Jólin, jólin, jólin koma senn....
18. desember 2007 klukkan 17:07
Það er eiginlega orðið óhugnanlega stutt í jólin!!! Bara einn skóladagur eftir hjá mér... llaanngur dagur.
Ég er búin að vera óska fólki gleðilegra jóla undanfarna daga en svo allt í einu fannst mér svo skrítið að það væru að koma jól!!! Allt í einu fannst mér ekkert jólalegt! Það er enginn snjór, en samt mjög fallegt veður. Það er mjög lítið um jólaskreytingar, maður fær hálfgert sjokk ef maður sér ofur skreyttan garð og ég veit ekki af hverju þetta kom yfir mig. Kannski er ég bara eitthvað illa upplögð í dag! Svaf illa og brjálað að gera í skólanum.
En nýjar fréttir af skólanum!
Það er búið að selja hann og nýr eigandi tekur við um áramót. Ég efast samt um að mitt nám breytist eitthvað, vegna þess að það er svo stutt eftir. En annars verða örugglega einhverjar breytingar fyrir nýja nemendur, þ.e.a.s. ef það koma þá einhverjir nýjir. Það er enginn búinn að skrá sig í námið sem byrjar í janúar.
Síðasta helgi var mjög skemmtileg.
Ásbjörn fór í tvö afmæli. Óli vinur hans gisti hjá honum og Ásbjörn gisti hjá Óla. Jóhann Ingi gisti hjá Hörpu Ósk.
Við völdum okkur jólatré og söguðum það niður. Fengum heitt kakó og pebbernödder í boði Ísl. félagsins og keyptum okkur Ísl. nammi
.
Við Binni fórum á Julefrokost með stjórn Ísl. félagsins. Það var æðislega gaman. Vorum í heimahúsi og allir komu með eitthvað á hlaðborðið. Svo var borðað, drukkið og spjallað og voða kósý.
Sunnudagurinn var ekki eins skemmtilegur
. Ég var FREKAR þreytt ALLAN daginn og átti að fara í próf daginn eftir og átti eftir að lesa SVO mikið.
Þar sem heilasellurnar voru ekki alveg uppá sitt besta þennan daginn þá varð lítið um lestur
. En ég náði alveg prófinu, hefði alveg viljað fá hærra en.... så er det bare!!
Nú er Jóhann Ingi veikur. Ældi allt út í nótt og er núna með hita
. En hann er samt þokkalega hress.
Ásbjörn fór í jólaklippingu eftir skóla í dag, algjör töffari. Bað Jónu um að greiða á sig brodda
.
Ég á bara eina jólagjöf eftir... fyrir Ásbjörn. Og ég bara VEIT EKKI hvað við getum gefið barninu??? Ég ætla að nota fimmtudag og föstudag til að þræða búðirnar fram og til baka og finna eitthvað flott fyrir hann
.
Og ég sem ætlaði að byrja jólin svo snemma... kaupa allar jólagjafir löngu fyrir jól og skrifa jólakort og senda þau á skikkanlegum tíma
. Veit ekki hvað klikkaði hjá mér!! En þið þurfið allavega ekki að láta ykkur bregða ef þið fáið kortin nokkrum dögum eftir jól
, en vonandi ná þau þó á réttum tíma.
Ég held það sé löngu kominn tími til að taka könnunina út!!
Og viti menn... nautið er svo þrjóskt að það þykist ekkert taka mark á áliti almennings!!! Þannig að við geymum klósettrúlluna bara áfram uppá þvottavélinni... þá skiptir ekki máli hvernig hún snýr!!!!

Jæja... nóg í bili...
Jólaknús...
Ágústa G. Ásbjörnsdóttir
Gleðileg jól dúllurnar mínar og við sjáumst á næsta ári
knus
Það verða örugglega frábær jól hjá ykkur þótt þau verði óvanaleg. Bara gaman að prófa eitthvað nýtt!!
Og mér finnst svo gaman að fá jólakort eftir jólin! Svona þegar maður heldur að allt sé búið þá *púff* eitt í viðbót :) Bara gaman að því.
knus og kys,
Bogga
-sem ætlar ekki í jólaskap fyrr en kl. 6 á aðfangadag-
Hafið það æðislegt um jólin og vonandi nær mitt jólakort til þín fyrir jól
Jólakveðja af Reynigrundinni
Já maður er einhvern veginn ekki alveg tilbúinn í jólin... mættu koma eftir svona tvær vikur svo að maður nái að klára allt:) Við ætlum að skella okkur á grensuna á föstudaginn, verð í bandi við þig:)
knús og kram*
Jóna og co.
Verð að taka undir með Boggu...hérna er sko ekkert jólalegt....vantar snjóinn svo maður komist í jólaskap. Ég vona að ég finni jólaskapið á morgun í kringlunni.... :-)
Hafið það sem allra best um jólin.....hugsa til ykkar :-)
Knús Dísa