Og það tókst.......
23. október 2007 klukkan 20:14
Já gott fólk... það er komið nýtt myndaalbúm hér til hægri á síðunni undir Tenglar.
Ég dröslaði mér út áðan og hjólaði til Láru og hún barasta reddaði þessu þessi elska
. Og nú kann ég meira að segja að færa myndir úr öðru albúmi og yfir í þetta. Haldiði að það sé nú snillingur hér á ferð!!! En svo ég sé nú ekki að gera ALLTOF mikið úr snilligáfunum í mér þá var þetta svo einfalt að ég ætti alls ekki að vera segja frá því
.
Annars er það að frétta af okkur að Jóhann Ingi er kominn með ælupest
. Hann byrjaði að æla á leikskólanum þegar hann var sóttur og er búinn að æla nokkrum sinnum hér heima og er búinn að vera ansi slappur. Hann er hitalaus svo vonandi verður þetta stutt pest.
Ásbjörn skrapp til Óla vinar síns eftir skóla og var boðið í mat hjá honum. Það fannst mínum sko ekki leiðinlegt
.
Svo er bara langur skóladagur á morgun og Pólland á fimmtudaginn
. Ég er auðvitað ekkert farin að pakka, geri það bara á síðustu stundu eins og venjulega. Algjör óþarfi að vera að breyta útaf vananum.
Annað var það ekki í bili.
Ég set fleiri myndir inn fljótlega, á eftir að tæma myndavélina.
Over and out...
Ég dröslaði mér út áðan og hjólaði til Láru og hún barasta reddaði þessu þessi elska
Annars er það að frétta af okkur að Jóhann Ingi er kominn með ælupest
Ásbjörn skrapp til Óla vinar síns eftir skóla og var boðið í mat hjá honum. Það fannst mínum sko ekki leiðinlegt
Svo er bara langur skóladagur á morgun og Pólland á fimmtudaginn
Annað var það ekki í bili.
Ég set fleiri myndir inn fljótlega, á eftir að tæma myndavélina.
Over and out...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Frábært að fá að sjá hvernig þið búið og strákana hvað þeir stækka.
Þið blómstrið öll þarna í dk.
Knús og við söknum ykkar SVOOOOO mikið
Vertu nú dugleg að setja reglulega inn fleiri myndir, endalaust gaman að sjá ykkur á skjánum þótt það kosti stundum tár í krókana (*snökt*)
Sakna ykkar hrikalega mikið :-*
Bið að heilsa öllum.....saknaðarkveðjur Dísa
Hlakka svakarosavoðaleg amikið til á morgun.
Polen her kommer vi
bæbæ
btw þá hætti Ridge með Taylor í morgun og fór beint sama dag að
biðja Brooke hvort hún vildi hann ekki.... ætli hann vilji ekki prufa nýja..hehe
En góða ferð til Póllands :) áttu örugglega eftir að kaupa kristall og kannski vodka haha er það kannski ekkert vinsælt þarna ??
knús elsku Ágústa mín
Rakel
Og jú ég kaupi vonandi einhvern kristal og svo á ég tíma í nuddi eftir hádegi á morgun ;o) Get ekki beðið.... og wodkinn... ég hef ekki drukkið svoleiðis í nokkur ár, verð örugglega eitthvað skrautleg ef ég fer að smakka hann!!!
Sorry hvað ég er ódugleg við að kommenta ekki mín sterkasta hlið, reyni að bæta mig í framtíðinni..
Góða skemmtun í Póllandi..
það er nu ekki gott að jóhann ingi sé komin með ælupest ...vonandi nær hann sér sem fyrst
ég var ekki viss hvort þú hafið fengið SMS-ið frá mér á mánudaginn ...en það fæddist litil prinsessa þá :)
bið að heilsa
Bergþóra ,Hannes ,Jón Gautur og litla prinsessan