Önnur svæfingin!!

10. október 2007 klukkan 12:13

Þetta er nú meira ástandið á þessari fjölskyldu.
Ásbjörn fór í röntgenmyndatöku í morgun til að ath. með hlutinn sem hann gleypti og hann sat enn á sama stað. Þannig að nú er hann í svæfingu og það á að sækja hlutinn. Hann var bara voða brattur þegar ég heyrði í honum áðan og hann nennti ekkert að tala við mig Óákveðinn, honum finnst frekar leiðinlegt að tala í síma þannig að ég tók þessu ekkert persónulega Glottandi. En mér finnst voða leiðinlegt að húka hér heima og geta ekki verið hjá honum Fýldur. Ég treysti mér ekki til að fara með hann í morgun svo Binni tók sér frí í skólanum. Ég er að reyna að taka því rólega hér heima en það er frekar erfitt að horfa á mömmu hans Binna vesenast í þvottinum og nú er hún á fullu að ryksuga og ég geri ekki neitt og ef ég reyni að gera eitthvað fæ ég að heyra það Skömmustulegur.
Ég er samt miklu betri núna en í morgun. Ég tók bólgueyðandi töflur og er miklu betri eftir það.

Í gær voru hálfgerð jól hjá strákunum!! Pakkaflóð til þeirra beggja. Takk fyrir strákana Brosandi. Monika Rós og Stebbi pabbi hennar komu til okkar með kökur og svo fór Stebbi á Mc´donalds og sótti barnabox fyrir krakkana. Þannig að það var kósý lítil veisla hér í gær Brosandi.
Svo var leikið og spilað á spil og voða gaman hjá þeim. Ég var að spá í að halda uppá afmælið hans Jóhanns Inga á mánudaginn. Þá eru flestir í vetrarfríi og þá get ég verið komin í gang fyrir helgi og bakað um helgina Hlæjandi. Þannig að þeir sem ætla að mæta, endilega að drífa sig að panta flug HlæjandiHlæjandi.

Ég læt vita hvernig gengur með Ásbjörn.
Bless í bili.

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Ágústa skrifar ...
 
Smá fréttir af Ásbirni.
Hann var svæfður í dag og grubblað gegnum hálsinn á honum í ca. 2,5 klst. en hluturinn náðist ekki upp, var of sleipur. En það á að reyna aftur seinna, vonandi sem fyrst. Ég er á leið uppá sjúkrahús og ætla að gista með honum þar í nótt.
10. október 2007 klukkan 17:13
Dísa skrifar ...
Æ greyið skinnið...þetta hlýtur að vera erfitt. Vonandi gengur þetta betur næst.

Væri nú alveg til í að smella mér í flug og kíkja í afmælisveislu.
kveðja Dísa
10. október 2007 klukkan 18:38
Bogga skrifar ...
OOhhhhhh, knús og kveðjur til Ásbjörns :-*
Þetta kemur örugglega í næstu tilraun. Gangi ykkur sem allra, allra best elskurnar.
10. október 2007 klukkan 18:53
Sibba skrifar ...
 
hæhæ skvís ég lofaði þér áðan að kvitta ofta haha

en gaman að heyra í þér
kv Sibba
10. október 2007 klukkan 20:25
Bergþóra skrifar ...
 
ææææiiiii greyið litla skinið :/
vonandi verður bara hægt að ná hlutnum uppúr honum ......það er ekki skemmtileg svona spítalavist ...er ný buin að að standa í einni svoleiðis sem stóð yfir í 10 daga ....þannig ég óska ykkur góðs gengins og vonandi næst þetta uppúr honum sem fyrst
batakveðjur til ykkar :)
10. október 2007 klukkan 22:53

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan