Kominn heim.
11. október 2007 klukkan 10:52
Þá er prinsinn kominn aftur heim eftir 5 stjörnu sjúkrahúsdvöl
. Hann var alveg til í að vera lengur þarna og spurði hvenær við kæmum þangað aftur!! Hann fékk rosa fínan bangsa áður en hann fór í svæfinguna og svo fékk hann blöðrur hjá einum trúð sem var í heimsókn á barnadeildinni í gær og eh. fleira dót. Svo kom galdranorn í morgun og var með einhverskonar brúðuleikhús. Og svo hafði hann Play Station 2 tölvu inná herbergi hjá sér og gat valið úr fullt af leikjum. Þannig að mínum leiddist sko ekkert.
En honum gekk frekar erfiðlega að vakna eftir svæfinguna í gær og ældi í gærkvöldi. Hann var ekki búinn að borða neitt í rúman sólarhring og kom ósköp litlu ofaní sig í gær, en í morgun kom listin aftur og minns borðaði heila 3 diska af morgunkorni. Fórum svo í bakarí á heimleiðinni og keyptum eitthvað gott.
Honum fannst samt frekar svekkjandi að komast ekki í skólann í dag, því hann væri að missa af íslenskutíma!!! En hann ætlar sko í skólann á morgun og fer í bíó að sjá Shrek 3
.
Hann á að mæta aftur í röntgen á mánudaginn þ.e.a.s. ef þetta er ekki komið niður úr honum þá. Og ef þetta er þarna ennþá þá verður annað hvort reynt að ná þessu uppúr honum aftur með betri töng eða hann settur í uppskurð.
En afmælið hans Jóhanns Inga verður að fá að bíða betri tíma
, en vonandi getum við lokið því af í næstu viku. Hann er samt ekkert farinn að rukka um það.
En fleira var það ekki að þessu sinni!!!
En honum gekk frekar erfiðlega að vakna eftir svæfinguna í gær og ældi í gærkvöldi. Hann var ekki búinn að borða neitt í rúman sólarhring og kom ósköp litlu ofaní sig í gær, en í morgun kom listin aftur og minns borðaði heila 3 diska af morgunkorni. Fórum svo í bakarí á heimleiðinni og keyptum eitthvað gott.
Honum fannst samt frekar svekkjandi að komast ekki í skólann í dag, því hann væri að missa af íslenskutíma!!! En hann ætlar sko í skólann á morgun og fer í bíó að sjá Shrek 3
Hann á að mæta aftur í röntgen á mánudaginn þ.e.a.s. ef þetta er ekki komið niður úr honum þá. Og ef þetta er þarna ennþá þá verður annað hvort reynt að ná þessu uppúr honum aftur með betri töng eða hann settur í uppskurð.
En afmælið hans Jóhanns Inga verður að fá að bíða betri tíma
En fleira var það ekki að þessu sinni!!!
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
láttu þér batna kallinn minn
Hætti maður að eldast þegar maður setur afmæli á frest? Var bara spökuler hvort að ég ætti að gera það líka :-).
Knús á línuna :-)
Kv Dagný
Og Dagný, ég held það sé alveg bókað að maður hættir að eldast ef maður frestar afmælum! Ég frestaði mínu fyrir nokkrum árum og hef ekkert elst :o) Haha...
knús og batakveðjur frá Esbjerg***
Jóna
Gott að hann er kominn heim, þetta gengur örugglega allt upp (eða niður vonandi!!)
Kærar kveðjur og knús í kotið,
Bogga
Góð hugmynd að fresta afmælinu.....mér finnst ég alltaf eldast með afmælunum hjá börnunum mínu... :-(
Kveðjur
Farið vel með ykkur öllsömul og knús á línuna.
ps. Varðandi afmælin hefur mér ekki dottið í hug að fresta þeim... en ég fór hins vegar að telja niður aftur þegar mér þótti aldurinn vera orðinn nægilega hár.. í bili :)