Home sweet home.
Jæja þá er maður komin heim eftir yndislega helgi
. Við vorum í borg sem heitir Stettin og liggur við landamæri Þýskalands. Gistum á Hótel Radisson sas sem var mjög fínt og flott morgunverðarhlaðborð. Ég var í herbergi með Möggu Lukku og Láru. Við vorum komin á leiðarenda um miðnætti á fimmtudagskvöld og það ótrúlegasta og fyndnasta var að fyrsta fólkið sem við mættum á herbergisganginum okkar voru ÍSLENDINGAR... en ekki hvað!!!!!
Það var ræs kl. 8 á föstudagsmorgun (nýta tímann), hent sér í föt og borðaður morgunmatur og kl. 9 lá leiðin til Peter vinar okkar í kristalsbúðinni. Hann er með þvílíkt úrval af pólska keramik stellinu (marglitu bollunum sem m.a. fæst í Byko) og slatta af kristal og glervörum. Sumar misstu sig þarna, aðrar ekki
. En ég keypti ekkert hjá honum fyrr en í næstu og þarnæstu ferð til hans, varð að skoða úrval annarsstaðar líka. Við kíktum líka við í dúkabúð og þar voru tvær pólskar konur að afgreiða sem töluðu bara pólsku, og það var algjör brandari að hlusta á samskipti þeirra og einnar úr okkar hóp. Hún talaði íslensku og þær pólsku og svo var bent hingað og þangað og þegar þær skildu sögðu þær tak (sem ég held að þýði frekar einmitt eða eitthvað í þá áttina) þetta var algjör snilld. En ég keypti mér tvo dúka á borðstofuborðið. Svo var moll við hliðiná hótelinu og þar var nú ekki mikið mál að gleyma sér í nokkra klukkutíma
. Ég fann mér kápu í H&M og er hrikalega ánægð með hana. Verð á fötum er frekar svipað og hér í Dk, kannski pínu ódýrara ef eitthvað er en ekkert til að eltast við. Og svo er til mikið úrval af fötum í pastellitum, æðislega lekkert
. Á föstudeginum fórum við Magga í nudd. Það var náttúrulega æðislegt, klukkutíma heilnudd og svo fórum við bara uppá herbergi og undir sæng og höfðum það kósý að lesa vikuna. Um kvöldið fórum við að borða á Pizza Hut, það var orðið ansi langt síðan ég smakkaði það og svo fóru sumar í bíó og aðrar að slappa af, þar á meðal ég, kíkti á barinn á hótelinu með nokkrum af gellunum
.
Dagmar, Einar og Örn og Óskar, Hafdís og litla dúllan þeirra voru líka á sama hóteli og við
. Við Magga tókum rölt með Dagmar og co. á laugardeginum og svo var verslað og slappað af og keypt prince póló of course.
Á laugardagskvöldið fórum við allar saman út að borða á stað sem heitir Colorado. Það var mjög gaman og maturinn virkilega góður. Eftir það var bara farið aftur á hótelið og við Magga fórum á barinn á 11 hæð og fengum okkur einn drykk fyrir svefninn.
Á sunnudeginum var Peter ræstur út!!! Maðurinn í kristalsbúðinni. Hann var búinn að gefa okkur símanúmerið sitt og sagði að við mættum ræsa hann út á sunnudeginum og hann yrði mættur eftir hálftíma, sem hann líka gerði og þá var verslað ennþá meira
.
Eftir að við komumst svo út úr búðinni (karlinn getur talað alveg endalaust mikið og við vorum búnar að mæla okkur mót við hinar stelpurnar fyrir brottförina heim! Hann var heilar 45 mín. bara að pakka dótinu í kassa fyrir okkur og afgreiða. Hann gat ekki talað og unnið á sama tíma
)
En allavega þá náðum við að fá okkur að borða og lögðum svo af stað heim rúmlega eitt og vorum komar um kl. 20,30
Það var voða gott að koma heim. Binni var búinn að elda rosa góðan mat og strákarnir svo ánægðir að sjá mig. Ásbjörn var veikur og var alveg límdur upp við mig sem er frekar óvenjulegt því hann er ekki þessi kelirófa eins og bróðir sinn. Vildi sitja í fanginu á mér og láta strjúka hárið og fékk svo að sofa í hálsakotinu um nóttina
.
Ég fór síðan í skólann í gær og er núna heima með Ásbjörn.
Já ég gleymdi alveg að skrifa að ég keypti líka nokkrar jólagjafir, wiskýglös fyrir Binna, skál fyrir mig og jólaskraut og dót fyrir strákana.
Ég ætla að nýta tímann í dag og þrífa... real live again.... og leyfa Ásbirni að komast í tölvuna
.
Og eitt enn... mamma og pabbi eru að koma til okkar 4 des. þannig að nú tel ég bara niður
, ætla samt ekkert að segja strákunum frá þessu strax. Íris, Siggi, Arnar Daði og Gylfi eru líka að koma á sama tíma
og verða hjá Svan og Elsu.... jiii... hvað þetta verður gaman
.
Eiit enn:
Bergþóra, Hannes og Jón Gautur, til hamingju með litlu prinsessuna
.
brútzki, grússkítz... Mínerva Prolottzki (nýtt nick name!!)
Og gaman að fjölskyldan ætli að koma út til ykkar í desember, svona fyrst þið ætlið ekkert að koma heim um jólin :(
Sakna þín endalaust mikið Ágústa mín, eins og alltaf.
Bogga
ji hvað það hefur verið æðislegt þarna hjá þér...!!!
umm minnir mig á danmerkurferðina sem ég fór með stelpunum fyrir ári;) en þetta alger draumur að fara í svona dekur...! tala nú ekki um að fá sér kokteil fyrir svefnin ;) hehe
gaman að heyra af ykkur! vona til ap heyra í ykkur fljótlega ;)
bið að heilsa... Elísabet frænka.. kveður í snjó og frosti ;/
Gaman að lesa hvað var gaman hjá ykkur, hefði nú ekkert haft á móti því að fara svona ferð. Æðislegt að familijan er að koma til ykkar um jólin....komið þið þá bara ekki hingað um áramótin??? hummm bara smá hugdetta...ha ha ha ...
En hafið það sem allra best....kveðja út kuldanum
það hefur verið aldeilis gaman hjá ykkur stelpunum í Póllandsferðinni .....
líka gaman að heyra að mamma þín og pabbi séu að koma til ykkar sérstaklega af því að þið eruð ekki að koma til okkar um jólin.....
takk fyrir kveðjuna til okkar:)
bið að heilsa ykkur öllum og hafið þið það sem allra best
kveðja Bergþóra og CO:)
*knús frá Esbjerg*
Jóna