Sunnudagur!!!

20. nóvember 2007 klukkan 20:53

Ég ætlaði að vera SVO dugleg áðan og drífa mig í körfubolta EN svo komst ég bara ekki Óákveðinn. Binni er ekki heima og það voru svo margar búnar að afboða komu sína þannig að það hefði ekki verið karfa hvort sem er. Í þessi þrjú skipti sem ég hef sko ætlað að demba mér af stað í körfu, þá hefur henni verið aflýst!! Ég ætti kannski að fara að taka þessu persónulega. Kannski er ég ekkert svona hrikalega skemmtileg eins og ég held ég sé Ullandi (haha..). Kannski finnst fólki ekkert gaman að heyra hetjusögur af mér í hvert skipti sem það hittir mig og kannski fílar fólk ekkert fimmaurabrandarana og...og..og....

                                Hlæjandi                 Glottandi                Hlæjandi

Ég er búin að komast að því og viðurkenna að spegillinn sem ég keypti mér síðasta vor... er bara blöff!!!
Ég lít í hann öðru hvoru og hugsa: Ok ég er ekkert svo hrikalega feit en svo kem ég í skólann og þar eru fullt af speglun OG þar er ég feit Óákveðinn.
Ég hefði átt að láta spegilinn inná baðherbergi duga mér, því þar sé ég bara hausinn á mér og get því ekki verið að svekkja sjálfa mig yfir restinni af líkamanum.

Ég setti mér markmið í dag! Ég vona að ég standi við það og ef svo er þá skrifa ég um það seinna. Leyndarmál, ekki segja frá... því sem enginn veeit.

Ég fór á Bubbatónleikana síðasta laugardag, það var rosalega gaman. Og hrikalega er Bubbi góður í dönsku. Brandararnir hans voru alveg jafn fyndnir á dönsku og íslensku og hann gerði óspart grín að dönum.. frekar fyndið Brosandi. En síðan var eitthvað blindfullt pakk þarna sem kom með heilan kassa af bjór með sér og var veltandi flöskunum til, með tilheyrandi látum og svo voru þau endalaust gjammandi eitthvað og voru bara dónaleg. Það var það eina sem skyggði á.

Bílamálin hjá okkur eru ennþá í vinnslu... bíllinn fékk endurskoðun Óákveðinn. Binni er búinn að vera að gera við bílinn í dag og vonum við að það dugi. Hann fer aftur í skoðun á fimmtudaginn.

Nú er stutt skólavika hjá mér, bara morgundagurinn eftir. En ég ætla að reyna að byrja að skrifa ritgerð um helgina. Ef einhver lumar á góðri ritgerð um Bláa lónið þá Glottandi... óskast hún hér með til láns Glottandi. Haha... bara að grínast!!! Ég þarf bara að skrifa 12-18 bls. Gráta og ég mikla það rosalega fyrir mér. En ætli það sé ekki bara spurning um að byrja að skrifa og þá kemst maður í gang.

Jæja, best að kíkja á imbann. Það er skársta sjónvarpsdagskráin á virkum dögum!! Síðasta föstudagskvöld var ég að horfa á Evrópu eða heimsmeistaramót í Dómínó Á þýsku. Mjög spennandi keppni. Þetta var ótrúlega flott og ó my god hvað þetta blessaða fólk hlýtur að hafa góða þolinmæði, að raða milljón kubbum upp eftir einhverri mynd og láta svo allt saman hrynja!!! Og það hlýtur nú stundum að gerast að þegar fólk er að leggja síðustu kubbana niður og verkið alveg að klárast þá rekur það sig AÐEINS í og ALLT dómínóið hrynur og þeir þurfa að byrja uppá nýtt Öskrandi.

Ó já gott fólk, mér leiðist sko ALDREI Hlæjandi.

Knús og kremjur....... þar til næst...

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Bogga skrifar ...
Bwahaha,
þú ert ekki bara undurfalleg og góð mannsveskja, heldur ertu líka meinfyndin! Hef ég aldrei sagt þér það? Það er þá gert hér með :-*

Luv ya!
20. nóvember 2007 klukkan 21:34
Dísa skrifar ...
Þú ert frábær Ágústa.... skemmtileg og fyndin.

Þú ert mjög dugleg........ég öfunda þig af orkunni sem þú hefur.

Miss ya
21. nóvember 2007 klukkan 09:25
Hrund skrifar ...
 
Fyrsta innlit hér ;)
Þú ert haldin speglasyndrominu, hrjáir alla kvenþjóðina eins og hún leggur sig....
hef líka verið á leiðinni í körfuna óendanlega lengi.... en horfði í staðin á íslensku myndina Agnes á Skandinavísku sjónvarpsstöðinni.
Kveðja
21. nóvember 2007 klukkan 10:19
valgerđur skrifar ...
 
Hæ frænka
þú ert frábær, alltaf gaman að lesa bloggið þitt,
biðjum að heilsa af skaganum
Þórunn frænka
21. nóvember 2007 klukkan 21:28

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan