Sparigrísinn viđ góđa heilsu!!!
17. október 2007 klukkan 08:08
Og allir hinir líka
. Ég fer að láta taka saumana í fyrramálið, það verður fínt að losna við þá
, ég þarf bara að spurja hvort það sé eðlilegt að það verki ennþá á staðnum sem gallblaðran var tekin. Kannski eru bara ennþá bólgur þarna?
En það verður nóg að gera í dag. Klára að baka og renna aðeins yfir gólfin því afmælisveislan verður á morgun.
Við Jóna vorum agalega duglegar í gær. Jóna þreif herbergi strákanna hátt og lágt og ég tók til í eldhúsinu. Er búin að taka 3 skápa í gegn. Kannski ég kalli það bara jólahreingerningu!!!! En annars tek ég aldrei skápana í gegn fyrir jólin, geri það bara þegar mér finnst þess þurfa. Það er nóg annað að gera fyrir jólin en að húka inní skápum!!!
Við fengum Hrafn og Hörpu Ósk í heimsókn til okkar í gær. Voða gaman, en við vissum varla af þeim eins og vanalega
.
Seinnipartinn skruppum við til Deutschland og strákarnir voru í pössun hjá Elsu og Svan á meðan. Við versluðum slatta fyrir afmælið, sérstaklega nammi og gos og svo auðvitað eitthvað í matinn.
Ég verð nú að skrifa um hvað ég fann út í búð um daginn!! Ég fann íslenskar fiskibollur í dós. Hér heita þær Islandske fiskeboller fra Bådsmand, produceret af Ora i Island
. Nammi namm, fiskibollur í bleikri sósu.
Og svo er náttúrulega líka hægt að kaupa hreint skyr.is hérna en mér finnst skyr ekkert gott.
Svo styttist bara óðum í að ég byrji aftur í skólanum
. Það verður frekar erfitt að byrja aftur eftir heilar tvær vikur í leti. En vikurnar eru samt svo fljótar að líða.
Á fimmtudaginn í næstu viku fer ég til Póllands. Það verður sko gaman, pólskur Wodki og Wellness
, haha... (er ekki annars til pólskur wodki?). Ég ætla allavega í eitthvað dekur, helst í nudd
. Og auðvitað að versla einhverjar jólagjafir. Mér finnst bara svo fáránleg tilhugsun að maður sé farin að hugsa um jólin um miðjan október!! En auðvitað er fínt að nýta tímann, byrja snemma og geta sent þetta frá sér tímanlega. Það eru komnar jólavörur í einhverjar búðir og það var slatti af því dóti í Þýskalandi. Við tókum ekkert jóladót með okkur þegar við fluttum svo ég ætti að geta fengið smá útrás
.... en ekki alveg strax.
Best að ég fari að hætta þessu bulli... er bara að teygja lopann núna!!
Knús og kremjur...
En það verður nóg að gera í dag. Klára að baka og renna aðeins yfir gólfin því afmælisveislan verður á morgun.
Við Jóna vorum agalega duglegar í gær. Jóna þreif herbergi strákanna hátt og lágt og ég tók til í eldhúsinu. Er búin að taka 3 skápa í gegn. Kannski ég kalli það bara jólahreingerningu!!!! En annars tek ég aldrei skápana í gegn fyrir jólin, geri það bara þegar mér finnst þess þurfa. Það er nóg annað að gera fyrir jólin en að húka inní skápum!!!
Við fengum Hrafn og Hörpu Ósk í heimsókn til okkar í gær. Voða gaman, en við vissum varla af þeim eins og vanalega
Seinnipartinn skruppum við til Deutschland og strákarnir voru í pössun hjá Elsu og Svan á meðan. Við versluðum slatta fyrir afmælið, sérstaklega nammi og gos og svo auðvitað eitthvað í matinn.
Ég verð nú að skrifa um hvað ég fann út í búð um daginn!! Ég fann íslenskar fiskibollur í dós. Hér heita þær Islandske fiskeboller fra Bådsmand, produceret af Ora i Island
Og svo er náttúrulega líka hægt að kaupa hreint skyr.is hérna en mér finnst skyr ekkert gott.
Svo styttist bara óðum í að ég byrji aftur í skólanum
Á fimmtudaginn í næstu viku fer ég til Póllands. Það verður sko gaman, pólskur Wodki og Wellness
Best að ég fari að hætta þessu bulli... er bara að teygja lopann núna!!
Knús og kremjur...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Kannski er þetta svona með gallblöðruna líka og þess vegna verkjar þig enn í hana!!!! Játaðu það bara, þú saknar hennar!
Alltaf gaman þegar þú teygir lopann mín kæra, mér leiðist það aldrei :)
Knús og kveðjur í kotið,
Bogga
en já afmælisveisla á morgun... um ég elska veislur!! vest að geta ekki verið hjá ykkur og borðað yfir mig að þýskum gæðavörum ;) en ég verð að láta mér nægja íslensku kræsingarnar hérna heima!!!
hafið það sem allra best, og góða skemmtun í afmælinu..!!
p.s passið alla smáhluti og hafið hemil á græðginni, því það er ekki hægt að leggja fleiri sjúkrahússögur á okkur hérna..!! hehe ;) hafið það sem best..
Elisabet frænka ;)
En ég japla bara á jóla-smá-kökunum mínum.
Mér finnst fínt að byrja versla fyrir jólin..aðallega jólapakka....svo maður springi nú ekki á limminu í desember......ég er svoddan jólabarn...ég vill hélst vera búinn að gera allt fyrir fyrsta í aðventu nema setja upp jólatréð....ég veit ég veit ég pínu skrítin hí hí hí..
kveðjur og knús Dísa
Afmælisveisla nammi namm.
Væri sko til í að vera með ykkur í dag.
Knús til ykkar frá Rakel og Steinari frænda :-)
knús***
Jóna og co.
Hvernig væri nú að fara koma nýjar fréttir????
er alltaf að kíkja, en ekkert er komið ennþá ;(
Hlakka til að kíkja næst, og þá vonandi eru komanar fréttir úr afmælinu og svona ;)
bless þar til næst!!!