Bílastæði fyrir konur!!!

25. nóvember 2007 klukkan 14:57
Við fjölskyldan skelltum okkur til Þýskalands í gær. Þar fórum við m.a. í 2 moll og í þeim báðum voru sérmerkt bílastæði fyrir konur, þar stóð orðrétt: Frauen parkplätze!!! Munurinn á þeim og öðrum bílastæðum var að þau voru breiðari Hissa. Ég verð nú að viðurkenna að ég varð hálf móðguð! Ég hef verið með bílpróf í næstum 12 ár og jú... það hefur komið fyrir að sum bílastæði hafi böggað mig en þá hef ég bara fundið annað og betra stæði eða bara látið mig hafa það og troðið mér inní stæðið. Og ég er viss um að "venjuleg" bílastæði hafi líka oft böggað karlmenn en þeir þegja bara og blóta í hljóði til að halda "stoltinu".
Svo fór ég að spá hvort femínistar hafi fundið uppá þessu? Ég heyrði einhverntímann að femínistar á Íslandi vildu fá konumyndir á gönguljósin!!!!
Ó my god... nú fer ég að verða pirruð... ég er anti-femínisti.. ekki meiri femínistapælingar. Kannski er bara ástæðan að þýskar konur kunna ekki að leggja í stæði Hlæjandi. Og hana nú.

Þetta voru bara smá pælingar, ég svaf sko alveg í nótt útaf þessu Glottandi.

Við keyptum okkur m.a. jólagjöf í Þýskalandi. Við keyptum leiðsögutæki sem nefnist Garmin nüvi 250w. Binni er búinn að gráta sig í svefn á hverju kvöldi síðan fyrsti vinur hans fékk sér svona en nú lét hann verða af því að eignast svona.
Auðvitað er þetta snilldartæki, vorum með svona á leiðinni til Póllands og höfum áður fengið svona lánað þegar við förum á nýja staði.
Og svo er annar kostur við tækið! Nú getur Binni rövlað og tautað í tækinu en ekki mér Svalur. Það er ótrúlegt hvað hann getur kjaftað við þetta blessaða tæki ég var/er farin að halda að hann þurfi einhverja andlega hjálp Hlæjandi. En honum ætti allavega ekki að leiðast ef hann fer einn að ferðast!! Haha... ég þyrfi eiginlega að setja upp falda myndavél í bílinn og sýna honum það svo.

Ég keypti líka aðeins meira af jóladóti en vantar samt helling til að geta gert heimilið jólalegt, en það kemur.

Ásbjörn fór í enn eitt afmælið í gær! Það er brjálað að gera í afmælum hjá þessari elsku, en auðvitað finnst honum það bara gaman. Afmælið í gær var í keilusalnum og svo fer hann í annað afmæli næsta sunnudag.

Bekkjarbróðir hans kom með honum heim úr skólanum á föstudaginn. Ásbjörn talaði ekkert við hann en þeir gátu samt leikið sér og Jóhann Ingi lék með þeim, en hann er ófeiminn við að tala. Mamma stráksins sagðist vilja bjóða Ásbirni í heimsókn til þeirra seinna. Strákarnir ná mjög vel saman, og vilja báðir hittast aftur utan skóla.
Ég vona að þetta nái að örva Ásbjörn í að tala. En annars sagði hann í gær að hann ætli að tala í skólanum á morgun, en það verður bara að koma í ljós. Við erum að reyna að vera ekki að ýta á eftir honum.
Berglind frænka sendi mér link á eina síðu sem er um eitthvað sem heitir Kjörþögn á íslensku: http://www.selectivemutismfoundation.org/about.shtml (ég kann ekki að stytta þetta).
En allavega á þetta rosalega vel við Ásbjörn og við erum búin að benda kennaranum á þetta og einn fóstrinn er búinn að finna danska síðu um þetta. Þessi síða gefur mjög góðar upplýsingar um hvað við eigum að gera og hvað við eigum ekki að gera.

Í kvöld er ég að fara að hitta nokkrar stelpur. Við ætlum að horfa á video og borða pizzu og hafa það kósý Glottandi. Maður verður að kunna að "hygge sig" í Danmörku Brosandi.

