Bara 4 dagar í mömmu og pabba!!!

30. nóvember 2007 klukkan 09:31
Ég  fékk góða skýringu á þessum kvennabílastæðum um daginn og trúi því að sú skýring sé réttust!
Þessi stæði eru fyrir konur og eru næst inngöngunum öryggisins vegna. Það eru allskonar ógeð eða geðsjúklingar sem geta hangið inní bílastæðastæðahúsum og bíða eftir að finna þar konu eina á labbinu og ráðast á hana. Og þau eru víst ekkert breiðari en önnur stæði!!! Þannig að nú er ég hætt að vera móðguð Hlæjandi.

En það styttist óðum í mömmu og pabba Brosandi, bara tveir skóladagar eftir og svo eru þau komin.
Það er ömmu og afa dagur í skólanum hjá Ásbirni í dag og hjá Jóhanni Inga í þarnæstu viku. Ásbjörn er reyndar heima í dag og var líka heima í gær, hann er með svo rosalega ljótan hósta að við ákváðum að halda honum heima.

Í gærmorgun kom Magga Lukka til mín og við bökuðum FULLT af smákökum, Elsa "kíkti" líka í kaffi en endaði í stórbakstri Brosandi. Við gerðum 2 sortir en önnur þeirra tók alveg endalausan tíma. Við urðum að nota handsnúnu hakkavélina og gerðum úr henni 200 kökur!! Við tókum pásu um miðjan daginn og hittumst svo aftur um kvöldið til að getað klárað.

Á síðasta sunnudag hittumst við nokkrar vinkonur og borðuðum pizzu og horfðum á video, þetta var mjög fínt kvöld. En við vorum svo "sniðugar" að við tókum hryllingsmynd eftir Stephen King. Ég horfi aldrei á hryllingsmyndir, mig langar oft til þess en... þori því bara ekki. Ég fæ alltaf martröð nokkrar nætur á eftir og verð ímyndunarveik og heyri hljóð alls staðar Skömmustulegur. Þori ekki að láta löppina hanga út úr rúminu því kannski er skrímsli þar undir sem bítur löppina af og þori ekki að opna fataskápinn því þá spýtist kannski blóð út úr honum.... nei ég er nú ekki alveg svona kreisí en þetta fyrsta er samt rétt!
Ég held að myndin heitir Destination og hún byrjaði strax að vera ljót og ég náttúrulega varð uppsperrt og lifði mig þvílíkt inní þetta og lokaði augunum þegar ég vildi ekki sjá! En svo var myndin orðið svo mikið rugl í endirinn og þá gat ég slakað á. Og ég fékk enga martröð Hlæjandi.

Ég tók mér frí í skólanum á síðasta þriðjudag til að fara í foreldrakaffi hjá Jóhanni Inga. Ég notaði líka tímann til að gera eitthvað hérna heima og tókst að gera hluti sem ég er búin að treina lengi. Afhrímdi frystirinn, bakaði lagtertu, þurrkaði af, keypti smá jólaskraut og gerði aðventukrans. Ég ætlaði að kaupa mér efni í jólagardínur en fann ekkert, ekki einu sinni í Rúmfatalagernum. Ég fann reyndar eina tilbúna gardínu þar en guð hvað hún var ljót. Hún var eins og U á hvolfi!!! Ég ætla að kíkja í aðra efnabúð í dag og ath. hvað ég finn þar.

Síðan á að kveikja á jólarténu útí bæ í dag. Ég býst við að kíkja þangað með strákana.

Binni sést voða lítið heima þessa dagana, hann er "fluttur" uppí skóla. Prófkvíðinn er eitthvað að læðast yfir hann. Mér finnst þetta frekar fáránlegt, en hann fer í próf í janúar! Í stað þess að geta klárað þetta fyrir jól og geta svo notið jólanna án þess að vera með samviskubit yfir að vera ekki að læra! En svona er þetta víst bara.

Veðrið er ekki búið að vera neitt sérstakt hérna. Núna er blautt úti, rigningadagur og kuldalegt. Svo hafa komið dagar sem þurft hefur að skafa bílrúðurnar. Binni keypti samt snilldar sprey í Þýskalandi. Hann spreyjar yfir klakann á rúðunum og hann hverfur!! Ekkert skaferí Glottandi, en ég hef samt ekki ennþá prófað það.
Ég kíkti yfir moggann áðan. Stormur á Íslandi og björgunarsveitir kallaðar út hér og þar um landið Óákveðinn, svo er ég að kvarta!!!

Jæja, bless í bili..
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Skjóna skrifar ...
ok, ég er þá líka hætt að vera móðguð yfir þessu, get þá líka sagt Haffa frá þessu því að hann var alveg í kasti yfir þessu og alveg örugglega hæst ánægður með þetta þar sem að hann er nokkuð viss um að flestir kallar séu betri að leggja í stæði heldur en konur:/ En mikið er ég samt sammála þér með hrillingsmyndir.... ég get ekki horft á svoleiðis nema að Haffi sé heima, annars sef ég ekkert... passa líka vel að allir útlimur séu vel dúðaðir undir sængina hahaha.... Maður er nú svolítið klikk ha??? Góða skemmtun með M og P, það er best í heimi að fá foreldrana í heimsókn;)
knus og kram frá Esbjerg***
Jóna
01. desember 2007 klukkan 00:52
Elísabet skrifar ...
hæhæ...!!!
haha jámm ég er líka svona varðandi hryllingsmyndirnar... svaka tens e-h..! en já já hér var einmitt kveikt á jólatrénu í dag, nennti nú ekki vegna kulda en valgerður var þar með skátunum að gefa heitt súkkulaði... ;)
en skil samt ekkert í Binna og prófkvíða.. jesús það er ekki fyrr en í janúar...! ég get svarið það... ég á að fara í próf á næsta miðvikudag! er ekki enn byrjuð að læra, og ætla á ball í kveld!!! já svona er þetta..;)
en bið alveg innilega að heilsa öllum, þykir leiðinlega að þið komið ekki heim um jólin, sakna ykkar svo mikið :) kossar og hnús til ykkar allra!!!
kveðja Elísabet frænka:)
01. desember 2007 klukkan 17:50

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan