að hringja í ykkur. Ég læt heyra í mér næstu daga.
09. október 2007 klukkan 18:11
Dísa skrifar ...
Hæ hæ
Til hamingju með drenginn....vá hvað tíminn líður Ha?

Flott nýja útlitið á síðunni.
09. október 2007 klukkan 18:30
Dagný skrifar ...
 
Til hamingju með stóra manninn ;-) Snúðurinn 4 ára. Er mann boðið í veislu :-) Stór koss til hann,,,,,,,,,,, sem að þú verður að afgreiða frá mér.
Flott að heyra allt hafi geingið vel. Var þetta ekki bara gott tækfæir að kvíla sig :-)
Bið að heilsa múddu
Kv Dagný
09. október 2007 klukkan 19:44
Ágústa skrifar ...
 
Klósettpappírskönnunin bara á réttri leið!!! haha...
10. október 2007 klukkan 08:41

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan