Hver vill kók????
Eða annan svalandi, seiðandi og sykraðan gosdrykk??
Lestu þá fyrst eftirfarandi:
Í einum lítra af gosi (sem er ekki diet) eru 52 sykurmolar.
Hver sykurmoli vegur u.þ.b. 2 gr.
Ef maður drekkur 1 líter á dag þá gerir það 364 sykurmola á viku eða 726 gr.
Einn líter á dag í heilt ár eru 38 kg. af sykri !!!!!!
Mikið er ég fegin að drekka ekki mikið af gosi, þetta er algjör vibbi
.
Ég drekk 0-1 líter af appelsíni á viku. Ég held ég hugsi mig samt vel um áður en ég opna næstu dós.
Ég drakk rosalega mikið af sódavatni en er hætt að kaupa það núna og er rosalega dugleg að drekka kranavatn. Hef verið að drekka 1,5 - 2 lítra á dag. Enginn sykur og engin aukaefni, það er meira að segja kalksíað og það skemmtilegasta við vatnsdrykkjuna er þegar maður vaknar um miðja nótt alveg að míga á sig
. Þurfa að rífa sig undan heitri sænginni og stíga inná ískalt baðherbergisgólfið.
Ég "ætlaði" að vera rosalega dugleg í morgun!!
Við Jóna fórum í nýja líkamsræktarsalinn og ætluðum að kaupa okkur mánaðarkort. En þar kom svo í ljós að við þurftum að gefa upp reikningnúmerin okkar því greiðslurnar þurfa að fara í gegnum greiðsluþjónustu
. En við vorum ekki með reikningsnúmerin okkar svo við röltum okkur bara niðrí bæ og fórum á kaffihús. Fengum okkur kaffi og brunch, voða huggó.
Binni er að vesenast með bílinn núna. Hann komst í gegnum skoðun og kannski fáum við númeraplötur í dag
. Best að gera sér samt ekkert of miklar vonir.
Túrílú...
En ég reyni að drekka sem minnst af gosi ..þá bara um helgar....en er orðin ansi slæm í kaffi drykkjunni.......en jæja.
Gott að bílinn komst í gegnum skoðun...sérstaklega þegar er farið að kólna svona....
kveðjur úr kuldanum á klakanum
Þetta er ekkert grín með þetta gos.... vest hvað þetta er bara ógeðslega gott.. er að reyna að venja mig á að drekka frekar pepsi max.. aðeins hollara en hitt.. en samt!! hehe
já umm að gera að reyna að fara í salinn, held samt að það sé það síðasta sem ég mun gera, ekki minn stíll;)
en bið að heilsa, ætlaði bara að kasta á ykkur kveðju.. hafið það gott ;)
já og vissir þú að börn eiga ekki að fá meiri sykur daglega en sem svarar 25 sykurmolum...
knús frá Esbjerg*
Jóna og co.
Annars er vatnið alltaf best, maður verður bara að vera duglegri við það :)
Nú fer alltaf að styttast í mömmu og Pabba :)
Var einmitt að reyna að ná í mömmu þína áðan, heildsalan með skó og útivistarföt er á morgun. Mannstu sem þú fórst á.
En með jólagjafir fyrir strákanum hvað er á top 10 listanum hjá þeim. Steinar segir að það verði að vera dót enginn föt fyrir börn, segir að þeim finnst það hundleiðinlegt :)
knús
þin Rakel
Það er enginn sértakur óskalisti hjá þeim. Alltaf gott að fá föt :o) En dót slær alltaf í gegn. Alveg sama hvað það er:o)
Knús til þín Rakel mín.