Hvert fór helgin???
04. nóvember 2007 klukkan 21:06
Hún var bara ALLTOF fljót að líða
. Ég er vön að vera í fjögurra daga helgarfríi en fór í skólann síðasta fimmtudag og fékk því bara þrjá daga í frí. Ég held ég sé bara orðin of góðu vön!!!
Á föstudagskvöld fór ég í mat til Jónu, ásamt hinum gellunum úr föndurklúbbnum. Fengum steinasteiktan mat, hrikalega gott og svo auðvitað hvítvín. Síðan kíktum við á barinn í háskólanum og þar var FULLT af fólki og kíktum síðan í bæinn og þar var líka FULLT af fólki. Og ástæðan fyrir því var að Jólabjórinn er kominn. Já haldiði að það sé nú sæla í Danaveldi
. Við kíktum inná einn skemmtistað sem var svo troðfullur að það var varla hægt að snú sér við þar inni og þar voru spiluð jólalög. Það er nú alltof snemmt fyrir minn smekk. Ég held ég hafi verið komin heim til mín rúmlega tólf enda ekki ætlunin hjá mér að fara á djammið.
Á laugardag fór Ásbjörn í afmæli hjá bekkjarbróður sínum og fannst mjög gaman. Og á meðan kíktum við Jóhann Ingi í heimsókn til Hörpu að sjá nýju kisuna hennar. Það var frekar fyndið þegar ég sagði honum að hún ætti kisu. Hann opnaði munninn uppá gátt, agalega hissa og spurði svo: Á hún lifandi kisu??? Svo gapti hann bara og augun voru næstum komin útúr honum.
Harpa kom síðan með okkur heim og þar beið þeirra Mónika Rós og þau léku öll voða vel saman
.
Í dag, sunnudag fórum við í afmælisveislu hjá Alexander og Evu Karen. Þar var þvílíkt og annað eins hlaðborð (ekki megrunarvænt) en auðvitað verður maður að smakka!! Og smakka aðeins meira og...!!!! Og svo rúllar maður heim.
En nú fer ég að drullast til að kaupa kort í ræktina, ég er næstum alveg laus við alla verki eftir aðgerðina þannig að nú er engin afsökun lengur.
Næstu helgi stefni ég á að fara á kvennadaginn hér í bæ. Þ.e.a.s. ef ég fæ pössun fyrir strákana. Binni fer til Hamborg næsta laugardag í Go kart eða eitthvað svoleiðis og svo er hann alveg ólmur í að komast í Ikea
, þannig að hann nýtir ferðina og kíkir þar við.
Nýjar myndir komnar inn: Afmælisveislan hans J.I., Úti að leika með ömmu, Gaman í leikfimi og Glymur 2007.
Bless í bili...
Á föstudagskvöld fór ég í mat til Jónu, ásamt hinum gellunum úr föndurklúbbnum. Fengum steinasteiktan mat, hrikalega gott og svo auðvitað hvítvín. Síðan kíktum við á barinn í háskólanum og þar var FULLT af fólki og kíktum síðan í bæinn og þar var líka FULLT af fólki. Og ástæðan fyrir því var að Jólabjórinn er kominn. Já haldiði að það sé nú sæla í Danaveldi
Á laugardag fór Ásbjörn í afmæli hjá bekkjarbróður sínum og fannst mjög gaman. Og á meðan kíktum við Jóhann Ingi í heimsókn til Hörpu að sjá nýju kisuna hennar. Það var frekar fyndið þegar ég sagði honum að hún ætti kisu. Hann opnaði munninn uppá gátt, agalega hissa og spurði svo: Á hún lifandi kisu??? Svo gapti hann bara og augun voru næstum komin útúr honum.
Harpa kom síðan með okkur heim og þar beið þeirra Mónika Rós og þau léku öll voða vel saman
Í dag, sunnudag fórum við í afmælisveislu hjá Alexander og Evu Karen. Þar var þvílíkt og annað eins hlaðborð (ekki megrunarvænt) en auðvitað verður maður að smakka!! Og smakka aðeins meira og...!!!! Og svo rúllar maður heim.
En nú fer ég að drullast til að kaupa kort í ræktina, ég er næstum alveg laus við alla verki eftir aðgerðina þannig að nú er engin afsökun lengur.
Næstu helgi stefni ég á að fara á kvennadaginn hér í bæ. Þ.e.a.s. ef ég fæ pössun fyrir strákana. Binni fer til Hamborg næsta laugardag í Go kart eða eitthvað svoleiðis og svo er hann alveg ólmur í að komast í Ikea
Nýjar myndir komnar inn: Afmælisveislan hans J.I., Úti að leika með ömmu, Gaman í leikfimi og Glymur 2007.
Bless í bili...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Gott að heyra að þér er farið að líða betur og losna við verkina.
Hafið það gott...miss you kveðja Dísa
er ekki bara málið að ég komi til ykkar í helgara ferð og passi fyrir ykkur ,ÞAÐ ER MÁLIÐ:)
HAFIÐ ÞIÐ ÞAÐ GOTT OG HEYRUMST BRÁÐUM
GLEÐILEG JÓL:)
Og ps. Það er meira en MÁNUÐUR í jól!!!! Ég vona nú að ég eigi eftir að heyra í þér fyrir þann tíma.