Bless í bili...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Helena skrifar ...
 
Til hamingju með Garminn. Allir voða hrifnir af þessu tæki. Verð þó að segja að ég er ekki jafn hrifin af því hvað (mann)fólk er upptekið við að spjalla við tækið og ýta á skjáinn í sífellu... þegar þeir eiga að vera að HORFA Á VEGINN OG VANDA SIG VIÐ AKSTURINN... Er nokkuð dýrmætara hér í heimi en sá farmur sem yfirleitt er verið að flytja?

Vona a allt gangi vel hjá Ásbirni - kjarnakappi sem á eftir að gera stóra hluti.. Knúsaðu strákana frá "frænku" :)
25. nóvember 2007 klukkan 19:48
Bogga skrifar ...
 
Eitthvað var ég nú búin að heyra af þessum kvennabílastæðum. Mér finnst nú samt ekki rétt að merkja þau konum sérstaklega. Örugglega fullt af köllum sem myndu vilja nýta sér þau líka! Eiga bílastæði ekki bara almennt að vera breiðari? Það er ekki séns að koma krökkunum inn og út úr bíl í svona venjulegu bílastæði, og ef það er ástæðan fyrir því að kvennabílastæði eru breiðari, þá mættu karlarnir alveg láta heyra í sér. Þeir eiga það nú alveg til að skutlast með krakkana líka....

Svona vona ég að tilganginn sé með þessum kvennabílastæðum. Vonandi er ástæðan ekki sú að við kunnum ekki að leggja í stæði?!?
25. nóvember 2007 klukkan 22:05
Sólveig Ásta skrifar ...

já þessi stæði eru skondin en ef ég skil þetta rétt þá eru þetta frúarstæði og ég sem er ef e-ð karlremba finnst þetta samt bara sniðugt.. þessar eldri gellur sem kunna ekki að keyra og dúndra þá hurðunum ekki í minn bíl á meðan heh nei þetta er annars fínt því þau eru alltaf nálægt innganginum þá þarf ekki að bera pokana langt.. æ veit ekki það er hægt að túlka þetta á margan hátt..
kv
Sólveig
26. nóvember 2007 klukkan 09:26
Jóna Björk skrifar ...
hey, ég er nú bara líka hálf móðguð þegar ég heyri þetta með bílastæðin!!! Finnst nú persónulega allavega danirnir ekki vera gððir í að leggja í stæði, hvort sem að það eru konur eða kallar, vildi nú alveg sjá suma kallana reyna að bakka starexinum mínum í þessi austin mini stæði hérna!!!
knús og kram:)
Jóna
26. nóvember 2007 klukkan 17:48
Ásta Laufey skrifar ...
 
JÁ þú verður sko að kunna að hygge sig í danaveldi enda þeir margrómaðir í þessu hygge standi sínu hehe ( ég er ekki alveg að falla í kramið þannig - ég er alltof busy hehe) En bílastæði aaarrrrgggg. ekki orð meira.
OG til hamingju með nýju vinkonuna hans Binna ( er þetta ekki bara léttir að mörgu leyti) Ég hefði eiginlega átt að fá svona apparat með flugmiðanum mínum hingað er hrikalega áttavillt hér í mörkinni og rata ekki neitt. ÉG keyrði í 40 mín um daginn í smá bæ til að finna kommúnuna sem ég tilheyri og hafði komið þangað áður ég kom annarstaðar inn í bæinn en ég er vön á endanum gafst ég upp - keyrði heim og til baka þeim megin inn í bæinn sem ég rataði...hehe ég er vonlaus.
kveðjur á grensan.
26. nóvember 2007 klukkan 22:54
Dísa skrifar ...
Hæ hæ
Heyrðu mér vantar svo heimilsfangið ykkar ....getur þú sett það hérna inn eða senda mér :-)
Kv. Dísa
27. nóvember 2007 klukkan 20:30
Dagný skrifar ...
 
Kvenna bílasæði ...... bara snild. Er þetta ekki vegna þessa að vip erum að versla meira og þurfum bara meiri pláss að koma pokunum inn í bílinn :-)

Knús á línuna :-)
Kv Dagný
29. nóvember 2007 klukkan 19:21

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan