Sæludagar!!!

06. desember 2007 klukkan 22:54
Jæja þá eru mamma og pabbi komin. Það er alveg yndislegt að hafa þau hérna en bara verst hvað þau stoppa stutt Óákveðinn. Þau dingluðu bjöllunni þegar þau komu og strákarnir fóru til dyra, Ásbjörn á undan. Hann var alveg kjaftstopp og var þvílíkt hissa, átti allra síst von á að hitta þau. Jóhann Ingi hékk í dyragættinni í eldhúsinu og marg endurtók: amma og afi eru komin til okkar. Svo voru þvílík fagnaðarlæti allt kvöldið Brosandi. Strákarnir vissu heldur ekki að Íris og Siggi, Arnar Daði og Gylfi væru hjá Svan og Elsu en eitthvað barst það í tal að það væru fleiri óvæntar uppákomur og Ásbjörn alveg að farast úr forvitni og ákvað að díla við okkur. Bað mig um að skrifa nöfnin á þessu óvænta fólki niður og ef hann gæti lesið þau alveg sjálfur þá fengi hann að vita þetta, og minns bara las nöfnin upp Brosandi. Þannig að það er búin að vera mikil gleði hér á bæ Hlæjandi.

Ásbjörn er búinn að vera að æfa sig að lesa undanfarið og það gengur mjög vel, en hann ruglar aðeins stöfunum því hann lærir þá á dönsku í skólanum og margir þeirra eru bornir öðruvísi fram. Það eru aðallega stafir með kommu yfir sem hann ruglast á. En við verðum bara að vera dugleg að æfa.

Í dag fóru ég, mamma og pabbi til Kolding. Ég sýndi þeim skólann minn og svo fórum við í Store Center sem er verslunarmiðstöð með u.þ.b. 120 verslunum. Við vorum þarna í 5-6 klst. og ég held við höfum komið við í flestum búðunum. Mamma og pabbi náðu að kaupa nokkrar jólagjafir en ég enga.
Á morgun förum við líklega til Þýskaland, kíkjum aðeins á göngugötuna og tökum strákana með okkur. Stefnum bara á rólegheit Glottandi, ætlum ekkert að missa okkur í búðum eins og í dag!

Svo fengum við bréf í póstkassann í dag!! Það er nú svo sem ekkert nýtt... enda póstkassi ætlaður fyrir bréf! En þetta tiltekna bréf var tilboð um stærri íbúð með GARÐI og fjögurra herbergja Hlæjandi. Þessi íbúð er í þarnæstu blokk við okkur og við gætum flutt inn 15 febrúar. Við verðum að svara í síðasta lagi á þriðjudaginn og ætlum að fá að skoða hana á morgun eða um helgina. Núna sé ég næsta sumar alveg í hyllingum, sitjandi útí garði í góða veðrinu (þ.e.a.s. ef það rignir ekki svona mikið eins og síðasta sumar Óákveðinn ) og svo er ég búin að lofa strákunum trampólíni ef við fáum garð!! Og svo fá strákarnir sitthvort herbergið. Uummm... yndislegt Svalur.

En jæja, ég er alveg út keyrð eftir daginn.

Lifið heil...

Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Skjóna skrifar ...
ohhh.... frábær óvæntur glaðningur njótið þess í botn að hafa þau:) Knús í kotið***
Jóna og co.
07. desember 2007 klukkan 07:40
Rakel skrifar ...
 
Hæ hæ,
Njótið ykkar í botn saman. Veit samt alveg að þið eruð að gera það :) Bið voða vel að heilsa öllum og það er allt í snjó hérna og frost. Samt voða jólalegt að horfa út :)
Ykkar Rakel
07. desember 2007 klukkan 10:06
Dísa skrifar ...
Hæ hæ
Æðislegt að heyra hvað er gaman hjá ykkur.
Gaman að fá svona heimsókn og fá svo svona góðar fréttir líka .....hlakka ógó til að koma í heimsókn á næsta ári ...

Kveðja úr snjónum á skaganum
07. desember 2007 klukkan 11:44
Bogga skrifar ...
Er nokkuð spurning um hvort þið flytjið? Lýsingin hljómar alla vega vel.
Segjum bara að ef íbúðin er nær MÉR þá flytjið þið! Þið verðið að fara að mjaka ykkur heim á leið :)

Saknaðarkveðjur,
Bogga

P.s. Það er búið að skreyta á Skagabrautinni!
07. desember 2007 klukkan 23:19
Hrund skrifar ...
 
Duglegur srákurinn! og góð kvatning þarna! Ég hlakka til að koma í kaffi til þín út í garðinn þinn í sumar! Nú og ef þið takið henni ekki kemur þú bara í kaffi til mín, mátt alveg hoppa á trampólíninu hér og reita arfa...
Gott að fá ömmu og afa og eins og daninn segir í Carlsberg auglýsingunni. Nyd det lige så længe det varer...
Kveðja
09. desember 2007 klukkan 01:29
Helena Rós skrifar ...
Til hamingju með afmælið :) lýtur út fyrir það að þú fáir litla ekki í afmælisgjöf....
Hafðu það rosalega gott í dag.
kv. Ásgeir, Helena og Katrín Fjóla :)
09. desember 2007 klukkan 13:16
Bogga skrifar ...
 
Til hamingju með afmælið Ágústa mín!!!
Vonandi verður afmælisdagurinn þinn frábær.
Knús og kveðjur,
Bogga
09. desember 2007 klukkan 13:20
Dísa skrifar ...
Til hamingju með daginn skvísa
09. desember 2007 klukkan 15:47
Rakel skrifar ...
 
Til lukku með daginn mín kæra :)
ÉG vona að ég hafi sent þér sms í rétt númer? Fór að hugsa hvort þetta hafi verið heimasíminn þinn? haha
En veit að þið eruð að skemmta ykkur vel í dag :)

Knús Rakel
09. desember 2007 klukkan 15:59
Lilja Guðrún skrifar ...
 
Til hamingju með daginn Elsku vinkona.

knús
Lilja
09. desember 2007 klukkan 17:55
Ágústa skrifar ...
 
Takk fyrir kveðjurnar :o) Ég hef átt alveg frábæran dag.
Og Rakel, ég fékk sms-ið :o)
09. desember 2007 klukkan 18:06
Elísabet skrifar ...
 
Við hérna á faxabrautinni viljum óska þér til hamingju með afmælið :=) Hafðu það alveg ofboðslega gott, og njóttu dagsins!!
09. desember 2007 klukkan 19:24
Skjóna skrifar ...
Til hamingju með afmælið skvís;)
09. desember 2007 klukkan 21:04
Ella Þóra skrifar ...
 
Til hamingju með daginn í dag :) Vonandi áttir þú góðan dag:)

Ein spurning verðið þið á klakanum um jólin? Eða verðið þið í sælunni í Danaveldi.

kv. Ella Þóra
09. desember 2007 klukkan 22:07
Bergþóra skrifar ...
 
hæ hæ
innilega til hamingju með afmælið í dag ...
hafið það sem allra best...
kveðja Bergþóra ,Hannes ,Jón Gautur og Guðlaug Gyða
09. desember 2007 klukkan 23:00

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan