Hugmyndasnauđ á haus!!!
Hrikalega finnst mér alltaf erfitt að finna haus á færslurnar
.
En allavega... þá er enn ein helgin að verða búin OG fyrri frívikan mín. Þessi vika hefur reyndar verið hrikalega lengi að líða enda er ég ekki búin að gera neitt að viti
.
Í lok vikunnar fór ég reyndar að byrja að hreyfa mig!! Hef verið að taka mér stutta göngutúra, maður verður bara þunglyndur á að hanga og gera ekki neitt en ég var nú samt ekkert illa stödd
. Bíð samt eftir því að losna við saumana, þá þarf ég allavega ekki að hafa áhyggjur af því að slíta þá.
Á föstudagsmorgun vöknuðum við Jóna "frekar snemma" og kíktum til Gråsten í búðir og röltum síðan hring í drottningargarðinum. Það er farið að kólna svolítið en veðrið er samt búið að vera yndislegt, blanka logn og heiðskýrt.
Á föstudagskvöldið fór ég á kaffihús. Hitti þar Póllandsfarana og þar var farið yfir stöðu mála!!! Iss hvað þetta er eitthvað formlega orðað!!
Á laugardag fórum við með strákana í klippingu til Jónu þannig að það er allt annað líf að sjá hausana á þeim. En þegar við vorum komin út þá tókst Jóhanni Inga að hlaupa á grindverk og fá gat á hausinn. Við vorum á báðum áttum um hvort við ættum að láta sauma hann en ákváðum svo að sleppa því, þetta leit ekki það illa út.
Þetta ástand á okkur hérna fer nú að verða hálf vandræðalegt, allavega ef þetta fer ekki að fara batnandi, þá meina ég sjúkrahús-ástandið! Annað hvort endar þetta með því að við förum að þekkja allt starfsfólkið þarna eða bara að það verði hætt að svara í símann þarna ef við hringjum??? Hummm... hvort væri nú líklegra??? ![]()
Seinni partinn á laugardag fórum við í grillveislu. Þar var fullt af fólki og fullt af börnum og mjög gaman. Strákarnir skemmtu sér konunglega enda risa stórt trampólín í garðinum og við vissum varla af þeim allan tímann meðan við vorum þarna.
Binni kíkti með nokkrum strákum í partý en ég fór bara snemma að sofa.
Í dag ætlaði ég nú að gera svo margt...en var síðan bara aðallega löt. Ég ætlaði að byrja að baka fyrir afmælið hans J.I. en það varð bara ekkert af því!! En ég fór með strákunum og Jónu niður að tjörn að gefa öndunum og brjáluðu mávunum brauð. Við vorum þarna örugglega í u.þ.b. 2 klst. veðrið var svo frábært og við hittum Alexander vin þeirra og co. við tjörnina þannig að við náðum að viðra okkur ágætlega í dag
.
Strákarnir eru í vetrarfríi alla næstu viku nema kannski einn dag. En Ásbjörn á að mæta kl. 7.45 í röntgen í fyrramálið, þannig að það verður enginn sofa út dagur á morgun!!
Ég er orðin pínu kvíðin fyrir því hvað þeir ætla að gera við hann því stykkið hefur ekki enn skilað sér út!!
Þannig að næsta frívika er alveg óráðin. Það fer alveg eftir því hvað verður gert við Ásbjörn karlinn.
Ég ætlaði að fara að setja inn myndir, en ég er víst komin í skuld fyrir myndaplássi og eina leiðin til að borga er í gegnum símareikninga!!! En ég held að það sé bara vesen í gegnum erlendan síma og örugglega miklu dýrara þ.e.a.s. ef það er þá hægt?? En ég sendi fyrirspurn til bloggar.is fyrir nokkrum mánuðum síðan um það hvernig ég geti borgað fyrir myndaplássið en hef aldrei fengið svar frá þeim!!! Ég verð að skoða þetta eitthvað betur
.
Bið að heilsa í bili....
Knús.........
Fáðu þér bara picasa fyrir myndirnar.
Sérð hvernig þú gerir ef þú ferð inn á myndir á minni síðu.
kostar ekkert
knus
knús frá Esbjerg***
Jóna
*knús*
En ég er allavega Guðs lifandi fegin að hann er ekki á leiðinni í aðgerð eins og staðan er í dag :o)
...............................BINGÓ.....................................
Stykkið komið út!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
:o)
Alltaf velkomin í heimsókn dúllan mín
kv RAkel
svo veistu það núna að gefa þeim eitthvað gott að borða svo að þeir þurfi ekki að borða leikföngin sín eða eitthvað þaðan af verra.
KV. Jón Gunnar
Og nei ég kryfjaði þetta ekki en Ásbjörn vildi samt fá að eiga hlutinn sem hann gleypti en ég hélt nú ekki, hafði ekki alveg lyst á því að kafa ofaní og sækja þetta *hrollur* !!!!! hehe...
Skil vel að þú viljir ekki eiga minjagripinn......ojojoj..eða ná í hann....úfff
Hafið það gott kv. Dísa
bið að heilsa öllum og hafið það sem allra allra best!
sakna ykkar bara mikið ;)
Kveðja Elísabet frænka!!
Þú hringjir bara ef þú vilt fylgjast með því sem við ræddum um daginn, vill ekki alveg vera að skella því hér inn.
Kv. Gylfi og Co.