Alltaf á síðustu stundu!!!
16. nóvember 2007 klukkan 13:45
Sendi mail í vikunni um hvort ég fengi miða á Bubbatónleikana, en miðasalan hætti fyrir löngu. En lucky me... ég fékk miða
. Fer þá sem sagt til Flensborg á morgun, svo er líka myndlistasýning með Tolla, ég er nú ekki mikill listaunnandi!!! En það verður örugglega gaman að kíkja á það líka.
Við Binni erum búin að vera í viðtölum við kennarann hans Ásbjörns. Það er verið að vinna í því að fá barnasálfræðing eða einhver sérfræðing til að hjálpa okkur að vinna í því að fá barnið til að tala. Ef þetta heldur mikið lengur svona áfram þá erum við svo hrædd um að hann fari að einangrast.
Kennarinn kom okkur rosalega á óvart. Við vorum búin að dæma hana heldur harkalega en svona er þetta bara svo oft. Maður dæmir alltaf fyrirfram og er síðan alltaf jafn hissa þegar maður kynnist viðkomandi.
Ég veit ekki alveg hvernig ég á lýsa því hvernig mér fannst hún fyrst; frekar fruntuleg (ef það er lýsingarorð?), talar hratt og mikið og lætur allt gossa og er eitur hress (en ég var búin að ákveða að það væri bara á yfirborðinu og undir niðri væri hún algjör gribba).
En núna er lýsingin á henni svona; Eitur hress, talar hratt og mikið, er ákveðin en sanngjörn, og hún talar hreint og beint út sem er auðvitað bara mjög gott.
En allavega ætlar kennarinn að drífa þessa pappírsvinnu af og vonumst við öll eftir einhverri niðurstöðu von bráðar.
Ásbjörn fékk rosalega gott umtal frá kennaranum. Hún sagði að hann væri mjög klár og að mörgu leiti fram yfir samnemendur sína í getu (verkefnum og hugsun). Henni finnst ótrúlegur þessi "sjálfsagi" hjá honum að tala ekki en geta samt tjáð sig og sýnt tilfinningar.
Hún lét hann hætta í dönskustuðningum fyrir nokkrum vikum síðan (en ég frétti það í dag!), því hún vildi frekar hafa hann hjá sér og sagðist halda mikið uppá hann.
Ég spurði Ásbjörn út í kennarann um daginn, vildi forvitnast um hvernig hún kæmi fram við hann (áður en ég talaði við hana í einrúmi og "kynntist" henni aðeins). Hann lét mjög vel að henni og sagði að hún væri mjög góð við sig. Það var mikill léttir.
Hún sagði líka að bekkjarfélagar hans væru mjög góðir við hann og hann hefur ekki lent í neinu einelti eða neinu svoleiðis. Það bíða allir spenntir eftir að hann fari að tala. En auðvitað verður þetta erfiðara fyrir hann með hverjum deginum.
Hann fékk líka mjög góða dóma frá íslenskukennaranum
. En þar er hann allt öðruvísi í tímum. Þar þorir hann að tala og vera hann sjálfur. Vinnur mjög vel og er áhugasamur.
En ég óska þess svo innilega að það er hægt að hjálpa honum út úr þessu.
Ég verð nú að segja frá einu fyndnu sem hann gerði!!
Hann teiknaði rosalega flott mynd í skólanum. Myndin var af trúð sem var með 3 bolta á hausnum og sat á hjóli með einu dekki. Þetta var rosalega flott nema að trúðurinn var með lafandi brjóst niður á nafla
, hahaha... ég sprakk úr hlátri þegar ég sá það.
En jæja læt þetta duga í bili...
Skrifa aftur á sunnudaginn.
Knusss...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Frábært hvað honum gengur vel í skólanum... enda rosalega klár strákur. Vonandi að talið fari að koma....
Ég verð nú að fara að bjalla á þig... langt síðan ég hef heyrt í þér.
knús til ykkar
Lilja
p.s talaði ég ekki fyrir okkur báðar í fyrstu bekkjum Grunnskóla :-) (kannski af það því að þú fékkst ekki að komast að hehehe)
Líst vel á það að þú kíkir á Tolla verk....bara tónleikar og myndlistasýning....vá það er bara nóg að gera ..he he he.
En ég er nú alveg viss um að hann Ábjörn á eftir að spjara sig....einn daginn á hann eftir að opna munninn og tala dönskuna.....er hann ekki bara að læra dönskuna 100% áður en hann leggur í það að tala ...vill hafa hana fullkomna???
Er þetta ekki bara svoleiðis með Ásbjörn eins og Dísa segir, hann ætlar sko ekkert að gera sig að fífli og tala vitlausa dönsku, hann ætlar bara að læra hana almennilega fyrst og koma ykkur svo öllum á óvart!
Knús til ykkar, ég lít enn upp í gluggann þinn á Skagabrautinni þegar ég keyri framhjá, bara svona til að tjékka á því hvort þú sért heima!!
Ehemmm en sunnudagurinn hja mer er a morgun!!! Klikkadi adeins a døgum... eda tima!!!!
Ásbjörn á eftir að koma ykkur öllum á óvart :)
Annars allt gott að frétta af okkur, Steinar kom heim í gær og var ánægður með Noreg. Búin að eignast fullt af vinum þar núna, bara gaman afþví.
knús til ykkar
þín Rakel