Smá endurnćring....

21. október 2007 klukkan 20:09
eftir leti síðustu daga. Ég sit hér við tölvuna með grænan, rakagefandi maska, agalega lekkert Hlæjandi. Búin að djúphreinsa andlitið og lita á mér augabrúnirnar. Mikið hlýtur ykkar að líða vel að vita þetta Glottandi. Þykist ætla snemma að sofa í kvöld því sælan er úti!! Skóli á morgun.

Síðasta vika hefur farið í afmælisundirbúning. Eftir skitteríið síðasta mánudag var ákveðið að halda afmælið á fimmtudaginn. Það var bakað og þrifið og ekki amalegt að hafa Jónu hér til að hjálpa til. En annars var þetta bara voða afslappað hjá okkur, ekkert stress Glottandi. Veislan var mjög fín, fengum fullt af skemmtilegum gestum og Jóhann Ingi var alveg í essinu sínu Brosandi.

Morguninn eftir var okkur boðið í 5 ára afmæli til Hrafns Jökuls, vinar strákanna. Það var voða fínt og ekki vantaði fjörið Glottandi.

Á seinnipart föstudags fórum við Jóna (sem er með mér í skólanum) til einnar sem var með okkur í skólanum en útskrifaðist í sept. Kennarinn okkar var með Nu Skin kynningu hjá henni og þar var okkur boðið í mat og alles, voða huggó Brosandi. Fengum allskonar kjöt, grillað á steikarstein og allskonar meðlæti og rauðvín og eftirrétt. Þetta var rosa kósý og gaman.

Á laugardaginn hjólaði Ásbjörn til Hrafns og við Jóhann Ingi fórum til Alexanders. Ég labbaði og hann hjólaði, hann er núna farinn að taka sjálfur af stað á hjólinu og ég má alls ekki hjálpa honum Brosandi. Sjálfstæður og duglegur strákur.

Það var frekar fyndið í gær! Það gekk ALLT á afturfótunum hjá J.I. greinilega ekki hans dagur. Hann var orðinn hálf miður sín eftir þetta allt saman. Hann braut disk, missti heilann kassa af kókosbollum í gólfið (fékk að ryksuga sjálfur sem honum fannst bara gaman!) og skemmdi uppröðunina hjá okkur öllum í Lúdó spili, því spilið var á sófanum og hann ýtti í miðjuna á því og allir karlarnir útum allt. Greyið hefur svo lítið hjarta og hann var SVO miður sín yfir þessu öllu saman, eldroðnaði og varirnar víbruðu við að halda tárunum inni Gráta. Ég og Ásbjörn sprungum úr hlátri og greyið henti sér í fangið á mér og barðist við tárin. Eftir á fannst honum þetta frekar fyndið og minntist síðan aftur á þetta í dag. Sagði að það hafi bara allt runnið úr höndunum á honum í gær, skildi ekkert hvað hafi eiginlega komið yfir sig. Það hafa allir einhverntímann átt svona dag og oftar en einu sinni en það var bara svo krúttlegt að fylgjast með þessu litla stýri kljást við þetta Brosandi.

Síðan í morgun var komið að kveðjustund við Jónu ömmu. Binni og Ásbjörn skutluðu henni til Kaupmannahafnar en við Jónki tröll vorum heima í leti. Það er nú bara ansi tómlegt hérna eftir að Jóna er farinÓákveðinn og ekkert smáræði sem hún er búin að hjálpa okkur hérna.
Kærar þakkir fyrir alla hjálpina Jóna mín og skemmtilegar samverustundir.

Við Jóhann Ingi höfðum okkur nú samt aðeins útúr húsi í dag. Við röltum okkur í heimsókn til Dagmar og co. og fengum þar dýrindis vöfflur með rjóma Ullandi.
Síðan fór ég með Ásbjörn og Jóhann Inga í heimsókn til Tristans. Og það er náttúrulega alltaf jafn gaman Brosandi. Lára gaf mér nú góðar upplýsingar um hvernig ég geti sett nýtt myndaforrit á bloggið mitt en..... við Binni erum eitthvað búin að vera að prófa en það var ekki alveg að virka hjá okkur. Ég náttúrulega alltaf jafn græn... sérstaklega núna með þennan maska!!!  Þannig að Lára á von á mér í heimsókn aftur sem fyrst Skömmustulegur. Ég ætlaði að setja Picasa forrit inn en þá þarf að skrifa inn notendanafn og lykilorðið af mailinu mínu til að komast inná það!!!  En allavega er þetta myndadæmi í vinnslu Brosandi.

Svo átti
Snorri Fannar frændi minn afmæli á föstudaginn. Til hamingju með 11 ára afmælið elsku frændi. Ég hefði sko verið til í að mæta í kaffi til þín í dag Brosandi.

Og á morgun á Skúli frændi afmæli. Mér finnst það nú alveg ótrúlegt að hann sé orðinn 16 ára gamall og kominn í framhaldsskóla!!!  Ég var alltaf að fá hann lánaðann þegar hann var lítill Brosandi. Jiii... hvað tíminn getur liðið hratt...
En til hamingju með daginn Skúli minn.

Nú held ég að ég ætti að fara að týgja mig í draumalandið og meðan ég man... að þrífa af mér maskann. Hann er orðinn að rennsleipu geli þannig að ég verð örugglega háglansandi á morgun!!!

Þar til næst....
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Lára í Sönder skrifar ...
Hæ sæta og takk fyrir í gær.

Þú þarft ekkert að gefa upp notendanafn og lykilorð svo að aðrir geti komist inn, getur haft það opið, annars kæmist þú ekki inn á mitt myndaalbúm ekki satt;)
en þú kíkjir bara yfir þegar þú hefur tíma
22. október 2007 klukkan 10:02
Dísa skrifar ...
Það er bara nóg af afmælum í október.....

En sé þig í anda að tikka inn á tölvuna, með græna maskan. Fyndið...hí hí
22. október 2007 klukkan 15:30
Halló öll sömul
gott að allt er komið í samt lag hjá ykkur, og til hamingum með daginn Jóhann Ingi minn. við Birta erum hér í veikindum, hún búin að vera með niðurgang í 11 daga, hrikalegt.
kv. Þórunn frænka
22. október 2007 klukkan 17:04
skjóna skrifar ...
Hahahaha... þú ert svooooo fyndin, alveg græn með græna maskann (hmmm.... já ok, ég elska fimmaurabrandara!) Alltaf gaman að lesa fréttir frá ykkur...
knús frá Esbjerg***
Jóna og co.
23. október 2007 klukkan 18:50
Ásta Laufey skrifar ...
 
Alltaf gaman að fylgjast með (græna kona) sé þig alveg fyrir mér og finnst það bara fyndin hugsun ....
En hvernig er það með ykkur vinkonurnar eru þið útópíur í félagslífinu .... alltaf í heimsóknum, afmælum og þh. (ég er að tala um þig og Jónu frk. félagsveru í Esbjerg) ég er hissa á að þú náir því að vera í skólanum líka hehe .....
Hilsen úr sveitinni
Ásta LAufey
23. október 2007 klukkan 19:33
Ágústa G. ÁsbjörnsdóttirÉg er snillingur í fimmaurabröndurum Jóna ;o) Binni hrisstir bara hausinn ef ég held ég sé eitthvađ fyndin! Skil ekkert í ţví :o/

Ţađ er nú búin ađ vera svolítil lćgđ hjá mér í félagslífinu en ţađ er búiđ ađ vera nóg ađ gera undanfariđ og lítur út fyrir ađ ţađ haldi áfram eitthvađ fram í nóvember :o) Bara gaman ađ ţví.
23. október 2007 klukkan 20:21

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan