Jólatrés brenna...
02. desember 2007 klukkan 19:51
Það styttist óðum í mömmu og pabba, ekki á morgun heldur hinn
. Við erum ekkert búin að segja strákunum og stundum gleymi ég mér og þegar orðin: þegar amma og afi koma! eru alveg að vera komin útúr mér þá ranka ég við mér! Ég verð bara að halda í mér í 2 daga í viðbót.
Á föstudaginn fórum við útí bæ til að sjá þegar kveikt var á jólatrénu. Strákarnir voru mjög spenntir og sérstaklega Ásbjörn eða alveg þangað til hann fattaði að það átti að kveikja Á jólatrénu en ekki Í því
. En hann skemmti sér mjög vel þó það hafi ekki verið jólabrenna! Við sáum jólasveininn og álfana draga vagninn hans og löbbuðum með vagninum niður miðbæinn.
Um kvöldið fórum við Binni á "kojufyllerí"
, haha... drukkum hvítvín og sátum við tölvuna að skoða hvað við ættum af tónlist í henni. Við erum svo agalega glötuð... erum venjulega sofnuð fyrir miðnætti um helgar en í þetta skiptið gleymdum við okkur til rúmlega eitt!!!
Í gær fóru ég og Jóhann Ingi útí bæ. Keyptum m.a. þrjár jólagjafir. Síðan var strákunum boðið í heimsókn til Hrafns Jökuls og ég fór að þrífa.
Í dag var aðventukaffi hjá íslendingafélaginu. Fullt borð af girnilegum kökum, heitt kakó og kaffi. Mjög gaman eins og alltaf á viðburðum félagsins
.
Jæja, best að fara að læra eitthvað...
Knús og kram...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
kveðjur og knús***
Jóna
Hafið það sem allra best :-)
flyt hér sorgarfréttir...! Hann bleikur er dáinn..;( hann lést í gærkveldi í höndunum á pabba og benna!!! við erum öll miður okkar..!
hélt að hann hefði það af, en því miður! það kemur engin í staðinn fyrir hann Bleik okkar, en svo fór sem fór!!
vildi bara segja þér það!
en ég kemst ellavega ekki á hesbak í bráð;(
Nú eru þau lent í Köben og eru að fara að keyra til ykkar :-)
Við hugsum til ykkar og ég vildi að við værum þarna líka, sérstaklega þegar strákarnir opna útidyrahurðina og sjá bara allt í einu ömmu og afa hahha æðislegt
Ykkar
Rakel og Steinar
Það er orðið dágóður tími síðan ég skrifaði þér línu síðast það er svo brjáááálað að gera hjá manni ,eða gefur maður sér kannski bara ekki tíma .Það er allt fínt að frétta héðan af Skaga lífið gengur sinn vanagang,bið innilega að heilsa ykkur kv Ragnheiður frænka